„Börn eiga fyrst og fremst að leika sér og hlæja – ekki þjást og gráta“

Mynd­list­ar­mað­ur­inn Jón Magn­ús­son safnar fyrir prentun á mynd­list­ar­bók­inni „Á meðan ...“ sem er til styrktar starfi Unicef í Úkraínu.

„Á meðan ...“ er mynd­list­ar­bók með mál­verkum Jóns Magn­ús­sonar og orðum skálds­ins Diddu Jóns­dóttur. Mál­verkin eru gerð eftir frétta­myndum frá stríðs­hrjáðum löndum. „Að gera und­ir­bún­ings­vinn­una fyrir þetta verk­efni var þung­bært en hug­myndin mik­il­væg og ég var stað­ráð­inn í að klára verk­efnið fyrir börnin. Eftir að hafa skoðað þús­undir ljós­mynda urðu 25 fyrir val­inu og mál­verk eftir þeim fara í bók­ina,“ segir Jón. „Texti Diddu er hróp­andi and­hverfa þeirra enda hvers­dags­leiki okkar stundum inn­an­tómt hjóm.“

Jón er með BFA Bachelor-gráðu í mál­verki frá Parsons School of Design París frá árinu 1995 og diploma í nútíma mál­ara­list frá Mynd­list­ar­skóla Reykja­víkur frá 2018. Hann hefur haldið einka­sýn­ingar og sýnt á sam­sýn­ingum.

Söfnun fyrir prentun á mynd­list­ar­bók­inni „Á meðan ...“ er til styrktar starfi Unicef í Úkraínu en hægt er að styðja verk­efnið á Karolina Fund.

Hvernig kvikn­aði hug­myndin?

„Hug­myndin kvikn­aði þegar ég sá frétta­ljós­mynd af látnu barni flótta­manna á strönd Grikk­lands. Ljós­myndin var í öllum fréttum og mér ofbauð. Ég sá rautt og hugs­aði með mér: „Hvað get ég gert til að hjálpa?“ Þetta var fyrir 4 árum. Þá ákvað ég að gera bók til styrktar Unicef og mál­verkin ættu að vera eftir frétta­myndum af börnum frá stríðs­hrjáðum löndum.

Ég byrj­aði á að gúggla „wounded child in Syria“ og það sem birt­ist mér var ólýs­an­lega hræði­legt, engar hryll­ings­myndir kom­ast nálægt því að birta þann ömur­lega raun­veru­leika sem börn í stríðs­hrjáðum löndum lifa við,“ segir hann.

Jón segir að það hafi verið þung­bært að gera und­ir­bún­ings­vinn­una fyrir verk­efnið. „Ég hef sjálfur barist við and­lega áþján en það fölnar miðað við það sem þessi börn hafa gengið í gegnum. Börn eiga fyrst og fremst að leika sér og hlæja, ekki þjást og gráta. Þegar ég byrj­aði að mála sá ég að óhugn­að­ur­inn síað­ist enn í gegnum mál­verkin þó mik­ill munur sé á ljós­mynd og mál­verki. Hvað gat ég gert til að reyna að hugga þau?

Ég ákvað að setja fugla, dýr og leik­föng inn á verkin og ein­hvern veg­inn settu þau fílter á hörm­ung­arnar og gerðu áhorf mögu­legt. Berg­steinn Jónsson fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Unicef veitti mér aðgang að mynda­banka Unicef og eru nokkrar myndir þaðan. Eftir að hafa skoðað þús­undir ljós­mynda urðu 25 fyrir val­inu og mál­verk eftir þeim fara í bók­ina,“ segir hann.

Hér er hægt að leggja söfn­un­inni lið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár