Lögin sem glötuðust – Sönglagakeppni SKT 1953

Árið 1953 sendi Eggert Thorberg Kjart­ans­son fimm lög í danslaga­keppni SKT, sem skemmti­klúbbur templ­ara stóð fyrir. Lögin vor útsett fyrir keppn­ina, en svo illa vildi til að nót­urnar glöt­uð­ust. Nú, tæpum 70 árum síðar, hafa þau verið útsett og tekin upp.

Árið 1953 sendi Eggert Thorberg Kjart­ans­son fimm lög í danslaga­keppni SKT, sem skemmti­klúbbur templ­ara stóð fyrir. Lögin vor útsett fyrir keppn­ina, en svo illa vildi til að nót­urnar glöt­uð­ust. Nú, tæpum 70 árum síðar, hafa þau verið útsett og nýr texti sam­inn við þrjú þeirra. Lögin voru tekin upp í Stúdíó Sýrlandi og Hljóð­rita. Hægt er að nálg­ast ein­tak á vef­síðu Karolina­fund.

„Pabbi, Eggert Thorberg, sendi fimm lög í danslaga­keppni SKT árið 1953,“ segir Lilja Egg­erts­dóttir. „Kröf­urnar voru að höf­undar þyrftu að senda inn fimm lög í formi dansa; tangó, rúmbu, sömbu og vals. Pabbi fékk aðstoð við útsetn­ing­arnar á sínum tíma, en nót­urnar að lög­unum glöt­uð­ust. Kjartan bróðir minn sem er einnig tón­list­ar­maður, skrif­aði upp lagið „Í kvöld“ eftir söng pabba, en það er eina lagið sem pabbi samdi texta við.“

Hún segir að tæpum sjö­tíu árum síðar hafi hann sungið önnur þrjú lög fyrir hana og hún skrifað upp nót­urnar að þeim. Fimmta lagið sem faðir hennar sendi inn í keppn­ina er gleymt. „Ég útsetti einnig lögin og annar bróðir okkar, Snorri Pétur, samdi texta við þrjú lag­anna. Textann við lagið „Í kvöld“ orti pabbi til mömmu, Hólm­fríðar Gísla­dóttur, um miðja síð­ustu öld, í til­huga­lífi þeirra. Þau héldu upp á 67 ára brúð­kaups­af­mæli nú í mars.“

Lilja segir for­eldra sína hafa hist fyrir vestan, en Fríða, eins og móðir hennar er kölluð, stund­aði nám við Hús­mæðra­skól­ann á Stað­ar­felli.“ Í þá daga var mikil hefð að dansa sam­kvæm­is­dansa á böllum enda er lagið „Í kvöld“ tangó en það má einnig spila sem rúmbu. Allir text­arnir eru lit­aðir af umhverf­inu vestur á Breiða­firði, meðal ann­ars Fremri-Langey, þar sem pabbi er fæddur og upp­al­inn en einnig stemm­ing­unni á sveita­böll­unum á þeim tíma, sér­stak­lega í sam­komu­hús­inu á Stað­ar­felli, þar sem pilt­arnir í sveit­inni biðu í ofvæni eftir að bjóða stúlk­unum í hús­mæðra­skól­unum upp í dans.”

Hjónin eiga fimm börn; Kjartan, Eggert, Gísla Karel, Snorra Pétur og Lilju. Mikill áhugi var fyrir tón­list á heim­il­inu. Móðirin söng mikið og fað­ir­inn spil­aði á gítar og var m.a. í kór múr­ara. „Þau höfðu metnað fyrir að senda okkur öll í bæði dans og tón­list­ar­nám en tvö okkar vinnum við tón­list í dag.”

Söng­tríóið Skel var stofnað haustið 2018 af þremur söng­konum. Þeim Særúnu Rúnu­dóttur, Lilju Egg­erts­dóttir og Kristínu Sig­urð­ar­dóttur. Tríóið hefur reglu­lega komið fram m.a. í tón­leika­röð­inni Á ljúfum nótum í Frí­kirkj­unni en þar fara fram hádeg­is­tón­leikar, oft á fimmtu­dögum. Lilja er jafn­framt list­rænn stjórn­andi þeirra raðar. Með tríó­inu spila Gunnar Gunn­ars­son á píanó, Þor­grímur Jónsson á kontra­bassa og Erik Qvick á trommur. Bandið flytur tón­list úr öllum áttum, bæði íslenska og erlenda en hefur aðal­lega haldið sig við tón­list sem var vin­sæl á stríðs­ár­unum og eftir það.

„Pabbi, sem verður níræður á þessu ári, á sér þá ósk heitasta að lögin hans fái loks­ins að heyr­ast, til dæmis hjá Svan­hildi Jak­obs­dóttur í Óska­stund­inni á Rás 1,“ segir Lilja. „Þess vegna var ákveðið að drífa í að klára að útsetja, taka upp og gefa út lögin. Allir flytj­endur tóku vel í þá hug­mynd og er allri vinnslu lokið og því aðeins eftir að koma tón­list­inni út. Upp­töku­stjóri var Hafþór Karlsson og Þóra Dögg Jóns­dóttir hann­aði plötu­umslag. Við vildum athuga hvort fleiri hefðu áhuga á að hlýða á tón­list­ina og höfum við fengið mjög góðar und­ir­tektir.“

Hægt er að næla sér í ein­tak með því að fara inn á vef­síðu Karolina­fund

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár