Skiptir máli að fólk klæðist sundfötum sem lætur því líða vel

Petra Bender hefur fylgst með bað­menn­ingu til fjölda ára og hannar nú sund­fatnað fyrir konur sem hún vill að þeim líði vel í og höfði til þeirra.

Petra Bender er fata­hönn­uður og útskrif­að­ist úr Parsons School of Design í New York með hæstu ein­kunn. Hún sótti MA-nám í textíl í CSM í London og graf­íska hönnun í LHÍ. Hún hefur unnið á Íslandi og í London, þar á meðal fyrir Nike þar sem sér­staða hennar var þekk­ing á sport­fatn­aði og mynstur­gerð.

Undir merk­inu By Petra Bender hef hún hannað fata­línur, þar á meðal sund­fatnað. Hún stundar sjó­í­þróttir og blandar saman íþróttum og tísku, sem er sér­staða By Petra Bender. Hún safnar nú fyrir verk­efni á Karolina Fund.

[adspot]

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Ég hef unnið í sund­laug­unum í gegnum árin, eða síðan ég var 18-20 ára með skóla – alltaf á sumrin og líka á Ylströnd­inni í Naut­hóls­vík meðan að ég var í hönn­un­ar­námi. Þannig að ég er búin að fylgj­ast með bað­menn­ing­unni í gegnum árin, bæði sem starfs­maður og sund­gestur,“ segir Petra.

Hún seg­ist jafn­framt hafa mik­inn áhuga á íþróttafatn­aði en hún starf­aði fyrir Nike í London, eins og áður segir. „Íþróttir og föt renna saman í eitt áhuga­mál. Þannig að já, það hefur kitlað í mörg ár að búa til sund­fatnað.“

Petra segir að sjór og vatn sé svo heilandi en henni finnst skipta máli að fólk klæð­ist sund­fötum sem lætur því líða vel og höfðar til þess. „Ég hef mik­inn áhuga á úti­vist svo sem sjó­sundi og brim­bretti. Út frá því vakn­aði áhugi minn á þróun sport­fatn­aðar með vist­vænum áherslum.“

Segðu okkur frá þema verk­efn­is­ins

„Sund­menn­ingin er stór partur af íslensku sam­fé­lagi. Íslend­ingar á öllum aldri nota sund til að end­ur­næra sig; félags­lega, and­lega og lík­am­lega. Mark­miðið er að hanna sund­fatnað fyrir íslenskar konur. Sniðið er inn­blásið af brim­brettafatn­aði með íslenskan sjó og sund­menn­ingu í huga. Sund­bol­inn hefur verið í þróun og er komin ein útfærsla af honum.

En mig langar að taka næsta skref og verður sund­bol­ur­inn þró­aður með öðrum efnum sem eru end­urunnin gæða­efni og umhverf­is­væn. Sniðið er hugsað til að ein­stak­ling­ur­inn geti sem best náð árangri í hreyf­ingu en á sama tíma er bol­ur­inn stíl­legur og þægi­legur,“ segir hún.

Að end­ingu greinir Petra frá því að end­ur­skin sé í saumunum á fatn­aðnum sem sé hugsað til að sá sem klæð­ist sund­föt­unum sjá­ist í myrkri. „Lógóið mitt er tveir sæhestar með ein­hyrn­ings­horn sem spegla sig í hvor öðrum.“

Hægt er að styrkja verk­efnið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár