Fólk eigi að geta valið sína eigin meðferð

„Hestar eru ein­stak­lega næmir og eiga mjög auð­velt með að skynja fólk. Þeir bjóða upp á öruggt umhverfi fyrir ein­stak­linga til þess að vinna úr sínum vanda og sigr­ast á áskor­unum,“ segir Hafdís Bára sem nú safnar fyrir með­ferð­ar­verk­efni á Karolina Fund.

Hafdís Bára Ósk­ars­dóttir er 32 ára Hún­vetn­ingur með mikla rétt­læt­is­kennd. Hún ólst upp á Steiná í Svart­ár­dal þar sem dýr og þá helst hestar og hundar voru hennar bestu vinir. Með aldr­inum kom sú ástríða að vilja aðstoða alla sem þurftu aðstoð og þá sér­stak­lega tengt and­legri líðan og rétt­indum.

Frá því í fram­halds­skóla hefur það verið mik­ill draumur hjá Hafdísi að nýta dýr sem með­ferð­ar­úr­ræði, sér­stak­lega þar sem henni finnst vanta mun fleiri úrræði fyrir fólk til þess að vinna með sál­rænan vanda. Safnað verður á Karolina Fund fyrir bættum aðbún­aði í hest­húsi, reið­bún­aði fyrir hesta og skjól­stæð­inga, sem og nám­skeiðs­gjaldi fyrir vef­síðu­gerð.

[adspot]

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Ég hef frá því að ég man eftir mér haft gríð­ar­legan mik­inn áhuga á því að aðstoða fólk á einn eða annan hátt. Með árunum þró­að­ist þetta í að vilja veita öðrum stuðn­ing í sínum and­legum erf­ið­leikum. Ég sjálf leit­aði mikið til dýra fyrir slíkan stuðn­ing sem það gerði að verkum að áhugi minn að nýta dýr í með­ferð­ar­úr­ræði jókst með árunum. Sér­stak­lega þegar ég fór að taka meira eftir því úrræða­leysi sem er í sam­fé­lag­inu gagn­vart fólki með and­legan vanda.

Ég velti því oft fyrir mér þeirri hugsun, af hverju ekki að reyna að koma á fót geð­heilsu­m­ið­stöð með ólíkar með­ferðir? Með­ferðir sem hafa sýnt fram á góðan árangur með fólki en eru jafn­vel ekki á allra vörum í dag­legu lífi. Ég fór þá að leita eftir því að kom­ast í gegnum EAGALA-sam­tökin í Banda­ríkj­unum og fór á mitt fyrsta nám­skeið hjá þeim haustið 2019 og þarf að við­halda því skír­teini með reglu­legri end­ur­menntun,“ segir Hafdís Bára.

Segðu okkur frá þema verk­efn­is­ins

Meg­in­þema verk­efn­is­ins eru hest­arnir sem verða að fag­að­ilum í ferl­inu, að sögn Hafdísar Báru. „Fólk veltir því örugg­lega fyrir sér, af hverju hestar? Hestar eru ein­stak­lega næmir og eiga mjög auð­velt með að skynja fólk. Þeir bjóða upp á öruggt umhverfi fyrir ein­stak­linga til þess að vinna úr sínum vanda og sigr­ast á áskor­unum. Hest­arnir spegla hvernig ein­stak­lingum líður og það sem ger­ist er að hest­arnir bregð­ast við eftir því hvað þeir skynja. Það gefur okkur miklar upp­lýs­ingar til að vinna með.

Mikið af því sem við erum að gera í virkn­inni er að búa til ákveðna fram­setn­ingu á því hvað er að ger­ast í lífi fólks. Ein­stak­ling­arnir hafa þá tæki­færi til þess að fara í gegnum það, vinna með hest­unum, læra ákveðin mynstur og finna nýjar leiðir til þess að styrkja og efla líf sitt. Með­ferð­irnar eru skjól­stæð­ings­mið­aðar og er lögð mikil áhersla á að ein­stak­ling­arnir hafi bestu lausn­irnar fyrir sjálfa sig þegar þeir fá tæki­færið til þess að upp­götva þær,“ segir hún.

Hafdís Bára telur að á tímum and­legra erf­ið­leika þurfum við að opna hug­ann meira fyrir fjöl­breytt­ari með­ferðum til að vinna með and­lega heilsu og þá sér­stak­lega stjórn­völd og sveit­ar­fé­lög. „Við þurfum að hjálp­ast að til að gera kerfið og með­ferð­irnar aðgengi­legri fyrir almenn­ing. Enginn á að þurfa að bíða í heilt ár eða lengur eftir með­ferð því þá getur það jafn­vel verið orðið of seint. Fólk á að geta haft val um sínar með­ferðir og fundið út hvað hentar þeim. Það er eitt af því sem Von­ar­ljós vill stefna á, að geta boðið upp á ann­ars konar með­ferðir fyrir þá sem hafa jafn­vel ekki fundið það sem hentar þeim. Unnið verður með öðrum frá­bærum fag­að­ilum og búið til heild­rænt með­ferð­ar­sam­fé­lag.“

Hér er hægt að styrkja söfn­un­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár