Kodak dregur úr Bitcoin-útrásinni sinni

Kodak hefur hætt við útleigu á bitcoin-námum eftir kynn­ingu á þeim fyrr í ár. Leyf­is­hafi Kodak mun þess í stað ein­beita sér að vinnslu raf­mynta á Íslandi.

Varan KashMiner átti að framleiða Bitcoin-rafmynt fyrir notendur sína.
Varan KashMiner átti að fram­leiða Bitcoin-raf­mynt fyrir not­endur sína. Mynd: Pexels

Kodak hefur hætt við áform sín um að leigja út bitcoin-námur til neyt­enda sinna, en fram­leið­andi námanna mun snúa sér að bitcoin-vinnslu á Íslandi í stað­inn. Þetta kemur fram í nýrri frétt BBC.

Hætt við útrás

Síð­ast­lið­inn jan­úar kynnti Kodak fyr­ir­hug­aða útrás í starf­semi sinni á raf­mynta­mark­að­inn, ann­ars vegar með útgáfu raf­myntar að nafni KodakCoin og hins vegar með upp­setn­ingu raf­mynta­náma til not­enda sinna. Fjár­festar tóku frétt­unum nokkuð vel, en í kjöl­far til­kynn­ing­ar­innar rauk hluta­bréfa­verð Kodak upp í um 120%.[adspot]

Námu­út­leiga fyr­ir­tæk­is­ins átti að fara fram með sér­stakri vöru fyr­ir­tæk­is­ins, KashMiner, sem Kodak kynnti á CES-tækni­ráð­stefn­unni í Las Vegas fyrr á þessu ári. KashMiner var í umsjá leyf­is­hafa Kodak, Spotlite, en til­gangur vör­unnar var að fram­leiða bitcoin-raf­mynt­ina fyrir neyt­endur gegn um 3.400 Banda­ríkja­dala greiðslu.

[links]Fram­kvæmda­stjóri Spotlite, Halston Mikail, lýsti einnig yfir áformum fyrr í ár um að gang­setja hund­ruðir KashMiner-vara hjá höf­uð­stöðvum fyr­ir­tæk­is­ins í New York, en sam­kvæmt honum voru 80 vörur nú þegar starf­ræktar.

Í umfjöllun BBC var verk­efnið harð­lega gagn­rýnt þar sem ekki sást hvernig það myndi ná sínum yfir­lýstu hagn­að­ar­mark­miðum. Kynning Spotlite gerði ráð fyrir mán­að­ar­legum 375 Banda­ríkja­dala tekjum í tvö ár fyrir leigu á tæk­inu, en gagn­rýnendur sögðu fyr­ir­tækið ekki hafa tekið til­lit til vax­andi flækju­stigs bitcoin-náma­vinnslu, sem skili að öllum lík­indum minni hagn­aði í fram­tíð­inni.

Tals­maður Kodak lýsti því svo yfir í við­tali við BBC að einka­leyfi á KashMiner hafi aldrei verið veitt og að engar vörur hafi verið gang­settar. Í við­tali frétta­stof­unnar við Mikail segir hann fjár­mála­eft­ir­lit Banda­ríkj­anna hafa komið í veg fyrir það, en fyr­ir­tækið muni þess í stað ein­beita sér á raf­mynt­ar­vinnslu á Íslandi.

Umfangsmikil framleiðsla á Íslandi

Náma­vinnsla raf­mynta er umtals­verð á Íslandi, en sam­kvæmt nýlegri frétt Grapevine er talið að um það bil 10% allrar raf­mynt­ar­vinnslu heims­ins fari fram hér á landi, þótt nákvæmt umfang sé ekki nákvæm­lega vitað. Stærstu fyr­ir­tækin sem sjá um mynt­ar­vinnsl­una hér­lendis eru að öllum lík­indum Genesis Mining Iceland ehf. og Bitfury Iceland ehf., sam­kvæmt umfjöllun Kvenna­blaðs­ins um málið.

Vinnsla raf­mynta hefur vakið athygli vegna gríð­ar­mik­illar orku­þarfar, en öll fram­leiðsla á bitcoin-raf­myntum er talin eyða um 30,14 Terawattsstundum á ári, en það jafn­gildir meiri raf­orku en heild­ar­neysla Írlands.

Sömu­leiðis greindi Stundin frá orku­freku gagna­veri Advania í Reykja­nesbæ sem notað var til bitcoin-vinnslu, en verið not­aði um eitt pró­sent af allri orku­fram­leiðslu Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bitcoin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár