Misbrestasamur meistari

Leik­list­ar­gagn­rýn­andi Kjarnans fjallar um Meist­ar­ann og Margar­ítu sem sýnt er í Þjóð­leik­hús­inu.

Þjóðleikhúsið: Meistarinn og Margaríta

Höfundur skáld­sögu: Mikhaíl Búlgakov

Leikgerð: Niklas Rådström

Leik­stjórn og þýð­ing leik­gerðar: Hilmar Jónsson

Leikmynd: Sigríður Sunna Reyn­is­dóttir

Búningar: Eva Signý Berger

Lýsing: Halldór Örn Ósk­ars­son

Tónlist: Valgeir Sig­urðs­son

Sviðs­hreyf­ingar: Chantelle Carey

Hljóð­mynd: Valgeir Sig­urðs­son, Aron Örn Arn­ars­son og Kristinn Gauti Ein­ars­son

Leik­gervi: Tinna Ingi­mars­dóttir

Ráðgjöf við töfra­brögð: Dirk Losander

Leik­endur: Stefán Hallur Stef­áns­son, Birgitta Birg­is­dóttir, Sigurður Sig­ur­jóns­son, Ebba Katrín Finns­dóttir, Oddur Júl­í­us­son, María Thelma Smára­dóttir, Bjarni Snæ­björns­son, Björn Ingi Hilm­ars­son, Pálmi Gestsson, Hákon Jóhann­es­son, Þórey Birg­is­dóttir, Gunnar Smári Jóhann­es­son, Hildur Vala Bald­urs­dóttir, Þröstur Leó Gunn­ars­son, Edda Björg­vins­dóttir

Meist­ar­inn og Margar­íta eftir rúss­neska rit­höf­und­inn Mikhaíl Búlgakov er eitt af mögn­uð­ustu skáld­verkum 20. aldar – marglaga verk, gríð­ar­lega fyndið, hvöss og háðu­leg ádeila á vald­hafa og yfir­völd en um leið mögnuð og harm­ræn ást­ar­saga þar sem ekk­ert minna er undir en að selja sál sína djöfl­inum til að öðl­ast ham­ingju á ný.

Búlgakov mun hafa byrjað að skrifa Meist­ar­ann og Margar­ítu þegar árið 1928; sagan ber keim af myrkum sam­tíma höf­undar og er á yfir­borð­inu ádeila á ger­spillt sam­fé­lag komm­ún­ism­ans; Búlgakov flettir á dramat­ískan hátt ofan af mútu­þegum, svika­hröppum, lýð­skrum­urum, lodd­urum, róg­berum, for­rétt­inda­hyski og hroka­gikkjum (svo vitnað sé í bók­ar­kynn­ingu For­lags­ins, sem hefur gefið út frá­bæra þýð­ingu Ingi­bjargar Har­alds­dóttur ekki sjaldnar en þrisvar sinnum, 1981, 1993 og 2009). Búlgakov hélt áfram að skrifa Meist­ar­ann og Margar­ítu til dauða­dags, 1940, en bókin kemur ekki út órit­skoðuð fyrr en rúmum ald­ar­fjórð­ungi síðar og reynd­ist þá – eins og fyrr – þyrnir í augum hins hnign­andi sov­éska skipu­lags. Sagan öðl­að­ist þegar í stað gríð­ar­legar vin­sældir á vest­ur­löndum.

[adspot]Meist­ar­inn og Margar­íta hefst á því að svarta­gald­urs­meist­ar­inn Woland kemur til Moskvu ásamt skraut­legu föru­neyti sínu, kór­meist­ar­anum Korovév, skot­glaða kett­inum Behemot og hinni vam­p­ír­líku Hellu (þetta er fereykið sem við sjáum á sviði Þjóð­leik­húss­ins; í sög­unni er föru­neytið fjöl­menn­ara). Hann hittir Berlioz, hinn trú­lausa for­mann Rit­höf­unda­sam­bands­ins, þeir deila um hvort Jesús Kristur hafi verið til og Woland kveðst geta stað­fest að Kristur hafi vissu­lega verið til, hann sjálfur hafi jú verið við­staddur þegar Jesús var dæmdur til kross­fest­ingar. Svona ótrú­leg stað­hæf­ing stang­ast vit­an­lega á við hina opin­beru sýn Berliozar (og sov­ét­kerf­is­ins) á Frelsar­ann og sögu hans, en Woland lætur hér ekki staðar numið – hann spáir fyrir um óhugn­an­legan dauða Berliozar – sem gengur eftir! – og ræðst svo ótrauður að hinu spillta kerfi sov­ét­skipu­lags­ins og helstu spill­ing­arpés­unum. Það er óhætt að segja að sá hluti sög­unnar er hvorki bund­inn við stað né stund – það má vel hugsa sér að hér sé verið að segja frá nýlegum atburðum á Íslandi, svo ekki sé fastar að orði kveðið!

Því næst er Meist­ar­inn kynntur til sög­unnar; hann hefur skrifað skáld­sögu um Pontíus Pílatus, en sagan sú hefur ekki hlotið náð fyrir augum vald­hafa og menn­ing­ar­el­ít­unnar í Moskvu. Meist­ar­inn fyllist bit­urð og beiskju og brennir hand­ritið og er lok­aður inni á geð­veikra­hæli, sem veldur ást­konu hans, Margar­ítu, ómældri sorg.

Woland og föru­neyti hans linnir hvergi látum við að valda usla meðal heldri borg­ara Moskvu, hann heldur sýn­ingu í svarta­galdri þar sem flett er ofan af hræsnurum og lýð­skrum­urum og slær svo upp dans­leik; hann býður Margar­ítu að sam­ein­ast unnusta sínum, Meist­ar­anum, sem fyrir til­stilli Wolands hefur verið lok­aður inni á geð­veikra­hæli, og bjarga hand­rit­inu, gegn því að hún selji honum sál sína. Margar­íta gengur að þeim kaupum, ger­ist norn sem fer fljúg­andi um Moskvu og hefnir sín grimmi­lega á mennta­el­ítu Moskvu­borgar og þau sam­ein­ast í lokin, Meist­ar­inn og Margar­íta – en undir vernd­ar­væng Wolands. Djöf­ull­inn er kom­inn til að vera.

Búlgakov beitir í sög­unni eins konar súr­r­eal­ískum stíl­brigðum með því að færa sög­una á milli tíma­skeiða – ýmist ger­ist sagan í Moskvu á fjórða ára­tugnum eða í Júdeu rétt eftir upp­haf okkar tíma­tals, þar sem Pontíus Pílatus dæmir Jesúm til kross­fest­ingar – sem er einmitt sú saga sem Meist­ar­inn skrif­aði og sem hafnað var af yfir­völdum. Saga Búlga­kovs verður þannig líkt og draum­leikur þar sem allt getur gerst og rás atburða lýtur eigin lög­málum sem eru allt önnur en hin rök­réttu lög­mál sem að venju stjórna epískum sögum. Og það má líka segja, að Meist­ar­inn og Margar­íta ein­kenn­ist af magískum real­isma löngu áður en það hug­tak komst á ról í bók­mennta­fræð­unum, því hvað sem líður draum­kenndum blæ sög­unnar – og upp­færslu Þjóð­leik­húss­ins – eru vís­anir í veru­leik­ann þess eðlis að þeim verður ekki skotið undan raun­sæ­is­hug­tak­inu.

Og svo því sé haldið til haga: Búlgakov er líka að vísa í sína eigin æfi, því sam­band hans við menn­ing­ar­yf­ir­völd Sov­ét­ríkj­anna var hreint eng­inn dans á rósum. Það vildi hins vegar honum til happs að á meðan margir starfs­bræður hans, rit­höf­undar og lista­menn, voru sendir í Gúlagið til end­ur­hæf­ingar, naut hann ein­hverra hluta vegna náðar Stalíns, sem kvaðst hrif­inn af skáld­skap hans og hélt yfir honum vernd­ar­hendi.

Sögu­þráður Meist­ar­ans og Margar­ítu er reyndar mun flókn­ari en hér hefur verið frá greint og best að vísa til bók­ar­innar til að upp­lifa hina marg­slungnu atburða­rás svo ekki sé minnst á merki­lega tákn­fræði sög­unnar. Það er svo deg­inum ljós­ara að ekki er heiglum hent að koma þess­ari kynn­gi­mögn­uðu sögu á leik­svið og það er kannski sá vandi sem sýn­ing Þjóð­leik­húss­ins glímir við.

Leikgerð hins sænska Niklas Rådström fylgir skáld­sög­unni mjög svo nákvæm­lega án þess í raun­inni að glæða hana nokk­urri sjálf­stæðri dramat­ískri vídd; það er kunn­ara en frá þurfi að segja að epísk frá­sögn lýtur öðrum lög­málum en dramat­ísk. Það eru að mínu viti mikil mis­tök sem hafa afleitar afleið­ingar fyrir allt sem á eftir fylgir.

Hin ýmsu lög sög­unnar flétt­ast saman á flók­inn og margræðan hátt. Ef úr á að verða skilj­an­leg saga fyrir leik­svið færi betur á því að móta einn meg­in­þráð, draga úr vægi ann­arra laga sög­unnar en láta þau þar sem þau þó koma fyrir styðja við meg­in­þráð­inn. Það eru þekkt drama­t­úrgísk, eða leiktexta­fræði­leg efn­is­tök, marg­reynd og vel þekkt.

Leikgerð Niklas Rådström verður eins konar upp­still­ing á sög­unni, líkt og for­lags­aug­lýs­ing fyrir bók­ina. Það eitt og sér hvetur síður list­ræna stjórn­endur leik­húss til að taka sjálf­stæða afstöðu til sögu Búlga­kovs og þá er hætt við að lít­ill til­gangur sé með því að setja sög­una á svið, annar en sá að minna á til­vist hennar og hvetja áhorf­endur til að njóta bók­ar­innar beint. Það er lítil dirfska yfir slíkum vinnu­brögðum og seint myndu þau telj­ast sæm­andi Þjóð­leik­húsi sem eðli máls­ins sam­kvæmt á að vera í sjálf­stæðri sam­ræðu við þjóð­ina í sam­ræmi við til­gang þess og mark­mið.

En hvað sem því líður fer ekki á milli mála að margt er vel gert í Meistara og Margar­ítu Þjóð­leik­húss­ins og í raun sjálf­sagt að hvetja fólk til að sjá þá sýn­ingu, þó ekki væri nema til að örva til eigin lest­urs á sögu Búlga­kovs í snilld­ar­þýð­ingu Ingi­bjargar Har­alds­dóttur.

Sýning Þjóð­leik­húss­ins hefst á draum­kenndu upp­hafs­at­riði, eins konar götu­lífs­mynd í Moskvu, þar sem dulúðug tón­list og reykur umlykur þöglar per­sónur, sem hreyfa sig með hægum hreyf­ingum í hvers­dags­at­höfnum. Tónninn er sleg­inn fyrir það sem á eftir kemur – hér er að hefj­ast draum­leikur. Það má spyrja hvort það stang­ist ekki á við mark­mið Búlga­kovs – ég hygg að í hans hug­ar­heimi hafi sagan um Meist­ar­ann og Margar­ítu verið í hæsta máta raunsæ; það ætti því að gera hina súr­r­eal­ísku og magísku sögu eins raun­veru­lega og hægt er – og væri þar með ekki betur lyft undir óhugn­að­inn?

Leikmynd Sigríðar Sunnu, bún­ingar Evu Signýjar og lýs­ing Halldórs Arnars er allt smekk­lega unnið og fag­mann­lega og í sam­ræmi við hug­mynd­ina um draum­leik­inn. Með marg­vís­legum til­fær­ingum og mis­mun­andi lýs­ingu þjónar leik­mynd Sigríðar Sunnu öllum sviðum sög­unnar og það má sann­ar­lega kalla sýn­ing­una sigur leik­hús­tækn­innar. Atriðin renna vel saman og skila sögu Búlga­kovs frá upp­hafi til enda. En sýn­ingin markast þó af eins konar stefnu­leysi, það er eins og ekki sé á hreinu af hverju verið sé að segja þessa sögu né hvaða erindi hún eigi við áhorf­endur. Per­sónu­leik­stjórn­inni er ábóta­vant og tekur ekki mið af því sem úr þarf að vinna. Þannig er t.d. Woland í með­förum Sigurðar Sig­ur­jóns­sonar fremur alúð­legur og hlý­legur karakter – ógn hans er öll undir hinu elsku­lega yfir­borði og sú túlkun lætur Sigurði vel, en kallar þá óneit­an­lega á mót­leik sem und­ir­strikar ógn­ina sem í nær­veru Wolands felst. Hér bregst leik­stjóra boga­listin þegar í upp­hafs­at­rið­inu, þegar Berlioz, leik­inn af Birni Inga Hilm­ars­syni, og Ívan Bésdomní, leik­inn af Bjarna Snæ­björns­syni, gefa í skyn að þeim finn­ist Woland hlægi­legur og klappa honum kump­án­lega á öxl­ina. Þar fer mik­il­vægt tæki­færi for­görðum að sýna ógn þessa ókunna gests og skapa skiln­ing á þeirri ögrun sem und­ar­leg orð­ræða hans felur í sér.

[adspot]Annað dæmi, öllu alvar­legra, snertir Korovév, sem leik­inn er af Ebbu Katrínu Finns­dóttur. Ebba Katrín gerði Uglu í Atóm­stöð­inni svo ljóm­andi góð skil að eftir var tekið. Það er því dálítið skondið að heyra Korovév tala með sömu rödd, sömu blæ­brigðum, sama tón­falli og sömu áherslum og Ugla. Ugla upp­götvar heim­inn og við fáum að heyra upp­götv­anir hennar og nið­ur­stöður í ein­ræðum hennar; Ebba Katrín náði með rödd sinni, blæ, tóni og áherslum þessum ein­kennum Uglu full­kom­lega. Korovév aftur á móti upp­götvar ekki heim­inn, hann stjórnar honum, en það kallar á allt öðru­vísi rödd og radd­beit­ingu, lausa við undrun og íhygli Uglu. Hér hefði leik­stjór­inn þurft að taka í taumana og leiða leik­ar­ann inn á aðra braut; það er ábyrgð­ar­hluti þegar ungum, nýút­skrif­uðum leik­urum er veitt tæki­færi á borð við þessi og þegar list­rænir stjórn­endur og leik­húsin gang­ast ekki við þeirri ábyrgð og hrein­lega slugsa er hinum ungu leik­urum bjarn­ar­greiði gerður.

Þriðja dæmið má til taka: Birgitta Birg­is­dóttir leikur annað tit­il­hlut­verkið, Margar­ítu, sem ann Meist­ar­anum og saknar hans; ást hennar er öðrum þræði drif­kraftur verks­ins, enda færir Woland sér mis­kunn­ar­laust í nyt til­finn­ingar hennar og varn­ar­leysi. Birgitta er þekki­leg leik­kona en það hæfir henni ekki að stað­setja Margar­ítu á efri hæð bak­sviðs í ein­hvers konar dulúð­ugri fjar­lægð; sá kraftur sem í ást Margar­ítu býr nær ekki fram með þess­ari stað­setn­ingu á Birgittu og veikir leik hennar. Þá er atriðið þegar Woland hefur fært henni norn­ar­kraft­inn með töfra­smyrsl­inu og hún flýgur um Moskvu og hefnir ófara Meist­ar­ans ein­fald­lega kauð­skt eins og það er lagt upp, sú mik­il­væga orð­ræða sem Margar­íta fer með á flug­inu fer for­görðum vegna þess hversu álappa­lega flugið er fram­kvæmt. Hér hefði athug­ull leik­stjóri vita­skuld leitað ann­arra leiða til að styrkja leik­ar­ann í túlkun sinni svo ást Margar­ítu hefði orðið sá dramat­íski drif­kraftur sem hún er í sög­unni.

Þótt hér séu nefndir nokkrir mis­brestir er ýmis­legt þó vel gert og má hafa ánægju af – og sjálf­sagt má með vel­vild horfa hjá þeim aðfinnslum sem hér eru tíndar til. Saga Búlga­kovs stendur vita­skuld fyrir sínu og svíkur engan, það er unun að kett­inum Behemot í túlkun Odds Júl­í­us­sonar og margir gera vel í smáum hlut­verkum – má t.d. nefna Bjarna Snæ­björns­son í fyrr­nefndu hlut­verki Ívan Bés­domnís, Pálma Gestsson í hlut­verki Pontí­usar Pílatusar, Hákon Jóhann­es­son í hlut­verki Leví Matteusar, Þóreyju Birg­is­dóttur í hlut­verki Natösju, Þröst Leó Gunn­ars­son og Eddu Björg­vins­dóttur í ýmsum hlut­verkum. Leik­gervi Tinnu Ingi­mars­dóttur verð­skulda ómælt hrós.

Á heild­ina litið er Meist­ar­inn og Margar­íta áhorfsverð sýn­ing þótt efn­is­tök og list­ræn túlkun hefði mátt vera djarfari og mark­viss­ari.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

list

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár