Lifum á tímum einmanaleika og tengslaleysis

Geð­hjúkr­un­ar­fræð­ingur og heim­spek­ingur hyggj­ast reisa skjól fyrir sam­fé­lag og tengsl við nátt­úr­una.

Kristín Linda Hjart­ar­dóttir geð­hjúkr­un­ar­fræð­ingur, í sam­vinnu við Elínu Öglu þjóð­menn­ing­ar­bónda hafa ákveðið að reisa „gull­fal­legt, töfrum fyllt, mongólskt hirð­ingja­tjald“ á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Þær safna nú fyrir verk­efn­inu Þetta Gimli – þjóð­menn­ing­ar­býli á Karolina Fund.

Hvað er Þetta Gimli?

„Það er staður fyrir fólk að koma á við­burði, vinnu­stofur og nám­skeið sem öll miða að því að auka á tengsl og sam­hljóm, okkar á milli og á milli okkar og nátt­úr­unnar. Tjaldið er svo fal­legt að bara með því að koma og vera þar þá fær­ist yfir mann ró og þakk­læti. Nafnið kemur frá Elínu Öglu en hún reisti tjaldið fyrst upp í Árnes­hreppi þegar hún bjó norður í Tré­kyllis­vík. Gimli vísar í goða­fræð­ina, þegar ragnarök ganga yfir og heim­ur­inn eins og við þekkjum hann er að enda. Þá var Gimli eina skjólið fyrir eld­inum allt um kring.

Gimli var líka nafnið sem Íslend­ingar gáfu bæ sem þeir byggðu í Kanada seint á 19. öld. „Þetta“ Gimli vísar til tjalds­ins, hérna, núna. Skjól fyrir þá sem vilja, með von um að flest okkar eigi skjól ein­hvers staðar. Við vonum að Þetta Gimli geti verið skjól fyrir það sem þarf skjól í nútím­anum, þar sem við getum aðeins hægt á okkur og átt tíma fyrir sam­ræður, teng­ingu, íhugun, og jafn­vel veislu­höld,“ segir Kristín.

[adspot]

Hvernig kom hug­myndin til?

„Við Elín Agla höfum lengi verið að bera saman bækur okkar um alls konar hug­leið­ingar varð­andi hvað það er sem hjálpar okkur í svona þessu dag­lega streði sem lífið oft getur verið. En líka hvað það er sem gefur okkur gleði og hefur raun­veru­legt gildi fyrir okkur. Ég flutti til Banda­ríkj­anna 2009 og á tíma­bili var ég í Minn­ea­polis og hún norður í Árnes­hreppi. Á þessum tíma vorum við oft að ræða hversu sam­fé­lagið í kringum okkur og sam­band okkar við þetta sam­fé­lag væri mik­il­vægt. Elín bjó í þorpi þar sem tengsl og hlut­verk voru svo skýr. Ég bjó í borg og var fyrstu árin í sterku sam­fé­lagi með öðrum íslend­ingum en á þessum tíma höfðu þau flest flutt aftur heim. Því varð ég að byggja upp mitt eigið tengsla­net hérna úti.

Í öðru lagi vorum við mikið að tala um tengsl okkar við nátt­úr­una. Það hefur verið gang­andi grín hvað ég er lítið nátt­úru­barn, og kann vel við mig í steyp­unni. Ég er alin upp út á landi og það var ekki fyrr en ég flutti í Banda­ríska mið­vestrið, flat­lendið mikla, sem ég fór að upp­lifa það sjálf að umhverfið, nátt­úran, talar við eitt­hvað innra með okkur. Og fyrir útlend­ing­inn sem hefur alltaf haft fjall á aðra hönd­ina og hafið á hina var víð­áttan alger­lega ókunn­ugt fyr­ir­bæri sem ég gat illa skýrt út. Kannski er það þetta lík­am­lega minni, eða ein­hver stimp­ill á gena­mengið. Mik­il­væg­ast fyrir mig hefur verið að taka eftir þessu og tengj­ast,“ segir hún.

Kristín bætir því við að það hafi svo síð­ustu tvö árin, í þessum elífð­ar­heims­far­aldri, sem þær Elín fóru að tala að fullri alvöru um að finna stað þar sem hægt væri að iðka eða sem styðja þessi tvö meg­in­mark­mið, tengj­ast hvoru öðru og tengj­ast nátt­úr­unni. „Hérna úti, og ég held á Íslandi líka, kom greini­lega í ljós að fólk þráði þessa teng­ingu. Við lifum nefn­in­lega á tímum ann­ars far­ald­urs, sem er ein­mana­leiki, tengsla­leysi, og var löngu byrj­aður áður en Covid kom en klár­lega gerði allt verra. Í starfi mínu sem geð­hjúkr­un­ar­fræð­ingur varð ég líka að við­ur­kenna að margir eru að glíma við streitu­við­brögð við umhverf­inu sem við eigum kannski ráð við en er erfitt að leysa. Dæmi um þetta er til dæmis hús­næð­is­skortur, jað­ar­setn­ing, vinnu­á­lag, fátækt, og kulnun. Ég upp­lifði líka á þessum tíma að við sem sam­fé­lag gengum í gegnum gríða­legt sorg­ar­ferli, en höfðum fá tæki­færi til að tjá það, eða marka þessa reynslu með ein­hverju áþreif­an­legu.“

Hún segir að heil­brigð­is­starfs­fólk sem starfar enn í heims­far­aldr­inum stað­festi þetta. „Margir hafa hætt og hefur tíðni kuln­unar í heil­brigð­is­kerf­inu sjaldan verið hærri. Hópar og ein­stak­lingar sem eru að vinna gegn sam­fé­lags­legu órétt­læti og í fjölda ann­arra starfa eru líka að brenna út. Við vitum þetta, og margir eru í mark­vissri vinnu að takast á við streit­una með margs­konar móti sem er frá­bært en yfir­leitt miðað við ein­stak­ling­inn. Okkur lang­aði til að koma með aðra nálgun þar sem Þetta Gimli gæti veitt skjól fyrir hópa, fyrir teng­ingu, sam­ræður og sögur. Þar sem við gætum æft þorps­vit­und­ar­vöðvann og sam­band okkar við nátt­úr­una. Planið er að halda nám­skeið, sam­fé­lags­fundi, og veislur reglu­lega í tjald­inu.“

Og hvað þarf að ger­ast til að Þetta Gimli verði að raun­veru­leika?

Kristín segir að tjaldið góða sé núna í geymslu í Reykja­vík. „Við erum með söfnun á Karolina Fund til að geta byggt pall­inn undir tjaldið, und­ir­stöð­una. Draum­ur­inn er að geta sett tjaldið upp í sumar og þegar fer að hausta að reisa álhvelf­ingu yfir tjaldið til verndar gegn veðr­inu.“

Hér er hægt að skoða og taka þátt í söfn­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár