Einar Vilberg stefnir á stafræna heildarútgáfu á verkum sínum

Stefnt er að því að birta allar fjórar LP plötur tón­list­ar­manns­ins Einars Vilbergs Hjart­ar­sonar á streym­isveitum á net­inu innan skamms. Hægt er að styrkja fram­takið á Karolina­fund.

Einar Vilberg Hjartarson ásamt syni sínum og nafna.
Einar Vilberg Hjart­ar­son ásamt syni sínum og nafna. Mynd: Aðsend

Einar Vilberg Hjart­ar­son stefnir á staf­ræna heild­ar­út­gáfu á tón­list sinni á öllum helstu streym­isveitum. Um er að ræða 4 LP plötur; Jónas og Einar, Star­light, Noise og Singles. Á Singles, nýj­ustu plöt­unni mun áður óút­gefið efni fá að heyr­ast ásamt nýj­ustu lögum Einars. Hægt er að styrkja fram­takið á Karolina­fund.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Þegar ég hóf upp­tökur á nýju efni ásamt syni mínum og alnafna í hljóð­veri hans Hljóð­verk datt okkur í hug hvort það væri ekki upp­lagt að koma áður útgefnu efni mínu í betri hljóm­gæði og gefa það út á allar helstu streym­isveitur ásamt nýju efni sem við höfum verið að taka upp. Und­an­farið höfum við feðgar verið að grúska í gömlum upp­tökum og ákváðum að láta áður óút­gefið efni fylgja með. “

Segðu okkur frá þema verk­efn­is­ins og þínum tón­list­ar­ferli.

„Þetta er heild­ar­út­gáfa á minni tón­list og rúm­lega það. Þarna verður megnið af mínum katalóg ásamt nýjum lögum og ýmsu gömlu góð­gæti sem hefur ekki heyrst áður opin­ber­lega.

Ég fædd­ist í Reykja­vík og ólst upp í Þing­holt­unum. Fjórtán ára byrj­aði ég að semja eigin lög. Fyrsta alvöru hljóm­sveitin sem ég var í hét Beatnicks en hún lék mest þekkt og vin­sæl erlend lög á skóla­böllum. Ég hélt svo til London með Pétri Krist­jáns­syni söngv­ara og Gunnari Jökli trommu­leik­ara árið 1969 á vegum Lauf­út­gáf­unnar. Við bók­uðum tíma í Regent Studios og tóku upp fjögur lög eftir mig á átta tímum. Tvö lag­anna komu út á plötu árið eftir; Vitskert ver­öld og Blómið sem dó sem Pétur söng en hin tvö biðu þess að koma út löngu seinna á safndiski Péturs.“

Gypsy Queen

„Á þessum tíma samdi ég einnig lög fyrir aðra lista­menn svo sem Janis Carol og Jónas R. Jónsson. Sam­vinnan við Jónas varð að sam­starfi og árið 1972 gáfum við út LP plöt­una Gypsy Queen sem var tekin upp í stúd­íói Péturs Stein­gríms­sonar að und­an­teknum tveimur lögum sem voru tekin upp í Svíþjóð. Platan vakti mikla athygli og þótti fram­sækin, umslagið var tvö­falt sem var nýlunda á þeim tíma. Platan var líka gefin út á kassettu og mun hún vera fyrsta íslenska hljóm­platan sem kemur út á snældu. Í kjöl­far Gypsy Queen var okkur félögum boðið að taka þátt í Yamaha Song Festival tón­list­ar­há­tíð­inni í Tokyo í Japan og gáfu út tveggja laga plötu þar í landi.“

Starlight

„Næsta stóra skref var gerð plöt­unnar Star­light sem kom út árið 1976. Platan var hljóð­rituð í nýju átta rása stúd­íói, Hljóð­rita í Hafn­ar­firði. Upp­töku­maður var Jónas R. Jónsson en honum til aðstoðar var Baldur Már Arn­gríms­son. Mér til full­tingis við gerð plöt­unnar voru helstu popptón­list­ar­menn þess tíma eins og Pálmi Gunn­ars­son, Lárus Grímsson, Þórður Árnason, Ásgeir Ósk­ars­son og fleiri. Platan fékk góða dóma.“

Noise

„Í kjöl­far útkomu Star­light flutti ég mig um set og sett­ist að í Kaup­manna­höfn þar sem ég vann að sól­ó­ferli. Árið 1981 kom svo LP platan Noise út. Noise var tekin upp í Stúdíó Hlust við Rauðalæk og sá Rafn Sig­ur­björns­son um upp­tökur.

Útgáfu­fyr­ir­tækið Toni Permo ýtti plöt­unni úr vör en Tóní þessi Permo mun vera sam­nefn­ari fyrir ákveðna teg­und söngv­ara.“

Singles

„Á Singles, vænt­an­legri breið­skífu minni mun áður óút­gefið efni fá að heyr­ast ásamt nýj­ustu lögum mínum auk þeirra laga sem komið hafa út á smá­skífum í gegnum tíð­ina.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár