Hann var á leið í flóann

Billy Joel er sjö­tugur í dag. Hann er einn fræg­asti þung­lynd­is­sjúk­lingur heims­ins. Ferill hans hefur verið þyrnum stráður, en hann mun bráðum fá sér sæti við flygil­inn í Madison Square Garden og spila lögin sín.

Í kvöld mun Billy Joel fá sér sæti við flygil­inn í Madison Square Garden í New York. Hann er sjö­tugur í dag og mun vænt­an­lega flytja gestum stór­brotna tón­leika með lögum úr safni sínu.

Um þessar mundir eru 48 ár frá því Billy Joel sendi frá sér sína fyrstu plötu, Cold Spring Harbor. Hún kom eins og þruma úr heið­skíru lofti.

Þarna heyrð­ist nýr tónn, frá lítt þekktum píanó­leik­ara. Hann hafði næmn­ina, text­arnir voru sker­andi og áhrifa­miklir, og meló­díurnar áreynslu­lausar og fal­legar.

En það var líka myrkur í lög­unum.

Allur fer­ill Billy Joel hefur lit­ast af bar­áttu hans við þung­lyndi og alka­hól­isma, með þeim lægðum og hæðum sem því fylgir.

Á endastöð

Á Cold Spring Harbor plöt­unni lýsir hann sínum myrk­ustu augna­blikum og rús­sí­ban­areið þung­lynd­is­sjúk­lings um tví­tugt sem hafði brennt brýr að baki sér, og stóð eftir einn og óstuddur. Hann var á leið í fló­ann, eins og hann lýsir í Tomorrow Is Today - hápunkti þessa tíma­lausa meist­ara­verks sem Cold Spring Harbor er.

En bless­un­ar­lega fór hann ekki í fló­ann.

Hann snéri við á brún­inni, og hefur síðan gengið frekar erf­iðan veg í gegnum lífið, með tón­list­ar­hæfi­leika sína í fartesk­inu.

Á hans afkasta­mestu árum, frá 1971 til 1990, setti hann mik­inn svip á tón­list­ar­heim­inn með hverjum smell­inum á fætur öðrum. Hann hefur átt fleiri smelli en hægt er að telja upp, og erfitt að raða lögum hans í gæða­röð.

Lögin eru mörg og ólík, en eiga það sam­eig­in­legt í mörgum til­vikum að vera lýs­ing á líf­inu í New York - og stundum ann­ars staðar líka.

Hvers­dags­legir hlutir fá oft mikla athygli í textum Billy Joel. Hroka­gikk­ur­inn á Wall Street að glenna sig, að missa af lest­inni, úthverfa­lífið, Man­hattan. Fáir, ef þá ein­hverjir, hafa speglað þennan veru­leika betur og af meiri ein­urð en Billy Joel.

Vegna þess hve þetta er vel gert, þá eru lýs­ing­arnar hans tíma­lausar og með víð­ari skírskotun. Þetta er list eins og hún ger­ist best.

Ég hef vanið mig á það, eins og margir, að hlusta á tón­list við vinnu.

Und­an­farin ár hef ég tekið fyrir ýmsa tón­list­ar­menn og hlustað á efni þeirra allt í réttri útgáfu­röð. Í vetur tók ég fyrir Billy Joel og var lengi að hlusta mig í gegnum allt sem hann hefur sent frá sér. Það tekur tíma, enda afköstin með nokkrum ólík­indum.

Þegar hann kom fram á frægum tón­leikum í Len­ingrad árið 1987 þá var kalda stríðs stemmn­ing í heim­inum alls­ráð­andi og banda­rísk afþrey­ing var ekki vel séð í Sóvét­ríkj­unum.

Vildu bara sjá Billy Joel í gallabuxum

En heima­menn tóku Billy Joel afar vel, og sjálfur hefur hann sagt um þessa tón­leika, að tón­leika­gest­irnir hafi ein­fald­lega verið gott fólk sem hafi viljað sjá hann í galla­buxum að syngja Uptown Girl. Póli­tíkin var nú ekki dýpri en það og fjöl­miðla­fárið í aðdrag­and­anum var óþarft.

Ég spái því að hann endi tón­leika sína í Madison Square Garden á ball­öð­unni Vienna.

En upp­klappið verður eflaust mest og lengst, þegar Píanó­mað­ur­inn sjálfur syngur þjóð­söng­inn sinn, Piano Man.

Það er gott að hann fór ekki í fló­ann á sínum tíma og hélt áfram að sinna list­sköpun sinni, þó veg­ur­inn hafi verið svo­lítið grýttur vegna veik­inda á hálfrar aldar ferli.

Upp­á­halds lög und­ir­rit­aðs: 
- Only The Good Die Young
- All For Leyna
- Christie Lee
- Allentown -(Tímalaus lýs­ing á verk­smiðju­lífi margra svæða í Banda­ríkj­unum, sem logn­ast útaf með hverri lokunni á fætur annarri. Bærinn er í Penn­syl­vaníu).
- Big Shot (Wall Street plebb­inn tek­inn og afgreiddur). 

Billy Joel var tek­inn inn í frægð­ar­höll Grammy verð­launa árið 2013.

Hann hefur fengið 28 til­nefn­ingar til verð­laun­anna í gegnum tíð­ina, og meðal ann­ars hlotið verð­laun fyrir að vera með lag árs­ins, bestu plöt­una, besti popp söngv­ar­inn og besti rokk tón­list­ar­mað­ur­inn, auk goð­sagnar verð­launa.

Þetta er í hans anda; fjöl­breytnin hefur verið hans helsta ein­kenni í gegnum tíð­ina. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár