Segir Seðlabankann og RÚV hafa unnið saman gegn Samherja

For­stjóri Samherja telur Seðla­bank­ann og RÚV hafa skipu­lagt Seðla­banka­málið svo­kall­aða gegn Samherja í þaula.

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.
Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja. Mynd: Skjáskot/Hringbraut

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, segir RÚV hafa unnið náið saman með Seðla­bank­anum til að hefja rann­sókn á gjald­eyr­is­við­skiptum sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­is­ins. Þetta kom fram í við­tali Þor­steins við Kristján Krist­jáns­son á Sprengisandi á Bylgj­unni fyrr í dag.

Í við­tal­inu var minnst á mynd­band sem Samherji gaf út fyrr í vik­unni þar sem fyr­ir­tækið sak­aði Helga Seljan, frétta­mann á RÚV, um að hafa falsað skýrslu frá Verð­lags­stofu skipta­verðs sem var notuð sem heim­ild í Kast­ljós­þætti árið 2012. Fyr­ir­tækið heldur því fram að skýrslan hafi verið ein af grund­vallar­á­stæðum þess að Seðla­banka­málið svo­kall­aða á sínum tíma.

Verð­lags­stofa skipta­verðs hefur stað­fest til­vist gagn­anna sem voru til umfjöll­unar í umræddum Kast­ljós­þætti, en bætir við að ekki hafi verið um sér­staka skýrslu að ræða, heldur trún­að­ar­gögn sem stofn­unin vann.

„Eftiráskýringar Seðlabankans“

Samkvæmt Þor­steini Má var „skýrslan“ kveikur þess að Seðla­banka­málið svo­kall­aða hafi farið af stað árið 2012, þar sem fyr­ir­tækið lá undir lög­reglu­rann­sókn fyrir að hafa brotið þáver­andi gjald­eyr­is­lög.

Kristján Krist­jáns­son sagði þá upp­haf máls­ins hafi byrjað fyrr og vitn­aði í grein­ar­gerð banka­ráðs Seðla­bank­ans, þar sem kom fram að rök­studdur grunur hafi vaknað mán­uðum áður en umræddur Kast­ljós­þáttur hafi verið gef­inn út.

Þor­steinn kall­aði grein­ar­gerð­ina „eft­irá­skýr­ingar Seðla­bank­ans“ og sagði það vera „aug­ljóst að Seðla­bank­inn og RÚV hafi saman búið til málið.

Sætir lögreglurannsókn

Samherji sætir nú lög­reglu­rann­sókn vegna meints pen­inga­þvættis, mútu­greiðslna og skatta­snið­göngu tengdri starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins í Namibíu, en málið var upp­lýst af Helga Seljan og sam­starfs­mönnum hans í frétta­þætt­inum Kveik á RÚV í fyrra. Í kjöl­far máls­ins hefur Samherji breytt skrán­ingu þriggja tog­ara sem not­aðir voru í Namibíu. Frétta­stofa Kjarnans sendi fyr­ir­tæk­inu fyr­ir­spurn vegna nýrrar skrán­ingar skip­anna þann 25. Júlí, en hefur ekki enn fengið svör frá því.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabanki

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár