Hraðbankaeigandi vill að stjórnvöld bíði í tvö ár með að regluvæða rafmyntamarkaðinn

Dóms­mála­ráð­herra hefur lagt fram frum­varp sem er ætlað að koma í veg fyrir pen­inga­þvætti með notkun raf­mynta á Íslandi. Hún telur að það liggi á að færa sýnd­ar­fjár­við­skipti undir lög strax til að koma í veg fyrir þetta. Fyr­ir­tæki í iðn­að­inum eru ósam­mála.

Jason Scott, eig­andi og stjórn­andi fyr­ir­tæk­is­ins Icetor ehf., sem á og rekur fyrsta bitcoin-hrað­bank­ann sem settur hefur verið upp á Íslandi, vill að íslensk stjórn­völd bíði með það í tvö ár að reglu­væða með nokkrum hætti starfs­um­hverfi staf­rænna raf­mynta og sýnd­ar­fjár á borð við bitcoin. Þess í stað leggur Scott, sem opn­aði bitcoin-hrað­bank­ann sinn hér­lendis í vor, til að nán­ara sam­tal eigi sér stað milli raf­mynta­iðn­að­ar­ins, sem er í miklum vexti á Íslandi, og lög­gjafans. Hann varar við því að strangar reglur muni gera það að verkum að iðn­að­ur­inn muni leita til ann­arra landa þar sem reglu­verkið er hag­stæð­ara. Nefnir hann Möltu, Eistland og Sviss sem dæmi um slík lönd.

Þá fer Scott fram á að settur verði veltu­þrösk­uldur og þau fyr­ir­tæki sem fari ekki yfir hann þurfi ekki að gang­ast undir sams­konar upp­lýs­inga­skyldu og þau sem stærri eru.

Þetta kemur fram í umsögn Scott um frum­varp Sigríðar Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra um að breyta lögum um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka með þeim hætti að þjón­ustu­veit­endur þeirra sem stunda við­skipti og fyr­ir­huguð við­skipti með raf­eyri og sýnd­ar­fjár verði gert skylt að til­kynna grun um pen­inga­þvætti eða fjár­mögnun hryðju­verka til lög­reglu. Þá þurfa þeir sem þjón­usta raf­myntir og sýnd­arfé að vera skrán­ing­ar­skyldir aðilar hjá Fjár­mála­eft­ir­lit­inu og verða þá um leið eft­ir­lits­skyldur aðili.

Liggur á að breyta lögunum

Í grein­ar­gerð frum­varps­ins segir: „Sýnd­ar­fjár­við­skipti fara fram utan hins hefð­bundna fjár­mála­kerfis og geta aðilar sem stunda pen­inga­þvætti, hryðju­verka­sam­tök eða hópar með auð­veldum hætti milli­fært fjár­muni yfir landa­mæri eða innan sýnd­ar­fjár­mark­að­ar­ins nafn­laust og án þess að færslur þeirra sæti athugun. Til að stemma stigu við refsi­verðri starf­semi sem kann að þríf­ast í skjóli þess nafn­leysis sem fylgir sýnd­ar­fjár­við­skiptum er nauð­syn­legt að útvíkka gild­is­svið lag­anna svo að fram­an­greindir þjón­ustu­veit­endur falli undir lögin.“

Hætt sé við því að verði slík starf­semi látin óátalin þar til ný heild­ar­lög um pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka, sem leggja á fram í haust, verði sam­þykkt muni margir aðilar sjá sér hag í því að koma upp slíkri starf­semi áður en það frum­varp nái fram að ganga og geti starfað eft­ir­lits­laust í marga mán­uði. „Reynslan sýnir að fjölgun þjón­ustu­veit­enda sýnd­ar­fjár er hröð. Á heims­vísu voru hrað­bankar fyrir sýnd­arfé sam­tals 951 þann 1. jan­úar 2017, 2.048 þann 1. jan­úar 2018 og 2.534 þann 20. mars 2018. Það er því mik­il­vægt að bregð­ast við með skjótum hætti og gera þessa þjón­ustu­veit­endur til­kynn­ingar- og eft­ir­lits­skylda.“

Bæði Seðla­banki Íslands og Fjár­mála­eft­ir­litið styðja frum­varpið og leggja áherslu að það verði sam­þykkt.

Fleiri hagsmunaaðila skiluðu inn umsóknum

Fleiri en Scott hafa skilað inn umsögn um frum­varpið. Þar á meðal Raf­myntra­ráð, sem gerir ýmis­konar athuga­semdir við frum­varpið og fram­setn­ingu dóms­mála­ráð­herra við kynn­ingu á því. Í umsögn ráðs­ins segir m.a.: „Samkvæmt Europol eru sjálfsalar sem sýsla með bæði sýnd­arfé og reiðufé helsta áskor­unin innan sýnd­ar­fjár­geirans þegar kemur að pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka­starf­semi. Við viljum þó benda á að ekki þarf að beita bláköldu banni á slíkar sjálfsala­þjón­ustur, þar sem hægt er að beita tækni sem passar upp á að þess­ari lög­gjöf sé fylgt. Til dæmis ættu sjálfsalar sem taka við debit og kredit­kortum að sitja við annað borð en sjálfsalar sem taka við reiðufé, þar sem um ræðir raf­eyrir sem er gefin út af eft­ir­lits­skyldum stofn­unum, sem hafa þá þegar sinnt athugun á pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka.“

Fyr­ir­tækið Skipti­mynt ehf., sem rekur skipti­markað þar sem við­skipta­vinum gefst kostur á að eiga við­skipti með raf­myntir með því að setja inn sölu- og kauptil­boð, sendi einnig inn umsögn. Það gerir athuga­semdir við afleið­ingar frum­varps­ins fyrir sig í ljósi þess að fyr­ir­tækið tekur ekki við reiðufé heldur ein­ungis milli­færslum í íslenskum krónum úr bönkum, þar sem pen­inga­þvætt­is­at­hugun hefur þegar farið fram. „Helst ætti lög­gjaf­inn að reyna að skapa lag­ara­mma sem er hlið­hollur raf­mynta- og blockchain tækn­inni. Skýra ætti hvernig greiða eigi skatta af hagn­aði vegna við­skipta með raf­myntir. Hvernig eigi að greiða skatta af hag­aði vegna námu­graftrar raf­mynta. Skýra hvenær frum­út­gáfa raf­mynta (Initial Coin Offering, ICO) falli undir verð­bréfa­út­gáfu og lög um verð­bréfa­við­skipti og hvenær um er að ræða staf­ræn auð­kenni (Utility token). Tryggja með laga­setn­ingu rétt raf­mynta­fyr­ir­tækja til að njóta banka­þjón­ustu, þannig að bankar geti ekki lokað ein­hliða á banka­við­skipti við raf­mynta- og blockchain fyr­ir­tæki, sem með­höndla ekki reiðufé. Í fram­haldi af slíkri heild­stæðri laga­setn­ing á þessu sviði munu erlend stór­fyr­ir­tæki á sviði raf­mynta og blockchain leit­ast við að finna stað fyrir höf­uð­stöðvar sínar á Íslandi, þar sem lög­gjöf væri til staðar, væri skýr og ekki letj­andi.“

Skipti­mynt ehf. segir að laga­breyt­ingin, sem felur meðal ann­ars í sér að fyr­ir­tæki á raf­mynt­ar­mark­aði þurfi að taka þátt í að greiða kostnað við opin­bert eft­ir­lit með fjár­mála­starf­semi, muni stefna efna­hag fyr­ir­tæk­is­ins í voða, en velta þess var undir tveimur millj­ónum króna í fyrra og eng­inn sem kemur að fyr­ir­tæk­inu fékk greidd laun á því ári. Það mælist til þess í umsögn sinni að „ein­hver aðlögun verði á þessu gjaldi og að sprota- og nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki sem hafa veltu undir ákv. við­miðum, tekjur undir ákv. við­miðum, hagnað undir ákv. við­miðum eða fjölda starfs­manna undir ákv. við­miðum verði und­an­skildir þess­ari gjald­heimtu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bitcoin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár