„Okkur langaði svo óendanlega mikið til að geta glatt aðra“

Syk­ur­verk Café er kaffi­hús og veislu­þjón­usta á Akureyri en eig­endur þess safna nú fyrir stærra hús­næði á Karolina Fund.

Karolína Helenudóttir, Helena og Þórunn Jóna.
Karolína Hel­enu­dóttir, Helena og Þórunn Jóna. Mynd: Aðsend mynd

Karolína Hel­enu­dóttir er einn af eig­endum Syk­ur­verks. Hún hefur alla tíð haft mik­inn áhuga á bakstri og köku­skreyt­ingum. Hún hefur haft ein­stak­lega gaman að því að búa til kökur með mömmu sinni og systur, sem einnig eru eig­endur Syk­ur­verks, öll sín upp­vaxtar ár sem leiddi til þess að þær ákváðu að opna saman veislu­þjón­ustu og kaffi­hús sem hefur fengið gríð­ar­góðar við­tökur. Þær bjóða upp á fjölda af alls kyns spenn­andi kökum, makkar­ónum og cupcakes sem og klass­ískar brauðtertur, skonsutertur, rjóma- og mar­engstertur svo dæmi séu tekin.

Þær leggja mest upp úr veislu­þjón­ust­unni sem eru aðal­lega veislukökur s.s. fyrir afmæli, brúð­kaup, ferm­ingar o.þ.h. Allar kök­urnar eru svo sér­sniðnar eftir óskum hvers og eins, hvað varðar útlit sem og bragð. Allt sem þær bjóða upp á er fram­leitt á staðnum, með þeirra eigin upp­skriftum. Nú þurfa þær að stækka vinnu­svæði, veit­inga­sal, tæki og tól sem og bæta aðgengi til muna og safna þær því fyrir nýju hús­næði á Karolina Fund.

[adspot]

Hvernig vakn­aði hug­myndin af Syk­ur­verki?

„Hug­myndin byrj­aði í koll­inum á mér, ég byrj­aði að spreyta mig í flókn­ari köku­skreyt­ingum rétt áður en að fyrsta dóttir mín fædd­ist. Mig lang­aði læra að gera fal­legar kökur fyrir kynja­veislur og afmæl­is­veislur fram­tíð­ar­innar, þar sem að mamma hafði alltaf gert allar afmæliskökur sama hvað var beðið um af okkur systkin­unum, hvort sem það var snáka­spil, Svampur Sveins­son eða jafn­vel Sylvía Nótt! Mamma setti sko ekk­ert fyrir sig í þessu og það lang­aði mig að geta gert fyrir mín börn líka. Við syst­urnar munum alltaf eftir þeirri til­finn­ingu og hreinni gleði sem fal­leg afmæliskaka skilar af sér og okkur lang­aði svo óend­an­lega mikið til að geta glatt aðra með þess­ari ynd­is­legu til­finn­ingu,“ segir Karolína.

Hvers vegna ákváðum þið að leita til Karolina Fund?

„Syk­ur­verk varð að veru­leika árið 2020 í gömlu hús­næði með mjög litlu eld­húsi, það gekk mjög vel hjá okkur til að byrja með en þegar orðið fór að ber­ast með fal­legu og bragð­góðu kök­unum okkar, þá varð eft­ir­spurnin meiri og meiri þannig að okkur fannst við ekki geta athafnað okkur lengur á þessu litla svæði sem við erum með á staðnum þar sem við erum núna. Hug­mynd­irnar eru svo ótrú­lega margar en til þess að geta boðið upp á breið­ara úrval og einnig til að geta gert kökur fyrir alla þá sem þess óska, sáum við fram á það að við þyrftum hrein­lega að flytja okkar rekstur í nýtt hús­næði.

Með því að opna nýjan stað verður aðgengið betra, við getum tekið við fleiri kökupönt­unum og þurfum þar af leið­andi ekki að vísa jafn mörgum frá þegar fólk langar að fá köku frá okkur sökum pláss­leysis. Þar sem ekki er mikið um laus hús­næði með full­búnu atvinnu­eld­húsi, höfum fengið nýtt hús­næði til leigu sem þarf nú að inn­rétta sem eld­hús. Það er afar kostn­að­ar­samt og þess vegan ákváðum við að leita til fólks­ins til að aðstoða okkur að láta draum­inn verða að veru­leika. Kost­irnir við að opna nýjan stað eru margir: Snyrti­legra hús­næði með betri aðkomu, stórt og gott úti­svæði fyrir gesti til að njóta veit­inga úti í sól­inni, stærra eld­hús svo við getum annað eft­ir­spurn, okkar vin­sæla crêpes verður hægt að fá allan dag­inn, aukið fram­boð á til­búnum kökum og margt fleira. Okkur finnst svo ótrú­lega gaman að gleðja bæj­ar­búa með fal­legum og góðum kökum. Við yrðum mjög þakk­látar ef þið vilduð hjálpa okkur að standa straumi við flutn­ings­kostnað þannig að við getum haldið því áfram,“ segir hún að lokum.

Hér er hægt að taka þátt í söfn­un­inni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár