Vill hvetja fólk til að hlusta á tónlist eins og það horfir á bíómynd eða þætti

Safnað er fyrir útgáfu Nostal­gia Machine á Karolina Fund. Tón­list­ar­mað­ur­inn á bak­við plöt­una segir að jazz sé ekki bara fyrir risa­eðlur og hall­æris­legt fólk.

Mikael Máni Ásmunds­son er 25 ára tón­list­ar­maður sem nýtur sín best þegar hann er að semja tón­list og spila á gítar. Hann er að gefa út aðra plötu sína með hljóm­sveit sinni á tvö­földum vínyl. Ástæðan fyrir vínyl útgáfu er að hann vil hvetja til þess að fólk setj­ist niður til að hlusta á tón­list með vinum, eins og það gerir með bíó­myndir eða þætti, í stað þess að hafa mús­ík­ina í bak­grunn­inum. Safnað er fyrir útgáfu­kostn­aði á Karolina Fund.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Snemma eftir útgáfu 1. plöt­unnar minnar var ég kom­inn með stóran bunka af lögum sem ég var ekki að spila mikið með öðru fólki og þegar ég lít í bak­sýn­is­speg­il­inn þá er það ansi sorg­legt. Snemma árs 2020 spil­aði ég lögin af og til með Magnúsi Tryggva­syni og Lilju Maríu Ásmunds­dóttur og þá varð okkur ljóst að þessi tón­list þurfti stærri hljóð­heim. Í júní 2020 þá bað ég síðan einn besta vin minn Sölva Kol­beins­son um að vera partur af band­inu án þess að hugsa mikið um það sem er mjög ólíkt mér. Strax nokkrum dögum seinna sé ég útgáfu­tón­leika hjá Ingi­björgu Elsu og bið hana um að hitta mig og Magnús til að skoða nokkur lög sem myndu enda á plöt­unni og það var aug­ljóst að hún var síð­asta púslið sem vant­aði.“[adspot]

Er eitt­hvað þema að finna á plöt­unni?

„Ég upp­lifi oft sögu­þráð í tón­list­inni sem ég hlusta á og reyni að ýkja það í lög­unum sem ég sem. Nostal­g­íu­vélin er tón­list­ar­tíma­vél. Ég nota hana til þess að rifja upp það sem ég upp­lifði þegar ég samdi eða hlust­aði mikið á ákveðið lag. Þannig ferð­ast ég aftur á þann stað lífs­skeiðs míns þegar ég mynd­aði fyrst tengsl við lagið. Platan var unnin með þremur góðum vinum mínum og systur minni sem eru mjög opnir ein­stak­lingar. Við erum að mörgu leyti gjör­ó­lík og ég tal­aði mis­mikið um þema tón­list­ar­innar við hvert og eitt, en þetta eru allt næmir ein­stak­lingar þannig ég veit að allir voru með­vit­aðir um þemað á sinn hátt. Hins­vegar á end­anum þá erum við samt aðal­lega að ein­beita okkur að búa til tón­list sem við sjálf myndum vilja hlusta á.“

Nú kemur fram á Karolina Fund-­síðu Nostal­gia Machine að platan blandi saman jazz, rokk og impres­ion­isma. Er þess tón­list fyrir hvern sem er?

„Sumir halda að jazz tón­list sé bara fyrir risa­eðlur eða hall­æris­legt fólk. Það er svo sem alveg skilj­an­legt út af því það hefur verið mjög vin­sælt að gera grín af jazz tón­list í popp-kúltúr og sumir vinir mínir sem segj­ast hata jazz hafa aldrei hlustað á hann! Ósk mín er að fólk hlusti á þessa tón­list án allra fyr­ir­fram ákveð­inna vænt­inga og frekar til að njóta og upp­lifa. Hafi fólk lítið hlustað á hljóð­færatón­list, myndi ég hvetja það til að hlusta kannski bara á eina hlið af plöt­unni til að byrja með eða finna eitt lag sem það fýlar og leyfa því að lifa með sér. Að finna tón­list sem maður elskar gæti jafn­vel gert meira fyrir mann en að lesa 10 sjálfs­hjálp­ar­bækur!“

Hér er hægt að taka þátt í söfn­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár