Kynjakvóti í framkvæmdastjórnum gæti leiðrétt kynjahalla í ráðningum forstjóra

Konur sitja ekki við sama borð og karlar í ráðn­ing­ar­ferli for­stjóra skráðra fyr­ir­tækja að mati Ástu Dísar Óla­dóttur. Hún spyr hvort ekki þurfi að aug­lýsa stöð­urnar í stað þess að láta ráðn­ing­ar­fyr­ir­tæki sjá um ráðn­ing­ar­ferlið að stóru leyti.

Ásta Dís Óladóttir hefur rannsakað kynjahalla í ráðningum forstjóra skráðra félaga á Íslandi.
Ásta Dís Óla­dóttir hefur rann­sakað kynja­halla í ráðn­ingum for­stjóra skráðra félaga á Íslandi. Mynd: Aðsend

Kynja­kvóti í fram­kvæmda­stjórnum skráðra félaga er meðal þeirra leiða sem hægt er að fara til þess að leið­rétta kynja­halla í ráðn­ingum for­stjóra í skráðum félögum á íslenskum mark­aði. Þetta segir Ásta Dís Óla­dóttir, dós­ent við við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands, í við­tali við Emil Dagsson í nýjasta þætti Ekon.

Ásta Dís hefur rann­sakað ráðn­ing­ar­ferli for­stjóra í skráðum félögum og er ein með­höf­unda grein­ar­innar For­stjóra­ráðn­ingar í þjóð­hags­lega mik­il­vægum fyr­ir­tækjum: Kynja­halli, úti­lokun og ófag­leg rán­ing­ar­ferli? Með­höfu­bdar Ástu Dísar eru Þóra H Christiansen, Sigrún Gunn­ars­dóttir og Erla S. Krist­jáns­dóttir en greinin kom út í fyrra.

Að baki grein­ar­innar liggja við­töl við helm­ing þeirra kvenna sem áttu sæti í stjórnum skráðra félaga þegar rann­sóknin fór fram en hópur við­mæl­enda telur 22 konur. Þegar rann­sóknin fór fram voru for­stjórar allra 19 fyr­ir­tækj­anna í kaup­höll­inni karlar. Síðan þá hefur ein kona bæst í hóp­inn, Birna Ein­ars­dóttir sem er banka­stjóri Íslands­banka.

Að sögn Ástu Dísar var til­gangur rann­sókn­ar­innar að tala við konur sem sitja í stjórnum og koma þar af leið­andi að ráðn­ing­ar­ferli for­stjóra og spyrja út í hver sýn þeirra væri á ferlið.

„Við erum að beina kast­ljós­inu að konum sem sitja í stjórnum félaga og hver þeirra þáttur í ráðn­inga­ferl­inu væri. Tæplega helm­ingur stjórn­ar­manna í dag eru konur, 46-48 pró­sent. Ég held að það fari hæst í 48 pró­sent stjórn­ar­kvenna í skráðum félögum þegar kynja­kvóta­lögin voru að fullu inn­leidd hér á landi. Það hefur aldrei verið hærra en það,“ segir Ásta Dís.

Spyr hvort ekki þurfi að auglýsa stöður lausar til umsóknar

Ein af þeim spurn­ingum sem rann­sak­endur leit­uðu svara við var hvers vegna kven­kyns for­stjórum hefði ekki fjölgað, þegar staðan væri sú að nærri helm­ingur fólks sem á sæti í stjórnum séu konur. Ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tæki sem sjá að stórum hluta um ráðn­ing­ar­ferli reynd­ust hafa þar mikil áhrif.

Frá ráðn­ing­ar­stof­unum koma gjarnan úrtaks­listum með mögu­legum for­stjóra­efnum. Á þeim listum eru yfir­leitt mun fleiri karlar en konur, að sögn Ástu Dísar. Ráðn­ing­ar­ferlið sé líka oft­ast með svoköll­uðu „head-hunt­ing“ sniði sem ráðn­ing­ar­stofur stýra enda stöð­urnar ekki aug­lýstar.

„Það þyrfti að skoða það að aug­lýsa stöður. Konur vilja frekar bíða, þær vilja vera í þessum ramma, þær vilja sjá aug­lýs­ing­una og þær vilja máta sig við aug­lýs­ingu. Karl­arnir taka aftur á móti upp sím­ann og segja “Hey, ég hef áhuga á þess­ari stöðu, ég vil vera í þessu úrtaki”,“ segir Ásta Dís.

Því séu færri konur á áður­nefndum listum sem koma frá ráðn­ing­ar­stof­unum og því minna úr að velja í ráðn­ing­ar­ferl­inu. „Ætti að vera skylda að aug­lýsa þessar stöður? Viljum við horfa frekar til opin­bera geirans þar sem er skylda að aug­lýsa þessar stöður?“ spyr Ásta Dís.

Arftakastjórnun og áhrif stórra fjárfesta

Önnur aðferð sem Ásta Dís nefnir er svokölluð arf­taka­á­ætlun eða arf­taka­stjórnun. Hún segir arf­taka­stjórnun þekkj­ast vel erlendis en ekki vera í mik­illi notkun hér á landi. Arf­taka­stjórnun snýst um að horfa á núver­andi skipu­rit og finna tvo nýja kandídata fyrir hverja stöðu á skipu­rit­inu, einn karl og eina konu - arf­tak­ana. Við­kom­andi ein­stak­lingar geta þá verið þjálfaðir upp í stöð­una sem um ræðir með við­eig­andi menntun eða með öðrum leiðum sem auka reynslu.

Arf­tak­arnir verða þá klárir í að taka við stöðu í fram­kvæmda­stjórn með litlum fyr­ir­vara ef eitt­hvað kemur upp á og ein eða fleiri staða innan skipu­rits­ins losnar. Ásta Dís segir þessa leið geta verið gagn­lega ef fyr­ir­tæki stefna að því að ná jafn­rétti milli kynja innan fyr­ir­tækis en hún bendir á að það sé ein­fald­lega ákvörðun stjórnar að elt­ast við að ná slíku jafn­rétti.

Stórir fjár­festar geta einnig haft áhrif á jafn­rétti innan skráðra félaga. Ásta Dís segir til að mynda að líf­eyr­is­sjóð­irnir geti sett sem skil­yrði fyrir fjár­fest­ingu í fyr­ir­tæki að jafn­rétt­is­stefna sé til staðar innan þess fyr­ir­tækis.

Hægt er að hlusta á við­tal Emils Dags­sonar við Ástu Dís Óla­dóttur í nýjasta þætti Ekon í mynd­band­inu hér fyrir neð­an. Þætt­irnir Ekon eru styrktir af Háskóla Íslands, sem styður vís­inda­­menn til virkrar þátt­­töku í sam­­fé­lag­inu í krafti rann­­sókna þess og sér­­þekk­ing­­ar. Einnig er hægt að hlusta á Ekon á Soundcloud.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ekon

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár