Vill gefa til baka til lands sem hann hefur elskað svo mikið

Garð­yrku­maður frá Bret­landi féll fyrir Íslandi þegar hann kom fyrst til lands­ins og langar nú til að gefa til baka. Hann hyggst stofna fyr­ir­tækið Birch Tree Yurts og safnar fyrir því á Karolina Fund.

Birch Tree Yurts er hug­mynd sem Adrian Walder, 52 ára garð­yrkju­manni frá Bret­landi, fékk þegar hann varð ást­fang­inn af Íslandi árið 2019 eftir ferða­lag með syni sínum.

Markmið hans er að útvega ferða­mönnum skemmti­lega og hag­kvæma orlofs­gist­ingu. Áhersla er lögð á umhverfið en hann ætlar að reka fyr­ir­tækið sem „óhagn­að­ar­drifið“ og nota hagn­að­inn til að fjár­magna skóg­rækt­ar­starf um allt Ísland. Hann vill jafn­framt takast á við þau vanda­mál sem skap­ast hafa af völdum fjölda­túrisma. Adrian safnar nú fyrir verk­efn­inu á Karolina Fund.

[adspot]

Hvernig kvikn­aði hug­myndin að þessu verk­efni?

„Hug­myndin þró­að­ist í raun á nokkrum árum en ég hef alltaf elskað að vera úti og búa í sveit­inni. Eftir fyrstu ferð­ina mína til Íslands í hús­bíl gat ég ekki hætt að hugsa um landið og hvernig mér leið eins og ég ætti hér heima. Ég byrj­aði að skipu­leggja aðra lengri ferð en þá var heim­ur­inn á hvolfi vegna COVID. Ég hélt áfram að rann­saka Ísland: Ég horfði á YouTube-mynd­bönd, las blogg og svo fram­vegis – og ég komst fljótt að því að ferða­þjón­ust­unni á Íslandi fylgir nokkur vanda­mál. Ég horfði einnig á breskan sjón­varps­þátt sem heitir „New Lives in the Wild“ en nokkrir af þátt­unum voru teknir upp á Íslandi og sýndu hvernig „venju­legt“ fólk hefði gef­ist upp á „9 tíl 5“-rútínu og byrjað nýtt líf til að lifa ein­fald­ari lífs­stíl í sátt við umhverfi sitt. Þetta varð þess vald­andi að hug­myndin um Birch Tree Yurts varð til.

Ég er síðan nýlega kom­inn aftur úr lengra ferða­lagi en ég fór yfir 2.600 kíló­metra um allt Ísland. Þessi ferð hefur aðeins end­ur­vakið löngun mína til að láta þetta ger­ast,“ segir hann.

Segðu okkur frá þema verk­efn­is­ins?

Adrian segir að þemað sé í raun­inni frekar ein­falt og veiti fólki tæki­færi til að gista á skemmti­legum stað með áherslu á umhverfið. „Ég valdi „yurts“ af nokkrum ástæðum; þeir eru öðru­vísi en gengur og ger­ist, hafa minni áhrif á umhverfið og frá við­skipta­legu sjón­ar­miði munu þeir „kynna“ sig í gegnum sam­fé­lags­miðla. Fólk elskar að birta myndir og tala um ein­staka staði sem það hefur dvalið á. Ég hef tekið eftir því und­an­farin tvö ár að þetta eigi sér­stak­lega við þegar kemur að Íslandi.“

Er eitt­hvað annað sér­stakt sem þú vilt segja um verk­efnið?

„Já, eins mikið og þessi hug­mynd snýst um ást mína á Íslandi og löngun mína til að búa og starfa þar þá er það miklu meira en það – ég vil reka verk­efnið sem „óhagn­að­ar­drif­inn“ sjóð að lokum. Eftir rekstr­ar­kostnað mun ég gefa 100 pró­sent af tekjum til styrktar skóg­ræktar- og skóg­rækt­ar­verk­efna um allt Ísland. Ég er nú þegar orð­inn opin­ber sam­starfs­að­ili One Tree Planted, stofn­unar sem ann­ast verk­efni um allan heim, þar á meðal á Íslandi. Fyrir mér snýst þetta verk­efni ekki um að ég þéni pen­inga fyrir sjálfan mig heldur að gefa til baka til lands sem ég hef elskað mjög mikið.“

Hér er hægt að styrkja söfn­un­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár