Druslugangan ekki sofnuð á verðinum

Skipu­leggendur Druslu­göng­unnar segja marg­vís­leg bakslög í mann­rétt­inda­bar­áttu hafa sýnt að ekki megi sofna á verð­inum þegar öryggi og sjálf­ræði kvenna og jað­ar­settra hópa séu í húfi. Gengið verður til stuðn­ings þolendum á morgun eftir tveggja ára hlé.

„Ef að við höldum áfram að meðhöndla kynferðisbrot sem einangruð tilvik fáum við aldrei heildarmyndina sem þarf til að skilja og afnema nauðgunarmenningu.“
„Ef að við höldum áfram að með­höndla kyn­ferð­is­brot sem ein­angruð til­vik fáum við aldrei heild­ar­mynd­ina sem þarf til að skilja og afnema nauðg­un­ar­menn­ingu.“ Mynd: Bára Huld Beck

Druslu­gangan fer fram á morgun, laug­ar­dag­inn 23. júlí, þar sem gengið verður frá Skóla­vörðu­holti niður á Aust­ur­völl til stuðn­ings þolendum kyn­ferð­is­of­beldis, eftir tveggja ára hlé vegna heims­far­ald­urs. Sérstök áhersla verður lögð á valda­misvægi og reynslu­heim jað­ar­settra hópa innan sam­fé­lags­ins í göng­unni í ár.

Gangan var haldin í fyrsta sinn á Íslandi 23. júlí árið 2011. Í sam­tali við Kjarnann segja skipu­leggendur að Druslu­gangan sé ein af þeim sam­tökum sem hafa það að mark­miði að þörfin fyrir þau hætti að vera til staðar og að marg­vís­leg bakslög í mann­rétt­inda­bar­átt­unni hafi sýnt að ekki megi sofna á verð­inum þegar sjálf­ræði kvenna og ann­arra jað­ar­settra hópa séu í húfi.

[adspot]Skipu­leggendur segja mikið vatn hafia runnið til sjávar síðan síð­asta ganga var haldin, og telja við­horf sam­fé­lags­ins vissu­lega hafa þró­ast í þá átt að almenn­ingur geri sér betur grein fyrir því hvaða hlut­verk valda­misvægi spilar í kyn­ferð­is­legu ofbeldi.

Ekki hægt að uppræta kynferðisofbeldi án þess að horfast í augu við þau valdakerfi sem gera ofbeldinu kleift að viðgangast í þögn

„Fólk skilur í auknum mæli að sam­þykki lítur ekki alltaf eins út, heldur tekur mið af aðstæðum. Þættir eins og aldur, staða, vímu­efna­vandi, þroska­haml­anir, kyn­þátta­for­dómar, bágur fjár­hagur, fjöl­skyldu­tengsl og svo fram­vegis, hafa áhrif á mögu­leika fólks til að veita upp­lýst og ein­lægt sam­þykki til kyn­ferð­is­legra athafna. Þessi þróun í við­horfum virð­ist að sama skapi vera að ryðja sér til rúms við reglu­setn­ingu og ákvarð­ana­töku vald­hafa, eins og dóm­ara. Tekin hafa verið stór skref í rétta átt, til dæmis með því að sífellt fleiri mann­rétt­inda­sam­tök skipa kyn­ferð­is­of­beldi í flokk stríðs­glæpa og/eða ólög­mætrar vopn­beit­ingar, auk þess sem skil­grein­ing íslenskrar lög­gjafar tekur vax­andi til­lit til þessa veru­leika.“

Þess vegna vilji skipu­leggendur leggja áherslu á þessi sjón­ar­mið í göng­unni í ár. Gangast verði við því kyn­ferð­is­of­beldi eigi sér sjaldn­ast stað í tóma­rúmi og ekki sé hægt að upp­ræta kyn­ferð­is­of­beldi án þess að horfast í augu við þau valda­kerfi sem gera ofbeld­inu kleift að við­gang­ast í þögn. „Ef að við höldum áfram að með­höndla kyn­ferð­is­brot sem ein­angruð til­vik fáum við aldrei heild­ar­mynd­ina sem þarf til að skilja og afnema nauðg­un­ar­menn­ingu.“

Gengið verður frá Hall­gríms­kirkju kl. 14 á morgun og haldið niður á Aust­ur­völl þar sem hlýtt verður á ræður frá jað­ar­settum konum. „Við biðjum gesti göng­unnar og stuðn­ings­fólk þolenda að hlusta á upp­lif­anir jað­ar­settra kvenna, sem ætla að halda ræður á laug­ar­dag­inn, og læra hvernig við getum gert betur í þeirra mála­flokki svo kyn­ferð­is­of­beldi fái ekki þrif­ist. Vonin er að þessar áherslur end­ur­speglist svo í starfi þeirra sem eiga aðkomu að stefnu­mótun á sviði kyn­ferð­is­of­beldis.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

drusluganga

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár