Greiðslumiðlun tæplega þrefalt dýrari hér heldur en á öðrum Norðurlöndum

Emil Dagsson ræðir við Guðmund Kr. Tómasson um greiðslu­miðlun á Íslandi í nýjasta þætti Ekon. Samkvæmt Guðmundi borga Íslend­ingar mun meira fyrir greiðslu­miðlun heldur en íbúar ann­ara Norð­ur­landa.

Kostn­aður við greiðslu­miðlun er tæp­lega þrisvar sinnum hærri hér á landi en á hinum Norð­ur­lönd­unum. Enn fremur hefur Ísland dreg­ist veru­lega aftur úr öðrum þjóðum þegar kemur að þróun greiðslu­miðl­unar frá fjár­mála­hrun­inu árið 2008, en mögu­leg upp­taka svo­kall­aðrar raf­krónu gæti bætt úr því. Þetta kemur fram í nýlegri grein­ingu eftir Guð­mundur Kr. Tómasson sem situr í fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd Seðla­banka Íslands.

Guð­mundur er annar við­mæl­andi í þátta­röð­inni Ekon, þar sem hag­fræð­ing­ur­inn Emil Dagsson fær til sín sér­fræð­inga úr ýmsum áttum til að fjalla um hag­fræði­leg mál­efni ásamt mál­efnum tengdum íslenskum efna­hag. Þáttinn má sjá í spil­ar­anum hér að neðan, auk þess sem hlusta má á hann í Hlað­varpi Kjarnans.

Hefur orðið öruggari og ódýrari

Samkvæmt Guðmundi hefur þróun greiðslu­miðl­unar síð­ustu ára gert greiðslu­kerfi örugg­ari og ódýr­ari víða erlendis. Í því sam­hengi megi nefna aukna áherslu á greiðslum á milli banka­reikn­inga án milli­liða (e. Account-to-account), en þær eru not­aðar víða á hinum Norð­ur­lönd­unum. Einnig hafa ýmis lönd, t.a.m. Noregur og Danmörk, komið á legg sínum eigin greiðslu­kortum sem lækkar kostnað.

Á sama tíma hefur orðið aukn­ing á notkun greiðslu­for­rita sem tengj­ast kredit­kortum á Íslandi, en hún er frekar til þess fallin að auka kostnað við greiðslu­miðlun. Einnig eru ekki til sér­stök greiðslu­kort fyrir Íslend­inga, en sam­kvæmt Guðmundi gæti þó verið að sú leið henti ekki hér þar sem korta­inn­viðir gætu verið að deyja út.

Miðlunin gæti bæst með útgáfu rafkrónu

Guð­mundur telur leið Íslend­inga til að gera greiðslu­miðlun ódýr­ari og örugg­ari geta falist í útgáfu á raf­krónu. Önnur lönd á borð við Svíþjóð eru komin vel á veg með vinnu á slíkri lausn þó engin form­leg ákvörðun hafi verið tekin þar í landi. Hann útskýrir að slíkur raf­eyrir sé frá­brugð­inn öðrum raf­myntum á borð við Bitcoin á þann veg að Seðla­bank­inn sé þá ábyrgur fyrir útgáfu og sinni reglu­legu eft­ir­liti raf­eyr­is­ins.

Samkvæmt Guðmundi yrði raf­krónan þá í raun raf­rænt reiðufé sem hægt væri að nota, t.d. úr raf­veski í síma, til að kaupa vörur og þjón­ustu beint og milli­liða­laust. Hann segir engan geira í banka­kerf­inu vera með álíka þróun og dýnamík í dag og greiðslu­miðlun.

Guð­mundur starf­aði sem fram­kvæmda­stjóri á sviði fjár­mála­stöð­ug­leika og greiðslu­miðl­unar hjá Seðla­banka Íslands allt frá 2005 til síð­ustu ára­móta. Hann situr nú í fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd Seðla­bank­ans.

Þætt­irnir Ekon eru styrktir af Háskóla Íslands, sem styður vís­inda­menn til virkrar þátt­töku í sam­fé­lag­inu í krafti rann­sókna þess og sér­þekk­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ekon

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár