Orkunotkun rafmyntarinnar Bitcoin á pari við orkunotkun Noregs

Þróun orku­notk­unar Bitcoin helst í hendur við verð­þróun mynt­ar­innar. Nýleg hækkun á verði Bitcoin gerir það að verkum að hvati til að grafa eftir henni eykst og orku­notk­unin sömu­leiðis.

Sú hækkun sem orðið hefur á virði Bitcoin nýlega má rekja til umtalsverðra kaupa bílaframleiðandans Tesla á myntinni.
Sú hækkun sem orðið hefur á virði Bitcoin nýlega má rekja til umtals­verðra kaupa bíla­fram­leið­and­ans Tesla á mynt­inni. Mynd: EPA.

Orkuþörf raf­mynt­ar­innar Bitcoin nemur rúm­lega 120 tera­vatt­stundum á árs­grund­velli sam­kvæmt grein­ingu vís­inda­manna við Cambridge háskóla. Til að setja þessa orku­notkun í sam­hengi, þá nam raf­orku­notkun á Íslandi árið 2019 19,5 tera­vatt­stundum sam­kvæmt tölum frá Orku­stofnun.

Það er rétt innan við einn sjötti af þeirri orku sem notuð er til að grafa eftir raf­mynt­inni.

Raf­orku­fram­leiðsla Fljóts­dals­stöðvar

, sem í dag­legu tali er kölluð Kára­hnjúka­virkjun, er um 4,8 tera­vatt­stundir á ári. Því þyrfti 25 slíkar virkj­anir til að anna orku­þörf raf­mynt­ar­innar Bitcoin.

Fjallað er um grein­ingu á orku­notkun í greftri eftir Bitcoin á vef BBC en þar kemur fram að ólík­legt þyki að þessi tala muni lækka á næst­unni, ekki nema að verðið á raf­mynt­inni lækki umtals­vert. Verð fyrir hverja ein­ingu Bitcoin hefur aldrei verið jafn hátt og á allra síð­ustu dögum en það hefur numið rétt um 50 þús­und Banda­ríkja­dölum fyrir hverja ein­ingu, sem sam­svarar um 6,4 millj­ónum króna.

Kaup Tesla á Bitcoin hefur keyrt upp verðið

Þessi verð­hækkun kemur í kjöl­far til­kynn­ingar frá raf­bíla­fram­leið­and­anum Tesla þar sem sagt var frá því að fyr­ir­tækið hefði keypt Bitcoin fyrir um einn og hálfan millj­arð Banda­ríkja­dala og hygð­ist bjóða neyt­endum að borga fyrir bíla fyr­ir­tæk­is­ins með Bitcoin. Sú ákvörðun hefur sætt gagn­rýni og er hún sögð grafa undan áherslum fyr­ir­tæk­is­ins er varða umhverf­is­mál.

Hækkandi verð mynt­ar­innar hefur það svo í för með sér að hvat­inn til þess að grafa eftir mynt­inni eykst. Í áður­nefndri frétt BBC er haft eftir Michel Rauchs, sem vinnur að rann­sókn­inni í Cambridge, að sú hækkun sem orðið hefur á verði mynt­ar­innar upp á síðkastið muni óneit­an­lega auka orku­þörf hennar með auknum greftri.

Á vef Cambridge Centre for Alt­ernative Finance má skoða orku­þörf Bitcoin. Þar er meðal ann­ars hægt að bera ork­una sem raf­myntin notar við orku­notkun ann­arra þjóða. Til dæmis fylgir Bitcoin fast á eftir Norð­mönnum sem nota um 124 tera­vatt­stundir árlega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bitcoin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár