Kínverjar snúa baki við Bitcoin og verðið fellur

Verð raf­mynt­ar­innar Bitcoin hefur lækkað umtals­vert á und­an­förnum dögum en náði sér aðeins á strik síð­degis í dag. Kín­verjar hafa reynt að stemma stigu við við­skiptum með mynt­ina þar í landi og nýlega var fjölda gagna­vera sem grafa eftir mynt­inni lokað.

Miklar sveiiflur hafa verið á virði rafmyntarinnar Bitcoin síðasta sólarhringinn.
Miklar sveiiflur hafa verið á virði raf­mynt­ar­innar Bitcoin síð­asta sól­ar­hring­inn. Mynd: Pexels

Virði raf­mynt­ar­innar Bitcoin fór niður fyrir 30 þús­und Banda­ríkja­dali, um 3,7 millj­ónir króna, í dag í fyrsta skipti í fimm mán­uði. Síðustu viku hefur virðið verið í miklum lækk­un­arfasa en fyrir viku síðan stóð virði mynt­ar­innar í um og yfir 40 þús­und dölum, sem sam­svarar tæpum fimm millj­ónum króna. Til marks um óstöð­ug­leika í virði mynt­ar­innar þá óx það um meira en 10 pró­sent á tveimur klukku­tímum nú síð­degis í dag úr tæpum 29 þús­und dölum upp í rúm­lega 32 þús­und dali. Lækkun dags­ins gekk þannig til baka en það breytir því ekki að virði mynt­ar­innar hefur lækkað um hátt í fjórð­ung á síð­ustu viku. Hæst fór virði mynt­ar­innar í apríl á þessu ári þegar það stóð í tæpega 65 þús­und dölum.

Fjallað er um virð­is­rýrnun raf­mynt­ar­innar á vef BBC í dag. Þar segir að lækk­un­ina megi að stórum hluta rekja til Kína. Þarlend stjórn­völd hafa á und­an­förnum dögum hert tökin á greftri mynt­ar­innar sem og notkun hennar í við­skiptum. For­svars­menn kín­verskra banka hafa á und­an­förnum dögum verið boð­aðir til fundar í kín­verska seðla­bank­anum og þeir beðnir um að stemma stigu við við­skiptum með raf­mynt­ina.

Bank­arnir hafa ýmist heitið því að hætta alfarið við­skiptum með Bitcoin eða að láta þá sem hyggj­ast nota mynt­ina gang­ast undir áreið­an­leika­könnun, til að koma í veg fyrir ólög­leg við­skipti. Þá hefur greiðslu­miðl­unin Alipay, sem er hluti af Ant Group, heitið því að koma upp kerfi sem mun hafa eft­ir­lit með við­skiptum með raf­myntum.

Grípa til aðgerða gegn greftri Bitcoin

Í fyrra urðu um 65 pró­sent nýrra Bitcoin raf­mynta til í Kína. Myntin verður til með aðferð sem líkt hefur verið við námu­gröft, nema hvað að tölvu­bún­aður sér um námu­gröft­inn sem er í formi flók­inna stærð­fræði­dæma. Þessi gröftur er einkar orku­frekur og með tíð og tíma verða jöfn­urnar sem tölv­urnar þurfa að leysa stöðugt flókn­ari og um leið orku­frek­ari. Í tengslum við þennan námu­gröft hafa risið gagna­ver sem sum hver sinna slíkum námu­greftri.

Nú fyrir helgi til­kynntu yfir­völd í Sichuan hér­aði um lokun 26 slíkra gagna­vera. Sichuan er í öðru sæti á lista yfir þau héruð í Kína sem fram­leiða mest af Bitcoin. Í umfjöllun BBC segir raf­mynta­iðn­að­ur­inn í hér­að­inu hafi byggst upp vegna þess hve margar vatns­afls­virkj­anir sé þar að finna en eins og áður sagði er raf­mynta­gröftur einkar orku­frekur.

Lokun gagna­ver­anna í Sichuan er liður í aðgerðum kín­verskra stjórn­valda til að herða tökin á raf­myntum sem kynntar voru í síð­asta mán­uði. Stjórn­völd vilja með því draga úr þeirri áhættu sem kann að fylgja mynt­inni. Þar í landi hafi lítið eft­ir­lit verið haft með mynt­inni og hún notuð í við­skiptum á svarta mark­aðnum, í pen­inga­þvætti, vopna­við­skiptum, veð­mála­starf­semi og í við­skiptum með eit­ur­lyf, líkt og segir í frétt Reuters.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bitcoin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár