„Öll list gerist í einhverju samhengi“

Syrpan Kyndil­berar dregur fram í dags­ljósið per­sónu­legan flutn­ing á íslenskum kvæðum og tví­söngvum og fangar hina lif­andi hefð í nátt­úru­legu umhverfi.

Linus Orri
Linus Orri Mynd: Karolina Fund

Linus Orri er tón­list­ar­maður og annar helm­ingur Vöku­fé­lags­ins ásamt Chris Foster. Hann er virkur í þjóð­laga­senu Reykja­víkur sem stjórn­ar­maður Kvæða­manna­fé­lags­ins Iðunnar, kór­stjóri Kvæða­kórs­ins og skipu­leggj­andi sam­spils­kvölda á Kex Hostel. Syrpan kyndil­berar er hans frumraun sem leik­stjóri.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Fyrir tveimur árum stofn­uðum við Chris Foster Vöku­fé­lagið til þess að halda utan um við­burði tengdum þjóð­lagatón­list og þjóð­dönsum en þá komu akkúrat tak­mark­an­irnar svo að það var ekki hægt að skipu­leggja neina við­burði. Þá datt okkur í hug að nota tím­ann í að gera mynd­bönd af fólk­inu sem við hefðum ann­ars sett upp á svið.

Þegar að ég fékk fyrst áhuga á þessum söng­hefðum Íslend­inga vissi ég ekki hvert ég átti að leita og gúgglaði mig inn á alls konar mis­gott efni og þess vegna hefur það verið mér ofar­lega í huga að bæta flór­una og auka þannig lík­urnar á því að fólk sem er að leita að kvæðum og rímum rambi inn á góð gæði,“ segir hann.

[adspot]

Segðu okkur frá þema verk­efn­is­ins

„Syrpan Kyndil­berar er stiklur sem fanga hinar lif­andi hefðir í sínu nátt­úru­lega umhverfi. Við vildum sýna flytj­endur í afslöpp­uðu umhverfi og í þetta skipti ein­beittum við okkur að tví­söng og kvæðum. Sjálfum finnst mér alltaf áhuga­verð­ast að sjá fólk í sínu eigin umhverfi því að öll list ger­ist í ein­hverju sam­hengi. Þetta er í raun por­trett af flytj­endum.

Það tók okkur ekki nema fjóra daga að ná söfn­un­ar­mark­miði okkar og það er ynd­is­legt að finna fyrir hversu mik­ill áhugi er á þess­ari fram­setn­ingu. Ég held að það séu margir sem eru for­vitnir um þjóð­lagatón­list sem vita bara ekki hvert þau eiga að beina áhug­anum þannig að okkar hlut­verk er bara að skapa þann vett­vang. Ég hlakka bara til að sjá sem flesta þann 14. maí klukkan 16:00 þegar við höldum fögnuð og frum­sýn­ingu í Bíó Paradís!“ segir hann að lokum.

Miðar eru í boði á söfn­un­ar­síð­unni á Karolina Fund.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár