Lokaði sig af löngum stundum inni á baðherbergi með gítarinn

Hinn kunni gít­ar­leik­ari Flosi Þor­geirs­son hefur hafið upp­tökur á sinni fyrstu sóló­plötu og safnar nú fyrir henni á Karolina Fund.

Flosi Þorgeirsson
Flosi Þor­geirs­son Mynd: Aðsend mynd

Flosi Þor­geirs­son hefur um langt skeið verið við­loð­andi íslenskt tón­list­ar­líf. Hann er lík­lega þekkt­astur sem gít­ar­leik­ari HAM en hefur ljáð mörgum öðrum verk­efnum krafta sína. Nú hefur hann hafið upp­tökur á sinni fyrstu sóló­plötu.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Fyrir rúmum ára­tug síðan ákvað ég að beina öllum mínum kröftum gegn kvíða- og þung­lynd­is­röskun sem var langt komin með að gjör­eyði­leggja líf mitt. Í gegnum langt ferli sem inni­hélt bæði ein­stak­lings- og hópa­með­ferð, þá fór ég að leita í auknum mæli á náðir tón­list­ar­innar. Ég lok­aði mig af löngum stundum inni á bað­her­bergi (þar er besta „sándið“ í hús­inu!) með gít­ar­inn og spil­aði lát­laust. Eftir nokkurn tíma fór ég að átta mig á að lög voru að fæð­ast. Það kom mér nokkuð á óvart.

Ég hef aldrei verið mik­ill laga­smiður en þar hefur eflaust óör­yggi og deyfð sem fylgir þung­lynd­inu spilað inn í. Nú hafði sjálfs­ör­yggið batnað til muna og kom­inn ein­hver metn­aður sem var ekki til staðar áður. Tengslin við tón­list­ina voru einnig önnur, skýr­ari og meira gef­andi. Ég fékk þá hug­dettu að gera eitt­hvað við þessi lög og sú hug­mynd vildi ekki hverfa. Þvert á móti þá óx hún svo í huga mér að um síðir varð mér bara ljóst að ég yrði að kýla á þetta.“

[adspot]

Segðu okkur frá þema verk­efn­is­ins

„Það er í raun ein­falt. Þetta eru 10 lög eftir mig. Ég sem lög og texta, syng og leik á öll hljóð­færi nema trommur en félagi minn úr HAM, Arnar Geir Ómarsson, bauð sig strax fram í það hlut­verk. Þessi plata er ein­hvers konar óður til allrar þeirrar tón­listar og flytj­enda sem hafa haft áhrif á mig í gegnum tíð­ina. Þarna má finna áhrif jafnt frá Sonic Youth, Hüsker Dü, Dinosaur Jr. en einnig klass­ísku rokki og jafn­vel iðn­að­ar­rokki eins og For­eigner! Þetta verður gít­ar­plata.

Mig langar bara að leggja mitt af mörkum til tón­list­ar­arfs þjóð­ar­innar en einnig er ég ein­fald­lega að gera þetta því ég er gríð­ar­lega sáttur við þessi lög og vill sjálfur fá að heyra þau í góðum gæðum. Þegar þessu ófremd­ar­á­standi sem veiran hefur skapað, lýkur loks­ins þá ætla ég auð­vitað að fylgja þessu eftir með spila­mennsku opin­ber­lega. Það er skemmti­leg­ast að spila tón­list „læf“.“

Hér er hægt að sjá söfn­un­ina á Karolina Fund.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár