Minna á áhættu tengda viðskiptum með sýndarfé

Neyt­endur sem eiga í við­skiptum með sýnd­arfé njóta ekki góðs af trygg­inga­kerfi eða neyt­enda­vernd sem fylgir fjár­mála­þjón­ustu. Á þetta bendir Seðla­bank­inn á vef sínum en áhugi almenn­ings á sýnd­arfé er stöðugt að aukast.

Seðla­banki Íslands sér ástæðu til að minna á áhættu tengda við­skiptum með sýnd­arfé. Í frétt á vef bank­ans vekur Fjár­mála­eft­ir­litið athygli á frétt á vef evr­ópsku eft­ir­lits­stofn­an­anna á fjár­mála­mark­aði sem birt­ist í vik­unni.

Á vef Seðla­bank­ans segir að áhugi almenn­ings á sýnd­arfé (e. crypto-assets) sé stöðugt að aukast. Dæmi um sýnd­arfé er til að mynda Bitcoin. „Af því til­efni minna stofn­an­irnar neyt­endur á að við­skipti með sýnd­arfé geta verið mjög áhættu­söm og að þau fylgja lög­málum spá­kaup­mennsku. Mik­il­vægt er að neyt­endur geri sér grein fyrir áhætt­unni, þar með talið mögu­leik­anum á því að tapa fjár­munum sínum, líkt og kom fram í sam­eig­in­legri aðvörun stofn­an­anna sem var birt í febr­úar 2018,“ segir þar enn fremur.

Þá njóti neyt­endur sem eigi í við­skiptum með sýnd­arfé ekki góðs af trygg­inga­kerfi eða neyt­enda­vernd sem fylgir fjár­mála­þjón­ustu þar sem reglu­verk er til staðar. Von er á að neyt­endur njóti meira öryggis en í frétt Seðla­bank­ans er sagt að fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins hafi lagt fram til­lögu að nýrri lög­gjöf um mark­aði með sýnd­arfé. Tillagan sé hins vegar háð breyt­ingum í lög­gjaf­ar­ferl­inu og neyt­endur þurfa því enn að bíða eftir þeirri vernd sem breyt­ingin felur í sér.

Líkt og áður segir er áhugi almenn­ings á Bitcoin stöðugt að aukast. Verð raf­mynt­ar­innar náði met­hæðum síð­ast­lið­inn laug­ar­dag þegar verð hverrar ein­ingar raf­mynt­ar­innar stóð í tæpum 62 þús­und dölum eða 7,9 millj­ónum króna. Síðan þá hefur verðið gefið eftir og stendur nú í um 59 þús­und dölum, um 7,5 millj­ónir króna, á hverja ein­ingu Bitcoin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

rafmyntir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár