Markmiðið að auka skilning á veruleika kvenna af erlendum uppruna á Íslandi

Chanel Björk, Elinóra og Elínborg safna nú á Karolina Fund fyrir bók­inni Hennar rödd: Sögur kvenna af erlendum upp­runa á Íslandi.

Chanel Björk Sturludóttir, Elinóra Guðmundsdóttir og Elínborg Kolbeinsdóttir.
Chanel Björk Sturlu­dóttir, Elinóra Guð­munds­dóttir og Elínborg Kol­beins­dóttir. Mynd: Aðsend mynd/Atli Freyr Steinsson

Hennar rödd og Vía útgáfa gefa út bók­ina Hennar rödd: Sögur kvenna af erlendum upp­runa á Íslandi. Nú stendur yfir söfnun á Karolina fund fyrir útgáfu­kostn­aði bók­ar­innar.

Í bók­inni verður fram­lag kvenna af erlendum upp­runa til íslensks sam­fé­lag heiðrað ásamt því að skapa umræður og auka skiln­ing íslensk sam­fé­lags á stöðu kvenna af erlendum upp­runa sem búa á Íslandi og upp­lifun þeirra af íslensku sam­fé­lagi.

Elinóra Guð­munds­dóttir, rit­stjóri Vía, Chanel Björk Sturlu­dóttir og Elínborg Kol­beins­dóttir, stofn­endur Hennar Raddar eru rit­stjórar bók­ar­innar. Hennar rödd eru félaga­sam­tök sem starfa með það að mark­miði að auka vit­und meðal almenn­ings á stöðu kvenna af erlendum upp­runa í íslensku sam­fé­lagi. Vía er vef­mið­ill sem sér­hæfir sig í sam­fé­lags­rýni og miðlun fjöl­breyttra sjón­ar­miða í jafn­rétt­is­málum.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

Chanel segir að móðir hennar, sem sjálf er kona af erlendum upp­runa og bjó á Íslandi í mörg ár, hafi hafið skrif á bók um konur af erlendum upp­runa á Íslandi. „Hún heill­að­ist af fram­bæri­legum konum sem hafði tek­ist að koma sér fyr­ir í ís­lensku sam­fé­lagi oft án þess að þekkja nokk­urn ann­an en maka við kom­una til lands­ins. Hún heill­að­ist af bók Amelíu Líndal sem gefin var út árið 1962 sem lýsir lífi kvenna af er­lend­um upp­runa á Íslandi og vildi skrifa fram­hald af þeirra bók og fór af stað með verk­efnið árið 2009 á­samt WO­MEN sam­tök­unum. Ekki virt­ist vera mik­ill á­hugi meðal út­gef­anda á mál­efn­inu á þessum tíma og var bókin aldrei gefin út.“

Elínborg greinir frá því að þær trúi því að meiri áhugi sé fyrir mál­efn­inu í dag en á sínum tíma. Fjöl­breyti­leiki í sam­fé­lag­inu fari vax­andi með hverju árinu og sé fólk meira með­vitað um það og til­búið að kynna sér mál­efni jað­ar­hópa.

Elinóra seg­ist hafa fengið hug­mynd um að skrifa sögur um konur af erlendum upp­runa og hafði hún sam­band við Chanel og Elín­borgu um vorið 2020. „Þar sem þær voru sjálfar að plana að skrifa bók um sama efni, og því var tíma­setn­ingin full­komin og við hófum sam­starf við bók­ina. Sam­starfið hefur gengið ótrú­lega vel og sam­einar hug­sjónir beggja aðila, Vía og Hennar Rödd, sem stefna að vit­und­ar­vakn­ingu um mál­efni jað­ar­hópa og jafn­ara, upp­lýst­ara og virð­ing­ar­rík­ara sam­fé­lagi,“ segir hún.

Segið okkur frá þema verk­efn­is­ins

Chanel útskýrir að í bók­inni komi fram sögur 36 kvenna af erlendum upp­runa. Viðtöl fyrir bók­ina hafi verið tekin haustið 2020 og þeirra sögu verði miðlað til les­enda með áhrifa­ríkum en hráum frá­sögnum, myndum, ljóðum og öðru efni úr einka­safni þátt­tak­enda.

„Bókin er fjöl­radda frá­sögn og eiga við­mæl­endur rætur sínar að rekja til ótal­margra landa. Sögurnar eru bæði á íslensku og ensku svo að þær nái til fleiri í sam­fé­lag­inu. Gaman er að segja frá því að leitað var til almenn­ings um til­nefn­ingar á konum sem hafa auðgað sam­fé­lagið með ein­hverjum hætti og við­brögðin fóru fram úr okkar björt­ustu vonum,“ segir hún.

Elínborg segir að með bóka­út­gáf­unni vilji þær auka sýni­leika kvenna af erlendum upp­runa sem er sívax­andi hópur á Íslandi og vald­efla með því að skapa vett­vang þar sem röddum þeirra sé gef­inn hljóm­grunnur sem áður hafi verið ábóta­vant. „Jafn­framt skap­ast ný þekk­ing hvað varðar per­sónu­lega upp­lifun kvenna af erlendum upp­runa sem er mik­il­væg við­bót við þær rann­sóknir sem til eru um þennan sam­fé­lags­hóp. Markmið okkar er að auka skiln­ing á veru­leika kvenna af erlendum upp­runa á Íslandi ásamt því við­ur­kenna fram­lag þeirra til sam­fé­lags­ins.“

Hvernig hefur verk­efnið gengið?

Elinóra segir að þeim hafi gengið vel með verk­efnið en í upp­hafi verk­efn­is­ins hafi verið tekin ákvörðun um að gefa bók­ina út á eigin vegum.

„Fullt vald á rit­stjórn­ar­ferl­inu og mögu­leik­ann á að gefa til baka til sam­fé­lags kvenna af erlendum upp­runa á Íslandi ef bókin skilar hagn­aði eru helstu for­send­urnar fyrir því að bókin verði gefin út með þessum hætti. Vert að nefna að margt hæfi­leik­a­ríkt fólk hefur lagt okkur lið frá því að verk­efnið hófst. Kaja Sigvalda tekur ljós­myndir fyrir bók­ina og Kolbeinn Jara Hamíðs­son ásamt Þorgeiri Blöndal sjá um hönn­un­ina. Ásdís Sól Ágústs­dóttir sér svo um þýð­ingu bók­ar­innar.

Verk­efnið hefur jafn­framt hlotið styrki úr Frum­kvöðla­sjóði Íslands­banka, Sam­fé­lags­sjóði Eflu og Borg­ar­sjóði mann­rétt­inda-, nýsköp­unar- og lýð­ræð­is­ráðs Reykja­vík­ur­borgar. Hins vegar þurfum við að ná mark­miði okkar á Karolina fund til að geta greitt fyrir útgáfu­kostnað bók­ar­innar. Við hvetjum því fólk til þess að styrkja verk­efnið og í leið­inni tryggja sér bók á for­sölu­verði,“ segir hún að lokum.

Hér er hægt að styrkja og taka þátt í verk­efn­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár