Barnaból – vöggusett sem fjölskyldudýrgripur

Árið 2010, þegar allir voru á kafi að bjarga Íslandi með prjóna­skap og slát­ur­gerð, fékk Margrét Birna Kol­brún­ar­dóttir hug­mynd. Hún safnar nú fyrir fram­kvæmd þeirrar hug­myndar á Karolina Fund.

Margrét Birna Kol­brún­ar­dóttir býr í sveit á Snæ­fells­nesi. Hún er sagn­fræð­ingur að mennt og mikil áhuga­kona um útsaum. Hún safnar nú fyrir útgáfu Barna­bóls á vöggu­settum sem útsaum­s­pakka með garni og leið­bein­ingum, á Karolina Fund.

Margrét segir hug­mynd­ina að verk­efn­inu hafa kviknað árið 2010 þegar allir voru á kafi að bjarga Íslandi með prjóna­skap og slát­ur­gerð. „Ég var á útsaums­nám­skeiði þar sem við vorum hvött til að skapa eitt­hvað úr útsaumnum og þá kom vöggu­settið fljótt upp í hug­ann, bæði vegna fjölg­unar í fjöl­skyld­unni og ekki síst vegna þess að útsaumuð vöggu­sett eiga það til að ganga milli kyn­slóða og verða því fólki mjög kær. Útsaumur er yfir­leitt ekki ódýr og því skiptir máli að það sem eftir liggur sé fyr­ir­hafn­ar­innar virði.“

Vöggu­settin eru áprentuð með vöggu­vísum sem hafa verið mynd­skreyttar af Elínu Elísa­betu Ein­ars­dóttur. „Við eigum svo mikið af skemmti­legum vöggu­vísum og bænum sem gaman er að leika sér með, t.d. ”Leiddu mína litlu hendi” sem von­andi á eftir að rata á vöggu­sett. Seinna meir er draum­ur­inn að koma með “Ég læt sem ég sofi en samt mun ég vaka” fyrir sér­stak­lega óþæg börn. “Úti bíður and­lit á glugga” hefur líka verið nefnt við mig en það verður nú senni­lega ein­hver bið eftir því.“

[adspot]Það sem gefur verk­efn­inu sér­stöðu, að sögn Mar­grétar, er garnið. „Þegar ég var að byrja að þróa vöggu­settin var mér gefið mikið af árórug­arni frá gam­alli konu sem hafði verið að sanka að sér garni í 60 ár en var þarna hætt að geta saumað. Með alla þessa liti fyrir framan mig þá fór ég að prófa að blanda þeim saman og við það mynd­að­ist skemmti­leg dýnamík eða hreyf­ing. Í vöggu­sett­unum eru alltaf tveir litir saman í nál­inni þar sem annar gefur birtu og hinn skugga. Það hefur verið mikil áskorun að finna út hvaða litir fást til að eiga sam­band og í raun­inni er hægt að halda því enda­laust áfram. Svo má líka nefna umbúð­irnar því að vöggu­settin koma í bómull­ar­poka sem er áprent­aður og það má sauma í hann líka. Ekkert fer því til spillis.“

Það má að lokum geta þess að vöggu­settin frá Barna­bóli verða á Handverk og hönnun í Ráðhúsi Reykja­víkur frá 18. til 22. nóv­em­ber.

Hægt er að styrkja verk­efnið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár