„Þetta er alltaf mögnuð upplifun“

Sara Mansour er einn af skipu­leggj­endum Druslu­göng­unnar í ár. Hún segir þörf­ina á göng­unni mikla og hlakkar til að halda sam­stöðu­fund­inn í raun­heimum á nýjan leik.

Sara Mansour.
Sara Mansour.

„Staðan er ein­fald­lega sú að við eigum afar lítið eftir í sjóðnum okkar,“ segir Sara Mansour, einn af skipu­leggj­endum Druslu­göng­unnar í ár. Safnað er fyrir und­ir­bún­ingi göng­unnar á Karolina Fund og til að bjóða upp á fræðslu­efni og leið­beina þolendum kyn­ferð­is­of­beldis um úrræði.

Er druslu­göngu­hug­mynd­inni var fyrst hrint í fram­kvæmd fyrir rúm­lega ára­tug feng­ust styrkir frá hinu opin­bera og öðrum aðilum. Fljót­lega fór gangan þó að standa undir sér með sölu á varn­ingi en síð­ast­liðin tvö ár hefur eng­inn varn­ingur selst þar sem óhægt var að halda göng­una vegna sótt­varn­ar­tak­mark­ana. Eigi að síður féllu til ýmis útgjöld, til dæmis var gefið út druslu-tölu­blað árið 2020 og árið 2021 og eins hafði þegar verið stofnað til ýmissa fjár­hags­legra skuld­bind­inga þegar ákveðið var að hætta við göng­una á sein­ustu mín­útu. „Hvort um sig hafði í för með sér að við áttum í nokkrum erf­ið­leikum með að standa í skilum og óvíst hvernig það tæk­ist í ár ef ekki væri fyrir söfn­un­ina,“ segir Sara.

[adspot]

Það kom því aldrei annað til greina en að halda ein­hvers konar fjár­öflun til við­bótar við sölu á varn­ingi. Sara segir kostn­að­inn við að halda göng­una óneit­an­lega hafa auk­ist með árunum, eftir því sem hún hefur orðið umfangs­meiri og fjöl­sótt­ari við­burður. „Mér finnst mik­il­vægt að fólk átti sig á því að þótt öll sem eru í teym­inu ann­ist skipu­lagn­ing­una í frí­tím­anum sínum, oft­ast undir miklu álagi, og að öll sem leggja hönd á plóg geri það í sjálf­boða­vinnu, til að mynda tón­list­ar­fólk, ljós­mynd­arar, graf­ískir hönn­uðir og skemmti­staða­eig­endur, þá eru samt alls konar kostn­að­ar­liðir sem við komumst ekki hjá því að greiða fyrir og eru það oft­ast afar háar fjár­hæðir. Okkar von er að með því að safna pen­ingum fyr­ir­fram getum við efnt nauð­syn­legar samn­ings­skuld­bind­ingar og jafn­vel skilið eftir smá­vegis sjóð fyrir næstu stjórnir.“

Sara segir Karolina Fund þægi­legan miðil því þar sé bæði hægt að þiggja frjáls fram­lög en einnig að bjóða fólki að kaupa varn­ing. „Við erum með alls konar varn­ing í boði og síðan er líka hægt að kaupa þakk­ar­mynd­bönd frá teym­inu, sem er algengt í svona söfn­unum.“

Eini gall­inn er sá að Karolina Fund tekur ein­ungis við kredit­korta­greiðslum og því minnir Sara fólk á að varn­ing­ur­inn verður til sölu eins og venju­lega í aðdrag­anda göng­unnar og þá er hægt að borga með hvers konar greiðslu­korti, sem og reiðufé og milli­færslum. „Þetta verður allt aug­lýst þegar þar að kemur, og ég mæli þess vegna með að áhuga­söm fylgist með Druslu­göng­unni á sam­fé­lags­miðlum, Facebook og Instagram.“

Druslu­gangan fer fram laug­ar­dag­inn 23. Júlí. „Ég von­ast auð­vitað inni­lega til að sjá sem flest,“ segir Sara.

Lagt verður af stað frá Hall­gríms­kirkju kl. 14 og rölt niður á Aust­ur­völl, þar sem haldnar verða ræður og tón­list flutt til vald­efl­ingar og skemmt­unar fyrir við­stadda. „Þetta er alltaf mögnuð upp­lifun og ég held að eftir tveggja ára inni­lokun sé umgengnin við aðrar mann­eskjur sér­stak­lega dýr­mæt.“

Smelltu hér til að styrkja Druslu­göng­una

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

drusluganga

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár