Hvetur til innleiðingar á óháðri innlendri greiðslulausn

Fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd Seðla­bank­ans segir kerf­is­á­hættu vera vax­andi í hag­kerf­inu vegna hækk­andi skulda og íbúða­verðs. Þó vill hún ekki breyta eig­in­fjár­kröfum bank­anna í bráð, en telur brýnt að inn­leiða óháða inn­lenda greiðslu­lausn sem fyrst.

Brýnt er að óháð inn­lend greiðslu­lausn sem hefur ekki teng­ingu við alþjóð­lega korta­inn­viði verði inn­leidd hér­lendis, svo að rekstr­ar­ör­yggi greiðslu­kerfa verði tryggt hér­lendis. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd Seðla­banka Íslands sem birt­ist á vef bank­ans í morgun.

Sveiflujöfnunarauki óbreyttur, en tryggja þarf rekstrarsamfellu

Í yfir­lýs­ingu sinni segir nefndin að staða fjár­mála­stöð­ug­leika sé góð þegar á heild­ina sé litið, þótt enn sé óvissa vegna far­ald­urs­ins. Hins vegar bætir hún við að kerf­is­á­hætta hafi vaxið vegna hækk­andi skulda og íbúða­verðs, en segir þó við­náms­þrótt stóru bank­anna þriggja vera mik­inn, þar sem eig­in­fjár- og lausa­fjár­staða þeirra sé vel yfir lög­bundnum mörkum og þeir hafi greiðan aðgang að fjár­mögnun.

Nefndin minnt­ist þó á rekstr­ar­ör­yggi greiðslu­kerfa hér­lendis, sem hún sagði að huga ætti að og minnti rekstr­ar­að­ila á mik­il­vægi þess að tryggja sam­fellu í rekstri. Þar að auki sagði nefndin að brýnt sé að áfram verði unnið að inn­leið­ingu á óháðri inn­lendri smá­greiðslu­lausn án teng­ingar við alþjóð­lega korta­inn­viði.

Rafkróna möguleg greiðslulausn

Líkt og Kjarninn hefur áður fjallað um vinnur Seðla­bank­inn að slíkri lausn þessa stund­ina, en hún gæti falið í sér útgáfu svo­kall­aðrar raf­krónu. Samkvæmt Guðmundi Kr. Tómassyni, sem situr í fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd bank­ans, yrði slík lausn í raun raf­rænt reiðufé sem hægt væri að nota t.d. úr raf­veski í síma til að kaupa vörur og þjón­ustu beint og milli­liða­laust. Í við­tali í hlað­varps­þætt­inum Ekon í sumar sagði hann að vinna að slíkri lausn væri komin langt á veg í Svíþjóð, þótt engin form­leg ákvörðun hafi verið tekin þar í landi enn sem komið er.

Í síð­asta riti Fjár­mála­stöð­ug­leika kemur fram að Seðla­bank­inn hafi skoðað útgáfu raf­krónu sem vara­greiðslu­miðl­un­ar­leið. Hins vegar segir bank­inn að mörg álita­efni þarfn­ast frek­ari skoð­unar áður en til ákvörð­unar kemur um slíka útgáfu, en hann kannar nú mögu­leg áhrif hennar á pen­inga­stefnu og fjár­mála­stöð­ug­leika.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár