Seðlabankarnir í stríðsham

Doktor í fjár­málum segir að sam­hæfð fryst­ing rúss­neskra eigna í mörgum helstu seðla­bönkum heims hafi náð „að færa víg­völl­inn inn á svið reikn­ings­skila, lög­fræði og bók­halds inni í seðla­bönk­unum“. Hann ræddi þessi mál í hlað­varps­þætt­inum Ekon.

Ásgeir Brynjar Torfason er doktor í fjármálum.
Ásgeir Brynjar Torfason er doktor í fjár­málum. Mynd: KRISTINN INGVARSSON / Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson

Ásgeir Brynjar Torfason doktor í fjár­málum segir að það eigi eftir að koma í ljós, hvort sú nær for­dæma­lausa ákvörðun helstu seðla­banka heims að frysta gjald­eyr­is­vara­forða rúss­neska rík­is­ins eftir inn­rás­ina í Úkraínu fyrir rúmu hálfu ári muni ein­hvern tím­ann ganga til baka, eða hvort gjald­eyr­is­vara­forð­inn verði á end­anum nýttur upp í stríðs­skaða­bætur til handa Úkra­ínu­mönnum.

„Þetta er eigna­upp­taka, eða eigna­fryst­ing, við skulum sjá til hvað verður,“ sagði Ásgeir Brynjar í sam­tali við Emil Dagsson, dokt­or­snema í hag­fræði og rit­stjóra Vís­bend­ingar, í hlað­varps­þætt­inum Ekon sem finna má í Hlað­varpi Kjarnans.

Þar ræddu þeir Emil og Ásgeir Brynjar um efna­hags­þving­an­irnar sem Rússar hafa verið beittir frá því í lok febr­úar, er Rússar hófu alls­herj­ar­inn­rás sína í Úkraínu.

Ásgeir Brynjar minnti á það í þætt­inum að efna­hags­þving­unum hefur verið beitt gegn Rússum allt frá árinu 2014 er Krím­skagi var inn­limaður, en sagði að þær hefðu ekki virkað neitt sér­lega vel, þar sem leiðir til þess að kom­ast hjá áhrifum þeirra hefðu fund­ist.

Það hefði síðan komið í ljós er Rússar réð­ust inn í Úkraínu að „stríðs­herr­ann í Kreml“ væri búinn að safna vel í stríðskistu sína, auk þess sem Rússar væru byrj­aðir að fram­leiða ýmsa hluti inn­an­lands sem ekki voru fram­leiddir þar áður til þess að draga úr áhrifum við­skipta­þving­ana úr vestri.

[adspot]

Ásgeir Brynjar segir hins vegar að fryst­ing gjald­eyr­is­vara­forða Rússa í mörgum helstu seðla­bönkum hafi verið svo stór og svo alþjóð­leg að hún hafi verið viss „game-changer“ og náð „að færa víg­völl­inn inn á svið reikn­ings­skila, lög­fræði og bók­halds inni í seðla­bönk­unum.“

Í þætt­inum setti Ásgeir Brynjar fram þá til­gátu að hin stóra alþjóð­lega aðgerð, fryst­ing gjald­eyr­is­vara­forð­ans, hefði valdið því að ný bylgja aðgerða skall á Rússum; sjálf­vilj­ugar aðgerðir fyr­ir­tækja gegn Rúss­landi, hafi orðið rosa­lega miklar.

„Það drógu sig út úr Rúss­landi strax á fyrstu dög­unum stór­fyr­ir­tæki. [...] Það fór af stað við­bót­ar­flóð­bylgja þving­ana,“ segði Ásgeir Brynjar.

„Öll koffort í Moskvu halda áfram að fyllast af peningum“

En þrátt fyrir allar þær þreng­ingar sem Rússar hafa verið beittir und­an­farið af vest­rænum ríkjum og vest­rænum fyr­ir­tækjum hefur inn­rás rúss­neska hers­ins í Úkraínu ekki verið hrundið.

„Það sem er lyk­il­at­riði í að þessa við­skipta­þving­anir hafa ekki dugað eru und­an­þág­urnar á orku­söl­unni. Það er olían og sér­stak­lega gasið,“ segir Ásgeir Brynjar og bendir á að olíu­kaupa­bannið á Rússa taki ekki gildi fyrr en næstu ára­mót. Þá taki enn lengri tíma að finna nýjar leiðir til þess að flytja gas, sem er nauð­syn­legt evr­ópskum iðn­aði, ekki síst þeim þýska. Einnig nefnir Ásgeir Brynjar að sumar þving­anir hafi áhrif sem komi fram á lengri tíma, og bendir í því sam­hengi á að íhlutir til reglu­bund­ins við­halds rúss­neska flug­flot­ans hafi ekki feng­ist frá inn­rásinni, sem kunni fyrst núna að fara að bíta.

En áfram­hald­andi verslun með olíu og gas „hefur gert það að verkum að öll koff­ort í Moskvu halda áfram að fyll­ast af pen­ingum, af því bæði fer ein­inga­verðið upp á gas­inu og olí­unni og það er und­an­þegið við­skipta­þving­un­unum svo það flæðir inn pen­ingur til Rúss­lands á móti gas­inu sem fer út,“ sagði Ásgeir Brynjar.

Þegar seðlabankar verða bankar ríkissjóðanna

Í þætt­inum ræddu þeir Ásgeir Brynjar og Emil einnig þann þrýst­ing sem mun fyr­ir­sjá­an­lega skap­ast á stjórn­völd á meg­in­land Evrópu í vetur, vegna verð­bólgu og hækk­andi orku­verðs. Ásgeir Brynjar sagði að rétt eins og rík­is­sjóðir heims hefðu aukið skuldir sínar í „stríð­inu“ við kór­ónu­veiruna væri fyr­ir­séð að þess þyrfti aftur nú.

„Það er í raun þá sem seðla­bankar verða bankar rík­is­sjóð­anna, í stríðs­á­standi,“ sagði Ásgeir Brynjar.

„Þegar þetta stríð byrjar núna í Evrópu kallar það á útgjöld til her­mála, varn­ar­mál­anna og útgjöld til að styðja Úkraínu en einnig útgjöld eins og við erum að sjá núna til þess að tempra orku­kostn­að­inn, við­brögð við verð­bólg­unni og síðan þá öfugu efna­hags­á­hrifin á almenn­ing okkar megin við víg­lín­una og langt frá víg­lín­unni, verð­bólgan er að fara upp alstaðar og fólk er að borga hærri hús­næð­is­kostnað [...] og öll lönd nema Ísland kannski að borga hærri upp­hit­un­ar­kostnað,“ sagði Ásgeir Brynjar, sem sagði tapið af stríð­inu lenda um allt.

Hægt er að horfa á við­­tal Emils Dags­­sonar við Ásgeir Brynjar Torfason í nýjasta þætti Ekon í mynd­­band­inu hér fyrir neð­­an. Þætt­irnir Ekon eru styrktir af Háskóla Íslands, sem styður vís­inda­­­menn til virkrar þátt­­­töku í sam­­­fé­lag­inu í krafti rann­­­sókna þess og sér­­­þekk­ing­­­ar. Einnig er hægt að hlusta á Ekon í Hlað­varpi Kjarnans, sem finna má í öllum hlað­varpsveitum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ekon

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár