Búinn að eyða 500 til 600 klukkustundum samhliða fullri dagvinnu í eldgosið

Ljós­mynda­bókin „Í návígi við eld­gos“ inni­heldur 100 til­komu­mestu og skemmti­leg­ustu mynd­irnar úr ferðum Daníels Páls Jóns­sonar að eld­gos­inu í Fagra­dals­fjalli. Hann safnar nú fyrir útgáfu hennar.

Daníel Páll Jónasson er nátt­úru­land­fræð­ingur og áhuga­ljós­mynd­ari. Alla tíð hefur hann haft mik­inn áhuga á eld­gosum og annarri nátt­úruvá og skrif­aði hann m.a.s. BS rit­gerð sína um eld­gos á Reykja­nesi og hvaða leiðir hraun myndu leita í átt til höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Þegar eld­gosið byrj­aði í Fagra­dals­fjalli var Daníel ekki lengi að koma sér á vett­vang og eftir að hafa upp­lifað ótrú­lega krafta nátt­úr­unnar á eigin skinni gat hann ein­fald­lega ekki fengið nóg. Í þá 6 mán­uði sem eld­gosið varði áður en gos­hlé hófst um miðjan sept­em­ber, fór Daníel 30 ferðir að eld­gos­inu og tók yfir 10.000 myndir og mynd­bönd.

Hann safnar nú fyrir útgáfu ljós­mynda­bókar sem inni­heldur 100 til­komu­mestu og skemmti­leg­ustu mynd­irnar úr ferðum Daníels á Karolina fund. Stað­setn­ing hverrar myndar er sýnd á litlu korti svo hægt sé að sjá hversu mikið hraunið hefur breyst frá því myndin var tekin.

Daníel segir að hug­myndin hafi sprottið upp úr því að hann var mjög dug­legur að pósta myndum og mynd­böndum af eld­gos­inu á Facebook síð­unni sinni en einnig í hóp­unum Landið mitt Ísland og Iceland Geology. „Eftir að hafa fengið glimr­andi góð við­brögð við mörgum mynd­anna átt­aði ég mig á því að ég væri far­inn að safna efni­við í ljós­mynda­bók um eld­gosið.

[adspot]Upp­haf­lega fór ég í þessar ferðir ein­göngu ánægj­unnar vegna en smám saman fór ég einnig gagn­gert til að safna ljós­myndum í bók­ina. Ég gekk t.d. 3 sinnum hring­inn í kringum allt hraunið til að ná myndum frá þeim sjón­ar­hornum sem ferða­menn fóru aldrei á. Það voru einnig nokkur skipti þar sem ég var dauð­þreyttur í lík­am­anum eftir göng­urnar en þá gerð­ist eitt­hvað algjör­lega nýtt í eld­gos­inu, eitt­hvað sem ég varð bara að ná á mynd. Þá hark­aði ég bara af mér og hent­ist með mynda­vél­ina á stað­inn.

Þessi mikla vinna hefur þó klár­lega borgað sig því núna er ég kom­inn með nokkuð flotta ljós­mynda­bók í hend­urnar og risa­stóran lager af eld­gosa­myndum og mynd­böndum.“

Að sögn Daníels er helsti kost­ur­inn við bók­ina hans að það er ekk­ert ákveðið þema, þ.e.a.s. annað en eld­gosið í heild sinni. „Ég hef séð fólk pósta virki­lega glæsi­legum myndum af eld­gos­inu, t.d. dróna­myndum fyrir ofan gíg­inn og myndum af gylltum kviku­strókum að nóttu til. Ég ákvað hins vegar að binda mig ekki ein­göngu við slíkar mynda­tökur, enda hefði það verið leið­in­legt til lengdar.

Ég er mjög hrif­næmur og tók því myndir af öllu sem vakti athygli mína, hvort sem mér þótti það skondið, fal­legt, hrika­legt, til­komu­mikið eða áhuga­vert og hugs­aði aldrei út í ákveðið þema. Þannig end­aði ég með fjöl­breytt mynda­safn og gat leyft mér að hafa 100 myndir í bók­inni sem halda fólki alveg við efnið. Á einni síð­unni er mynd af glæsi­legum kviku­strók, á annarri er mynd af ferða­mönnum sem hættu sér langt út á hraunið og á enn annarri er mynd af hrauni og gas­út­streymi sem í sam­ein­ingu lík­ist prump­andi snigli. Ég við­ur­kenni að ég stillti þeirri mynd dálítið upp, enda geta hugs­an­irnar orðið dálítið ein­kenni­legar þegar maður er búinn að ganga einn í margar klukku­stundir.“

Daníel við­ur­kennir að 30 ferðir, 10.000 myndir og bóka­út­gáfa í kjöl­farið hafi verið tíma­frekt verk­efni, en líka mjög skemmti­legt. „Varlega áætlað hafa farið 500 til 600 klukku­stundir í þetta verk­efni síð­ustu 6 mán­uði og það jafn­gildir 3 mán­uðum af vinnu, sam­hliða fullri dag­vinnu. Það voru nokkur skipti þar sem keyrði að gos­inu eftir kl. 17, kom aftur heim kl. 1 eftir mið­nætti, vann í ljós­mynd­unum til kl. 4 og mætti svo í vinn­una kl. 8 morg­un­inn eftir.

Vegna þess hversu skemmti­legt og magnað þetta verk­efni var hafði ég ein­hverja auka orku sem fleytti mér í gegnum þetta allt saman. Konan mín og dæt­urnar voru einnig ótrú­lega skiln­ings­ríkar og studdu mig og hvöttu í gegnum allt ferlið, þess vegna er bókin til­einkuð þeim.

Gott dæmi um stuðn­ing­inn frá fjöl­skyld­unni var þegar ég hafði farið margar ferðir á stuttum tíma, var lítið búinn að sjá fjöl­skyld­una og kom­inn með mik­inn móral og söknuð yfir því. Þá tók yngri dóttirin á móti mér þegar ég kom heim úr vinn­unni með pappa­eld­fjall sem hún hafði fönd­rað í leik­skól­anum, rosa­lega stolt yfir lista­verk­inu. Hún sagði mér að ég væri „Eld­gos­inn“ sinn og að hún hafði búið þetta til fyrir mig. Þetta lista­verk er núna uppi á hillu, fyrir framan alla hraun­mol­ana sem ég safn­aði og hlýjar mér meira en eld­gosið gerði nokkurn tíma.“

Hægt er að styrkja verk­efnið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár