Er fjármagnstekjuskattur alltaf óhagkvæmur?

Emil Dagsson ræðir við Arnald Sölva Krist­jáns­son um hag­kvæma skatt­heimtu í Ekon, nýjum við­tals­þætti um hag­fræði­leg mál­efni. Samkvæmt honum er ekki auð­séð að við­tekin við­horf um að skattur á fjár­magn sé óhag­kvæmur stand­ist í öllum til­vikum.

Arnaldur Sölvi Kristjánsson, hagfræðingur hjá ASÍ, og Emil Dagsson, doktorsnemi í hagfræði við HÍ.
Arnaldur Sölvi Krist­jáns­son, hag­fræð­ingur hjá ASÍ, og Emil Dagsson, dokt­or­snemi í hag­fræði við HÍ. Mynd: Samsett

Viðtekin við­horf um að skattur á fjár­magn sé alltaf óhag­kvæmur stand­ast ekki ef ein­stak­lingar eru mis­fram­leiðnir á vinnu­mark­aði, hafa mis­mikla getu til fjár­fest­inga og að þeir fjár­festa. Þetta eru nið­ur­stöður fræði­greinar sem Arnaldur Sölvi Krist­jáns­son, hag­fræð­ingur hjá ASÍ hefur skrifað um hag­kvæma skatt­heimtu.

Arnaldur er fyrsti við­mæl­and­inn í þátta­röð­inni Ekon, þar sem hag­fræð­ing­ur­inn Emil Dagsson fær til sín sér­fræð­inga úr ýmsum áttum til að fjalla um hag­fræði­leg mál­efni ásamt mál­efnum tengdum íslenskum efna­hag. Þáttinn má sjá í spil­ar­anum hér að neðan, auk þess sem hlusta má á hann í Hlað­varpi Kjarnans.

Samkvæmt honum sýndu nið­ur­stöður eldri fræði­greina að fjár­magnstekju­skattur væri alltaf óhag­kvæm leið til að draga ójöfn­uði. Þessar nið­ur­stöður höfðu svo áhrif á almenn við­horf til slíkrar skatt­lagn­ingar, en skattur á fjár­magn er nú tölu­vert lægri en tekju­skattur víða um heim.

Í eldri greinum var búist við því að arð­semi af fjár­fest­ingum væri gefin, svo ein­stak­lingar gátu vænst þess að græða jafn­mikið og aðrir af fjár­fest­ingum sínum. Arnaldur gerði aftur á móti ráð fyrir því í grein sinni að fjár­fest­ingar væru misarð­bærar eftir ein­stak­lingum og að það krefð­ist vinnu og fjár­mála­læsi til að halda uppi góðri ávöxtun á sínum fjár­munum. Ef sú for­senda er tekin með í útreikn­ingum fæst að fjár­magnstekju­skattur er ekki alltaf óhag­kvæmur, þvert á fyrri nið­ur­stöður.

Sjálfur hefur Arnaldur feng­ist mikið við tekju­skipt­ingu í sínum rann­sóknum og þá einkum frá sjón­ar­hóli skatt­kerf­is­ins. Hann er með dokt­ors­gráðu í hag­fræði frá Osló­ar­há­skóla en starfar nú sem hag­fræð­ingur hjá ASÍ.

Þætt­irnir Ekon eru styrktir af Háskóla Íslands, sem styður vís­inda­menn til virkrar þátt­töku í sam­fé­lag­inu í krafti rann­sókna þess og sér­þekk­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ekon

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár