„Krakkar eru hugmyndasmiðir og framtíðin er þeirra“

Nú er hafin fjár­mögnun á Karolina Fund fyrir verk­efn­inu Hug­mynda­smiðir. Verk­efn­inu er ætlað að efla sköp­un­ar­gleði og frum­kvöðla­kraft barna á skemmti­legan hátt.

Svava Björk Ólafsdóttir
Svava Björk Ólafs­dóttir Mynd: Aðsend mynd/Karolina Fund

Svava Björk Ólafs­dóttir sér­fræð­ingur í nýsköpun, Ninna Margrét Þór­ar­ins­dóttir barna­menn­ing­ar­hönn­uður og Eva Rún Þor­geirs­dóttir rit­höf­undur standa á bak við verk­efnið Hug­mynda­smiðir en þær safna nú fyrir fjár­mögnun þess á Karolina Fund. Verk­efn­inu er ætlað að efla sköp­un­ar­gleði og frum­kvöðla­kraft barna á skemmti­legan hátt.

Hug­mynda­smiður verk­efn­is­ins er Svava Björk en hún hefur yfir 8 ára reynslu af því að fóstra frum­kvöðla á Íslandi í gegnum við­skipta­hraðla, lausn­a­mót, þjálfun við kynn­ingar og ráð­gjöf.

Í dag er aðal­fók­us­inn hennar á að styðja við stuðn­ings­um­hverfið í gegnum fyr­ir­tækið hennar RATA. Hún hefur meðal ann­ars stýrt verk­efnum á borð við Ratsjáin, Matsjáin, sinnt kennslu í nýsköpun í Háskól­anum í Reykja­vík og komið að stofnun og stýrt verk­efnum Norð­an­áttar sem er nýsköp­un­ar­hreyf­ing á Norð­ur­landi. Í gegnum verk­efnið Hacking Hekla hefur hún ferð­ast um landið og búið til vett­vang þar sem nýjar hug­myndir verða til og einnig haldið utanum leið­ar­vísi um vist­kerfi nýsköp­unar.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

Verk­efnið varð til á vinnu­stofu um vist­kerfi nýsköp­unar á lands­byggð­unum á Rifi í ágúst 2021. Svava Björk, sér­fræð­ingur í nýsköpun og stofn­andi RATA sat vinnu­stof­una.

„Það áttu sér stað mjög góðar umræður um vist­kerfið og hvað þyrfti að gera til að styðja við frum­kvöðla sem búa fyrir utan höf­uð­borg­ar­svæðið sem oft er tal­inn suðu­pottur nýsköp­un­ar­um­hverf­is­ins. Við fórum svo langt í umræð­unum að ræða um sjálfs­mynd ungu kyn­slóð­ar­innar og fundum að það þyrfti á ein­hvern hátt að efla frum­kvöðul­inn frá unga aldri, byrja strax að ýta undir skap­andi og lausn­a­mið­aða hugsun, sama hvar hann býr.

Út frá þessum vanga­veltum og umræðu um stöðu mennt­unnar í nýsköpun í grunn­skólum varð verk­efnið Hug­mynda­smiðir til. Við eigum ótrú­lega flottar fyr­ir­myndir frum­kvöðla um allt land og fyrsta skrefið er að draga þær fram í dags­ljósið og setja fram á skemmti­legan hátt fyrir krakka. Næsta skref verður svo að efla krakk­ana í gegnum fræðslu, verk­efna­vinnu og hug­mynda­sam­keppni,“ segir hún.

Segðu okkur frá þema verk­efn­is­ins

Verk­efnið sam­anstendur af eft­ir­far­andi þáttum:

  • Vefsíðan hug­mynda­smi­dir.is – Síða með fræðslu­efni um nýsköpun og átta mynd­böndum með við­tölum við íslenska frum­kvöðla.
  • Bókin Hug­mynda­smiðir – Bók fyrir krakka um íslenska frum­kvöðla. Viðtölin við frum­kvöðl­ana eru sett í sögu­form og lit­ríkar teikn­ingar. Bókinni fylgir vinnu­hefti þar sem krakkar geta unnið sínar eigin hug­myndir. Bóka­út­gáfan Bóka­beitan gefur bók­ina út.
  • Nýsköp­un­ar­keppni fyrir 1.-4. bekk – Árlega geta krakkar sent inn stutt mynd­bönd með eigin hug­myndum og tekið þátt í Nýsköp­un­ar­keppni Hug­mynda­smiða. Hluti ágóða seldra bóka, ásamt fram­lögum fyr­ir­tækja, rennur í sér­stakan hug­mynda­sjóð sem deilir út verð­launum til sig­ur­vegar­anna.

Tökur standa yfir þessa dag­ana og hefur teymið meðal ann­ars heim­sótt vís­inda­konu á Norð­ur­landi vestra, yngsta æðar­dúns­bónda lands­ins á Norð­ur­landi vestra, þara frum­kvöðul á Reykja­nesi og hjón sem fá ekki nóg af sterkum sósum á Aust­ur­landi.

Eitthvað sér­stakt sem þú vilt að komi fram um þitt verk­efni?

„Krakkar eru hug­mynda­smiðir og fram­tíðin er þeirra. Heim­ur­inn breyt­ist á ógn­ar­hraða og áskor­an­irnar sem mann­kynið stendur frammi fyrir virð­ast stærri með hverju árinu. Það er nauð­syn­legt ekki seinna en strax að skapa umhverfi þar sem krakkar vaxa úr grasi sem öfl­ugir frum­kvöðlar sem skapa lausnir við áskor­unum fram­tíðar. Hvernig getum við þjálfað lausn­a­mið­aða hugsun, sköp­un­ar­kraft, fókus og þraut­seigju sem eru ein­kenni frum­kvöðla og ann­arra braut­ryðj­enda? Við viljum reyna að skapa vett­vang sem gerir einmitt það,“ segir Svava Björk.

Hægt er að styrkja verk­efnið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár