Rafmyntir hrynja í verði

Raf­mynt­irnar Bitcoin og Ether hafa hrunið í verði á und­an­förnum mán­uðum, en fjár­festar eru óvissir um fram­tíð gjald­miðl­anna og tækn­innar sem liggur að baki henni.

Fjárfestar eru óvissir um framtíðarvirði Bitcoin og Ether.
Fjár­festar eru óvissir um fram­tíð­ar­virði Bitcoin og Ether. Mynd: Pexels

Virði raf­mynt­anna Bitcoin og Ether hefur fallið hratt í verði á þessu ári eftir mik­inn vöxt í fyrra. Fjár­festar eru tví­stíg­andi um fram­tíð­ar­virði mynt­anna og blockchain tækn­innar sem hún hvílir á, en margir þeirra trúa enn að það muni vaxa í náinni fram­tíð. Þetta kemur fram í frétt á vef Bloomberg.

Fjár­festar hafa selt hlut sinn í Bitcoin og öðrum raf­myntum í stórum stíl það sem af er mán­uði. Á síð­ustu tveimur vikum hefur virði raf­mynt­ar­innar lækkað úr rúmum átta þús­und Banda­ríkja­dölum niður í tæpar sex þús­und. Þetta jafn­gildir rúmri fjórð­ungs­lækkun á ein­ungis fjórtán dögum, en virði Bitcoin er nú ein­ungis tæp 30 pró­sent af virði hennar í fjár­fest­inga­bólunni í fyrra.

Skiptar skoð­anir eru þó enn meðal verð­bréfa­miðl­ara, þar sem margir þeirra telja gríð­ar­legar lækk­anir raf­mynt­ar­innar und­an­farna mán­uði ein­ungis vera leið­rétt­ing á hjarð­hegðun fjár­festa í fyrra og að virði blockchain tækn­innar muni stíga í náinni fram­tíð.

Kjarninn hefur áður fjallað um áhuga fjár­festa á blockchain tækn­inni á þessu ári, en fyrr í sumar til­kynnti fjár­fest­inga­bank­inn BlackRock að fyr­ir­tækið hafi sett saman starfs­hóp til að meta virði tækn­innar og kosti, þrátt fyrir lít­inn áhuga fjár­festa. Í síð­asta mán­uði til­kynnti svo Kodak að fyr­ir­tækið hafi hætt við verk­efni sitt sem sneri að útleigu á bitcoin-námum eftir að hafa til­kynnt það í fyrra. Þess í stað muni mynda­véla­fyr­ir­tækið ein­beita sér að vinnslu raf­mynta á Íslandi.

Bloomberg fjall­aði einnig um minnk­andi virði raf­mynt­ar­innar Ether í gær, en sam­kvæmt frétt­inni bjugg­ust margir við að hún myndi taka við af Bitcoin sem verð­mætasta raf­myntin eftir að hafa náð 32 pró­sentum af raf­mynt­ar­mark­aðnum í fyrra. Ether hefur hins vegar hrunið í verði líkt og Bitcoin, en virði mynt­ar­innar í dag er ein­ungis tæp 40% af virði hennar í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bitcoin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár