Inniheldur uppskriftir til listsköpunar

Brynjar Helgason safnar fyrir útgáfu „list­ræns tíma­rits“ á Karolina Fund.

Brynjar Helgason kallar sig mynd-þeyti og hefur sett saman „list­rænt tíma­rit“ með því sem hann hefur verið að dunda sér við í tölv­unni síð­ast­liðin 5 – 10 ár. Áður hefur hann sýnt, og þá helst skúlp­túr eða inn­setn­ingar, bæði hér heima og erlendis. Þar hafa verið um að ræða bæði sam­sýn­ingar og einka­sýn­ingar.

Stafræn mynd­vinnsla er gegnum gang­andi í hans „vinnu“, eða dútli í gegnum tíð­ina. Oft er hann að end­ur­vinna verk bæði eftir sjálfan sig og aðra með þessu móti. Og þá gildir einu og sama um hvort heldur að höf­und­ur­inn er ein­hver fægur eða láti frá sér hug­myndir í nafn­leysi inter­nets­ins. „Ég geri mér mat úr þessu öllu saman,“ segir Brynjar sem safnar nú fyrir útgáfu tíma­rits­ins á Karolina Fund.

[adspot]Á kápu tíma­rits­ins, sem kall­ast „Ryan Airb“, stendur; „With recipes for make Art’’ eða „Inni­heldur upp­skriftir til list­sköp­unar’’. Um er að ræða 170+ blað­síðna tíma­rit með úrvali myndefnis.

Brynjar segir að hug­myndin hafi kviknað þegar hann sá staf­rænt tíma­rit sem lista­mað­ur­inn Darren Bader gerði. Þá hafi ljóstr­ast upp fyrir honum að það sem hann væri sjálfur að gera ætti heima á þessu formi. „Nokkrum ára­tugum fyrr var Andy Warhol í sinni útgáfu­starf­semi. Það hét eða heitir Interview. Ég er ekk­ert viss um að ég geri reyndar nokk­urn­tím­ann annað svona verk, frekar að ég ein­beiti mér að öðru. Reyndar hef ég gert annað skilt þessu sem er svona Warhol/Mall­ar­méan ljóð og mynd­verk sem heitir „Morg­un­blaðið lesið um kvöld“. Það er bara til á staf­rænu formi.“

Brynjar segir að það sé nokk­urs konar National geographic þema í verk­efn­inu. „Það er að segja að ég fæ lán­aðan gula ramman þeirra. Mig vant­aði eitt­hvað smá svona graf­ískt elem­ent sem myndi hnýta þetta saman í eina heild. Og svo er þetta nátt­úru­lega með vís­anir í ólíka menn­ing­ar­kima og líka mikið um dýr og plöntur og þannig. Bara hitt og þetta. Kannski er ég að draga upp hlið­stæður sem ólík vist­kerfi nátt­úr­unnar og vist­kerfi list­ar­innar. Mig vantar rétt rúmar 300.000 kr. til þess að prenta fyrsta upp­lag. Ég vona að sem flestir sjái sér fært um að leggja verk­efn­inu lið.“

Hægt er að styrkja verk­efnið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár