Útgáfa rafkrónu til skoðunar sem óháð innlend greiðslulausn

Seðla­bank­inn vinnur nú að upp­bygg­ingu óháðrar greiðslu­lausnar inn­an­lands sem þyrfti ekki að reiða sig á alþjóð­lega greiðslu­inn­viði. Samkvæmt honum gæti útgáfa svo­kall­aðrar raf­krónu þjónað þessum til­gangi.

Gunnar Jakobsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika.
Gunnar Jak­obs­son, vara­seðla­banka­stjóri fjár­mála­stöð­ug­leika. Mynd: Skjáskot/Goldman Sachs

Óháð inn­lend smá­greiðslu­lausn sem er án teng­inga við alþjóð­lega korta­inn­viði þarf að vera til staðar hér á landi, að mati fjár­mála­stöð­ug­leika­nefndar Seðla­bank­ans. Bankinn vinnur nú að upp­bygg­ingu slíkrar lausnar hér­lendis, en hún gæti falið í sér útgáfu svo­kall­aðrar raf­krónu. Þetta kemur fram í nýjasta riti Fjár­mála­stöð­ug­leika Seðla­bank­ans sem kom út í síð­ustu viku.

Samkvæmt Seðla­bank­anum fara allar kredit­korta­færslur inn­lendra greiðslu­korta í gegnum alþjóð­lega inn­viði. Sömu­leiðis fara nú 95% debet­korta­færslna í gegnum slíka inn­viði, en þetta hlut­fall var um 9% fyrir þremur árum síðan.

Áhyggjur af erlendu eignarhaldi

Morg­un­blaðið greindi frá því í ágúst síð­ast­liðnum að Seðla­bank­inn hafi viðrað áhyggjur sínar við þjóðar­ör­ygg­is­ráð af eign­ar­haldi og yfir­ráðum á þeim greiðslu­miðl­un­ar­kerfum sem not­ast er við hér á landi. Í við­tali við mið­il­inn sagði Gunnar Jak­obs­son, vara­seðla­banka­stjóri fjár­mála­stöð­ug­leika, að bank­inn ynni að upp­bygg­ingu nýs óháðs kerfis í sam­starfi við Reikni­stofu bank­anna.

Í nýjasta hefti Fjár­mála­stöð­ug­leika var farið nánar í þessa vinnu, en þar segir bank­inn að óháð inn­lend raf­ræn smá­greiðslu­lausn sem væri ótengd alþjóð­legum innviðum gæti meðal ann­ars þjónað sem vara­leið í inn­lendri smá­greiðslu­miðlun á tímum neyðar.

Rafkróna möguleg lausn

Guð­mundur Kr. Tómasson, sem situr í fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd, sagði útgáfu svo­kall­aðrar raf­krónu vera eina leið til að gera greiðslu­miðlun ódýr­ari hér­lendis í hlað­varps­þætt­inum Ekon sem kom út í júlí. Finna má þátt­inn í Hlað­varpi Kjarnans.

Samkvæmt Guðmundi yrði raf­krónan, sem gefin yrði út af Seðla­bank­anum, í raun raf­rænt reiðufé sem hægt væri að nota, t.d. úr raf­veski í síma, til að kaupa vörur og þjón­ustu beint og milli­liða­laust. Hann bætir við að vinna að slíkri lausn væri komin langt á veg í Svíþjóð, en engin form­leg ákvörðun hafi þó verið tekin þar í landi enn sem komið er.

Í Fjár­mála­stöð­ug­leika kemur fram að Seðla­bank­inn hafi skoðað útgáfu raf­krónu sem vara­greiðslu­miðl­un­ar­leið. Hins vegar segir bank­inn að mörg álita­efni þarfn­ast frek­ari skoð­unar áður en til ákvörð­unar kemur um slíka útgáfu, en hann kannar nú mögu­leg áhrif hennar á pen­inga­stefnu og fjár­mála­stöð­ug­leika.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabanki

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár