Átti erfitt með að orða sorgina og ástina án ljóða

Kristín Snorra­dóttir ætlar að gefa út ljóða­bók með völdum ljóðum eftir eig­in­mann sinn, sem lést í sept­em­ber síð­ast­liðnum. Hún safnar fyrir útgáf­unni á Karolina Fund.

Lífs­hlaup hjón­anna Baldvins og Krist­ínar hefur verið langt í frá hefð­bundið, en mik­ill meiri­hluti þeirra tíma saman ein­kennd­ist af bar­áttu Baldvins við hinn ill­víga sjúk­dóm sem krabba­mein er. Þrátt fyrir þann skugga sem sjúk­dóm­ur­inn varp­aði á líf þeirra hjóna tókst þeim að eiga dýr­mætar stundir saman og breyta ógnum í tæki­færi og upp­lif­anir. Baldvin féll frá eftir erf­iða bar­áttu þann 10. sept­em­ber síð­ast­lið­inn og var ein af óupp­fylltum óskum hans að gefa út bók með völdum ljóðum sem hann hafði samið í gegnum árin. Eft­ir­lif­andi eig­in­kona Baldvins, Kristín Snorra­dóttir, stefnir á að láta þann draum ræt­ast með góðri hjálp, en söfnun hefur verið sett í gang á Karolina Fund af því til­efni.

Hún segir að þau Baldvin hafi verið saman í 29 ár og á 26 af þeim var krabba­mein þriðji aðili í hjóna­band­inu og eitt af stóru verk­efnum lífs­ins. „Baldvin minn var rólynd­is­maður og maður fárra orða, en það sem hann sagði var fullt af visku. Hann átti auð­veld­ara með að tjá sig í gegnum ljóð og gerði það snilldar vel. Á okkar 29 árum var það partur af til­ver­unni að finna bréfs­snifsi þar sem hann hafði hripað niður hugs­anir sínar og til­finn­ingar í ljóðum.

Krabba­meinið tók toll og hann þekkti svo vel myrkan heim þung­lyndis og kvíða, að mörgu leiti skrif­aði hann sig frá þung­lynd­inu og kvíð­anum og það má ber­sýni­lega sjá í bók­inni. Einnig lýsa ljóðin því svo vel hvernig svart­nættið leggst yfir og allt virð­ist svo von­laust.“

Kristín segir að sorgin sem Baldvin upp­lifði þegar elsti sonur þeirra leidd­ist út í heim fíkni­efna­neyslu og ástin vera eitt­hvað sem hann átti erfitt með að orða án ljóða. „Sonurinn sem var hans þrátt fyrir að hann hafi fylgt kon­unni inn í líf hans, þá fjög­urra ára gam­all. Við bætt­ust tvö önnur börn dóttir og sonur, en öll áttu jafnan stað í hjarta hans og svo barna­barnið þegar hann kom í heim­inn.

Baldvin starf­aði sem lög­reglu­maður og í starfi sínu sá hann ýmis­legt, en hann dæmdi engan því fyrir honum voru menn jafnir í augum almættis. Baldvin var alltaf and­lega sinn­aður, trúði á eitt­hvað annað og meira en þessa einu jarð­vist. Hann trúði á ljósið í hjörtum mann­anna, allra manna líka ógæfu­manna.“

Í seinni tíð leyfði Baldvin sér að hleypa út þess­ari and­legu hlið, lærði reiki og spil­aði á Gong og krist­als­skálar. „Með því veitti hann fólki hljóð­heilun, en ávallt var ljóð með í för og fólk kom aftur og aftur til okkar hjóna í hjartanær­andi stundir á sunnu­dögum, þar sem ég leiddi slökun og hann spil­aði og las ljóð.

Baldvin ætl­aði að gefa út þessa bók en því miður varð hann undir í barrátt­unni við krabba­meinið þann 10. sept­em­ber 2021, þremur dögum fyrir 59 ára afmælið sitt. Því kom ekk­ert annað til greina en að eft­ir­lif­andi ekkja léti draum­inn ræt­ast. Verk­efnið snýst því um að heiðra minn­ingu lát­ins eig­in­manns og láta draum­inn hans ræt­ast.

Draumar geta ræst og allir ættu að trúa því.“

Hægt er að styrkja verk­efnið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár