Hulunni mögulega svipt af skapara bitcoin

Ástr­alski kaup­sýslu­mað­ur­inn og tölv­un­ar­fræð­ing­ur­inn Craig Wright hefur nú komið fram í fjöl­miðlum og sagst vera stofn­andi og skap­ari net­gjald­mið­ils­ins bitcoin. Hann vill ekki pen­inga, frægð eða aðdáun fólks. Hann seg­ist vilja vera lát­inn í friði.

Craig Wright, ástr­alskur tölv­un­ar­fræð­ingur og kaup­sýslu­maður, hefur upp­ljóstrað að hann hafi búið til nef­gjald­mið­il­inn bitcoin í nafni Satoshi Nakamoto. Þetta kemur fram á vef BBC en þar við­ur­kennir hann að hafa siglt undir fölsku flaggi og að hafa búið til dul­nefni undir því yfir­skini að fela sitt raun­veru­lega nafn. Mörgum spurn­ingum er þó ósvarað í sam­bandi við opin­berun Wright og ekki eru allir sann­færðir um hann sé sá sem hann seg­ist vera.

Bitcoin var fundið upp árið 2008 og kynnt ári seinna. Myntin var hugsuð sem nýr gjald­mið­ill og ný greiðslu­leið. Með bitcoin var mið­stýr­ingu banka með gjald­mið­il­inn eytt. Myntin var byggð til að frjálst flæði fjár­magns gæti átt sér stað með landamæra­lausum gjald­miðli en þannig kom gjald­mið­ill­inn í veg fyrir að gjald­eyr­is­höft gætu aftrað sér.

Vildi í raun ekki opinbera sig

Wright segir að sumir muni trúa honum og sumir ekki. Honum sé í raun­inni alveg sama. Hann tekur það fram að hann sé aðal­stofn­andi gjald­mið­ils­ins en að aðrir hafi þó hjálpað honum. Hann seg­ist alltaf hafa viljað halda þessum upp­lýs­ingum leyndum og að hann vilji í raun hafa það þannig áfram. Til þess að sanna að hann væri skap­ari bitcoin lagði hann fram tækni­legar sann­anir og með því að nota pen­inga sem aðeins skap­ari mið­ils­ins gæti átt. En þrátt fyrir það er mörgum spurn­ingum ósvarað.

En af hverju kemur Wright fram með þessar upp­lýs­ingar núna? Hann segir að hann hafi ekki haft neitt um það að ráða. Að ákveðnir aðilar hafi ákveðið það fyrir hann. Hann óskar þess að fjöl­skylda hans, vinir og sam­starfs­fé­lagar verði látnir í friði.

Vill ekki peninga, frægð eða aðdáun

Hann tekur það fram að þetta sé í fyrsta og síð­asta skiptið sem hann kemur fram fyrir framan mynda­töku­vél. Að eftir þetta við­tal BBC muni hann ekki aftur koma fram í fjöl­miðlum.

Wright segir að hann vilji halda áfram að vinna og stefni á að gera það. Hann vilji ekki pen­inga, frægð eða aðdáun fólks, hann vilji bara vera lát­inn í friði. Hann seg­ist ekki vilja við­ur­kenn­ingu eða verð­laun fyrir störf sín.

Auroracoin snýr aftur

Íslenska útgáfan af bitcoin kall­ast auroracoin og kom í gagnið vorið 2014. Nú liggur fyrir að kaup­höll með auroracoin muni opna á morgun, þriðju­dag­inn 3. maí, þar sem hægt verður að kaupa og selja net­gjald­mið­il­inn. Þetta kom fram í frétt Við­skipta­blaðs­ins fyrir helgi.

Kjarninn fjall­aði um raf­myntir í við­tali við Banda­ríkja­mann­inn David Lio sem sér­hæfir sig í slíkum myntum. Hann sagði að honum hefði fund­ist hug­myndin um auroracoin áhuga­verð frá upp­hafi. Núna þegar hug­bún­að­ur­inn væri til staðar og opinn öllum væri afar áhuga­vert að huga frekar að dreif­ing­ar­leiðum raf­mynta. Hann bætti við að honum hefði lit­ist vel á Ísland sem til­rauna­vett­vang raf­myntar þar sem allir fengu sinn ókeypis skammt. Þannig væri hægt að sjá hvað ger­ist þegar heilt sam­fé­lag verður með­vitað um raf­mynt.

Í grein­inni kom einnig fram að fræg­asta og jafn­framt verð­mæt­asta raf­myntin væri bitcoin en til eru margar mis­mun­andi raf­myntir. Aur­ora­coin væri sú fyrsta sinnar teg­undar þar sem útdeil­ing mynt­ar­innar byggir á land­fræði­legum grunni. Aldrei áður hefði raf­mynt verið dreift til íbúa á ákveðnu svæði eins og raunin varð í mars 2014 þegar Íslend­ingar gátu sótt sinn skammt af aur­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bitcoin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár