Efnahagslega velferð hægt að mæla með fleiru en hagvexti

Mælingar á hag­vexti sýna ekki nógu vel hvaða áhrif umsvif í atvinnu­lífi, verslun og við­skiptum hafa á efna­hags­lega vel­ferð þjóð­ar­innar. Í nýjasta þætti Ekon segir David Cook nýdoktor fram­fara­stuðul geta reynst betra tól til að meta efna­hags­lega vel­ferð.

Einhver fylgni er á milli efnahagslegrar velferðar fólks og stærðar hagkerfa. Þar með er þó ekki öll sagan sögð.
Einhver fylgni er á milli efna­hags­legrar vel­ferðar fólks og stærðar hag­kerfa. Þar með er þó ekki öll sagan sögð. Mynd: 123RF

Fram­fara­stuð­ull (e. Genuine Progress Indicator) gæti verið betur til þess fall­inn að gera grein fyrir efna­hags­legri vel­ferð þjóð­ar­innar heldur en sá mæli­kvarði sem helst er not­aður nú til dags. Sá mæli­kvarði sem stuðst er við í dag er breyt­ing á vergri lands­fram­leiðslu en breyt­ingin, verði aukn­ing á lands­fram­leiðsl­unni, er í dag­legu tali kölluð hag­vöxtur. Þetta segir David Cook nýdoktor í umhverfis- og auð­linda­fræði, í nýjasta þætti Ekon. Samkvæmt Cook getur fram­fara­stuð­ull aðstoðað stjórn­völd við að skilja betur þjóð­hag­fræði­lega stöðu Íslands til þess að auka vel­ferð á Íslandi.

Cook aðlag­aði fram­fara­stuð­ul­inn að íslensku hag­kerfi ásamt Bryn­hildi Dav­íðs­dóttur og þau hafa einnig gert grein fyrir þróun hans fyrir árin 2000 til 2019. Fram­fara­stuð­ull­inn tekur til­lit til ann­arra þátta heldur en hag­vaxt­ar­mæli­kvarð­inn gerir, til dæmis óæski­legra umhverf­is­legra áhrifa sem kunna að hljót­ast af þeim umsvifum sem falla innan lands­fram­leiðslu. Þannig lækkar gildi fram­fara­stuð­uls­ins ef losun óæski­legra gróð­ur­húsa­loft­teg­unda eykst. Fram­fara­stuð­ull­inn nær einnig til þró­unar félags­legra þátta á borð við tekju­ó­jöfnuð – auk­ist hann, lækkar gildi fram­fara­stuð­uls­ins.

Hagvöxtur tekur ekki tillit til óæskilegra áhrifa

Inn­leið­ing mæli­kvarða á borð við fram­fara­stuð­ul­inn er eitt af heims­mark­miðum Sam­ein­uðu þjóð­anna um sjálf­bæra þróun og nú þegar hafa önnur lönd til­einkað sér svip­aða mæli­kvarða til að mæla efna­hags­lega vel­ferð. Cook segir það óæski­legt að horfa aðeins til hag­vaxtar til að meta vel­ferð þar sem hag­vaxt­ar­mæli­kvarð­anum var aldrei ætlað að gera grein fyrir vel­ferð. Vissu­lega sé fylgni á milli stærð hag­kerfa og lífs­kjara en engu að síður eru vissir þættir sem ýta undir hag­vöxt taldir slæmir fyrir vel­ferð.

Sem dæmi um slíkt nefnir Cook meng­un­ar­slys. „Segjum sem svo að meng­un­ar­slys ætti sér stað á Íslandi og mikið magn olíu myndi skola hér á fjörur. Þau umsvif sem leiddu til olíu­lek­ans skapa hag­vöxt sem og þær aðgerðir sem ráð­ast þarf í til þess að þrífa upp olí­una. Hag­vöxtur mælir ein­ungis hversu mikil umsvif eru í hag­kerf­inu.“

Cook bendir einnig á hvernig fram­fara­stuð­ull­inn myndi meta áhrif málm­bræðslu og túrisma á efna­hags­lega vel­sæld. Þessir atvinnu­vegir hafa haft mikil jákvæð áhrif á hag­vöxt á und­an­förnum ára­tugum. Fylgi­fiskur auk­innar málm­bræðslu og auk­ins fjölda ferða­manna er mikil aukn­ing á útblæstri gróð­ur­húsa­loft­teg­unda sem hefur engin áhrif á mæl­ingu hag­vaxtar. Fram­fara­stuð­ull­inn myndi aftur á móti taka mið af útblæstr­inum og þannig gera betur grein fyrir því hvaða áhrif þessir atvinnu­vegir hafi á efna­hags­lega vel­ferð.

Hægt er að hlusta á við­tal Emils Dags­sonar við David Cook í nýjasta þætti Ekon í mynd­band­inu hér fyrir neðan. Þætt­irnir Ekon eru styrktir af Háskóla Íslands, sem styður vís­inda­menn til virkrar þátt­töku í sam­fé­lag­inu í krafti rann­sókna þess og sér­þekk­ing­ar. Einnig er hægt að hlusta á Ekon á Soundcloud.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ekon

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár