Óáþreifanlegur kostnaður þess að verða fyrir ofbeldi nemur milljónum á ári

Emil Dagsson ræðir við Hjördísi Harð­ar­dóttur um rann­sókn á óáþreif­an­legum kostn­aði ofbeldis í nýjasta þætti Ekon. Hjördís telur rann­sóknir á borð við þessa gefa stjórn­völdum betri tól til þess að bæta for­varnir í slíkum mála­flokkum.

Ekon er viðtalsþáttur um hagfræðileg málefni sem gefinn er út á Hlaðvarpi Kjarnans.
Ekon er við­tals­þáttur um hag­fræði­leg mál­efni sem gef­inn er út á Hlað­varpi Kjarnans. Mynd: Pexels

Þolendur and­legs, lík­am­legs og kyn­ferð­is­legs ofbeldis verða fyrir óáþreif­an­legum kostn­aði sem nemur allt að sex millj­ónum króna á hverju ári. Þetta eru á meðal nið­ur­staðna rann­sókn­ar­hóps­ins ConCIV í hag­fræði­deild Háskóla Íslands.

Hjördís Harð­ar­dóttur, sem er nýdoktor í Háskóla Íslands og með­limur ConCIV, greindi frá þessum nið­ur­stöðum og starf­semi hóps­ins í þriðja þætti Ekon, sem sjá má hér fyrir neðan. Í þátt­unum, sem einnig má nálg­ast í Hlað­varpi Kjarnans, fær hag­fræð­ing­ur­inn Emil Dagsson til sín sér­fræð­inga úr ýmsum áttum till að fjalla um hag­fræði­leg mál­efni og önnur mál tengd íslenskum efna­hag.

Betri aðferð til að meta miskabætur

Samkvæmt Hjördísi geta nið­ur­stöður um óáþreif­an­legan kostnað ofbeldis verið mik­il­vægar sam­fé­lag­inu á margan hátt. Til dæmis gæti dóms­kerfið haft slíka útreikn­inga til hlið­sjónar þegar ákvarða á miska fyrir ofbeldi, en stjórn­völd gætu líka notað þá til þess að ákvarða hversu miklum hluta almanna­fjár ætti að verja í ofbeld­is­for­varnir.

Aðferð­irnar sem ConCIV notar til þess að meta slíkan kostnað eru til­tölu­lega nýjar, en Hjördís segir að þær aðferðir sem hafa verið not­aðar áður hafa oftar mælt áhrifin óbeint. Sem dæmi um slíkar aðferðir er hug­lægt mat kvið­dóms í dóms­málum í Banda­ríkj­unum.

ConCIV not­ast hins vegar við töl­fræði­legt mat þar sem reynt er að áætla hversu mikla tekju­aukn­ingu þolendur ofbeldis þyrftu til að bæta fyrir það vel­ferð­ar­tap sem þeir verða fyrir. Nú þegar hefur hóp­ur­inn birt rann­sóknir um nei­kvætt virði sven­fleysis og áfeng­is­neyslu, en þær rann­sóknir, ásamt fleirum má nálg­ast á heima­síðu ConCIV.

Nið­ur­stöður ConCIV af óáþreif­an­legum kostn­aði ofbeldis benti til þess að hann næmi að með­al­tali 6 millj­ónum króna á ári vegna and­legs ofbeldis, 3 millj­ónir króna á ári vegna kyn­ferð­is­legs ofbeldis og 1,5 millj­ónir króna á ári vegna lík­am­legs ofbeldis.

Þætt­irnir Ekon eru styrktir af Háskóla Íslands, sem styður vís­inda­menn til virkrar þátt­töku í sam­fé­lag­inu í krafti rann­sókna þess og sér­þekk­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ekon

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár