Bresk myndlistarkona málaði eitt hundrað málverk af eldgosinu í Fagradalsfjalli

Eldgosið í Fagra­dals­fjalli sem hófst í vor hefur vakið alls­konar vær­ingar hjá fólki. Amy Alice Riches ákvað að mála eitt mál­verk á dag af því í 100 daga. Hún safnar nú fyrir útgáfu bókar með verk­unum.

Amy Alice Riches er mynd­list­ar­kona frá Bret­landi en hefur búið á Íslandi síð­ast­liðin þrjú ár, hel­tekin af íslensku lands­lagi sem hún elskar að mála. Hún vinnur sem graf­ískur hönn­uður og mynd­list­ar­kona, þar sem hún sér­hæfir sig í lands­lags­málun, bak­grunns­hönnun og mynd­skreyt­ingu. Amy leggur áherslu á að vinna úti í nátt­úr­unni þar sem hún getur málað fyr­ir­mynd­irnar í eðli­legu umhverfi. Hún nýtur þess að mála, bæði staf­rænt og með olíu­máln­ingu - helst með góðan tebolla sér við hlið. Síð­ast­liðið ár setti hún sér það mark­mið að mála 100 mál­verk af eld­gos­inu í Fagra­dals­fjalli.

Amy segir hug­mynd­ina hafa fæðst 20. mars 2021, dag­inn eftir að eld­gosið í Fagra­dals­fjalli hófst. „Ég sat límd við vef­mynda­vél­ina og var að horfa á fyrsta eld­gosið mitt. Ég varð svo hrifin af því að ég ákvað að mála eitt mál­verk á dag af eld­gos­inu á meðan á því stæði, eða a.m.k. í 100 daga, ef það myndi standa lengur.“

[adspot]Þema verk­efn­is­ins er túlkun á eld­gos­inu í Fagra­dals­fjalli í gegnum mál­verk. „Til­gang­ur­inn var að fylgja eld­gos­inu eftir og sjá hvernig það stækk­aði og breytt­ist og sjá hvernig hvert mál­verk gat verið ein­stakt þar sem hver dagur bauð upp á nýja mögu­leika, með breyt­ingu á gos­inu, öðru­vísi veðri og mis­mun­andi birtu! Fyrstu 50 mál­verkin mál­aði ég sam­hliða eld­gos­inu og spannar það fyrstu 50 dag­ana frá 20. mars - 8. maí. Upp frá þeim tíma­punkti fór eld­gosið að líta mjög svipað út dag frá degi. Vegna þess valdi ég mál­verk 51-100 eftir áhuga­verð­ustu dög­unum frekar en eina á dag. Til að skilja eld­gosið betur fór ég tvisvar upp að gos­s­töðv­unum til að berja þau augum og mála á staðnum. Hin verkin eru máluð með hjálp vef­mynda­véla RÚV og MBL.“


Bókin sem Amy er að safna fyrir á Karolina Fund er gerð til þess að fagna því að hún hafi klárað öll 100 mál­verkin. „Þetta er fyrsta bókin mín og er til­gangur bók­ar­innar fyrst og fremst að fagna áfang­anum og deila mál­verk­unum með heim­inum. Söfnunin er til að safna nógu mik­illi upp­hæð fyrir prent­kostnað en ekki til gróða.

Mál­verkin voru flest máluð í olíu­máln­ingu, í skissu­bók að stærð A5. Þessi mál­verk verða prentuð í bók­inni í fullum lit þar sem hægt er að sjá ótrú­lega fram­þróun eld­goss­ins með mínum augum. Einnig er hægt að sjá nokkrar myndir „bak­við tjöldin" og hvernig aðferð ég nota til að mála.“

Hún segir bók­ina til­valda jóla­gjöf fyrir hvaða eld­gosa­á­huga­mann og mynd­list­arunn­anda sem er.

Hér er hægt að skoða verk­efnið og taka þátt í söfn­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár