Langar að láta draum móður sinnar verða að veruleika

Fjóla Sigríður safnar fyrir upp­skrift­ar­bók en nýlega missti hún móður sína úr krabba­meini. Í mörg ár töl­uðu þær mæðgur saman um að gefa út slíka bók sem yrði frá­brugðin öllum öðrum bókum.

Fjóla Sigríður
Fjóla Sigríður Mynd: Aðsend mynd

Fjóla Sigríður er 31 árs kona úr Skaga­firði búsett með mann­inum sínum í Kópavogi. Nú skrifar hún sína fyrstu bók og safnar fyrir á Karolina Fund. Hún missti nýverið móður sína úr krabba­meini. Í mörg ár töl­uðu þær mæðgur saman um að gefa út upp­skrif­ar­bók sem væri frá­brugðin öllum öðrum bókum og er Fjóla að vinna í því núna að skrifa fal­lega per­sónu­lega og öðru­vísi upp­skrift­ar­bók eftir móður sína.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Hug­myndin vakn­aði fyrir mörgum árum, en mamma hand­skrif­aði upp­skriftir í stíla­bók og safn­aði. Hún bjó til margar sjálf og við töl­uðum oft um það að hún myndi gefa út sína eigin upp­skrift­ar­bók, en vegna veik­inda var aldrei hægt að fara í það að gera bók.“

[adspot]

Segðu okkur frá þema verk­efn­is­ins

„Ég ætla að láta þessa bók verða að veru­leika en hún verður frá­brugðin öllum öðrum upp­skrif­ar­bókum. Bókin mun inni­halda hand­skrif­aðar og prent­aðar upp­skriftir eftir mömmu ásamt ýmsum sögum og fróð­leik inn á milli. Bókin verður á per­sónu­legum nótum og gefur inn­sýn inn í líf krabba­meins­sjúk­lings sem komst í gegnum svo margt með því að skapa í eld­hús­inu. Það verður líf og húmor í bók­inni því mamma hafði alltaf húmor og ég veit að margir hefðu gaman af því að lesa hana.“

Fjóla Sigríður ætlar að láta hluta af ágóð­anum renna til göngu­deildar krabba­meins­sjúkra á Akureyri en þar var móðir hennar meira og minna síð­ustu ár í með­ferðum.

„Mig langar að láta draum mömmu verða að veru­leika og um leið heiðra minn­ingu hennar. Ég ætla mér að gera þessa bók í hennar anda og eins og hún var búin að tala sjálf um. Ég yrði svo rosa­lega þakk­lát fyrir það að fá ykkar stuðn­ing og um leið þakka ég fyrir allan stuðn­ing­inn.“

Hér má styrkja verk­efnið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár