Vill byggja „Bitcoin-borg“ í El Salvador

Forseti El Salvador hyggst byggja nýja skattapara­dís í land­inu sem verður kennd við raf­mynt­ina Bitcoin. Upp­bygg­ing borg­ar­innar verður fjár­mögnuð með skulda­bréfa­út­boði, en stefnt er að því að virkt eld­fjall verði meg­in­orku­gjafi hennar.

Forseti El Salvador, Nayib Bukele, við kynningu á fyrirhugaðri uppbyggingu Bitcoin-borgarinnar um helgina.
Forseti El Salvador, Nayib Bukele, við kynn­ingu á fyr­ir­hug­aðri upp­bygg­ingu Bitcoin-borg­ar­innar um helg­ina. Mynd: EPA

Rík­is­stjórn El Salvador mun hefj­ast handa við að byggja nýja borg í land­inu á næsta ári sem verður laus við alla tekju- og eign­ar­skatta og verður kennd við raf­mynt­ina Bitcoin. Þessu lýsti for­seti lands­ins, Nayib Bukele, yfir á laug­ar­dag­inn á hátíð sem helguð var raf­mynt­inni.

Hátíðin, sem haldin var í til­efni þess að tveir mán­uðir séu liðnir síðan að Bitcoin varð að þjóð­ar­gjald­miðli El Salvador, stóð yfir alla síð­ustu vik­una. Á loka­kvöldi hennar kynnti Bukele frá áformum sínum, sem hann segir munu verða fjár­mögnuð með útboði rík­is­skulda­bréfa að and­virði eins millj­arðs Banda­ríkja­dala. Samkvæmt rík­is­stjórn lands­ins munu fram­kvæmdir hefj­ast 60 dögum eftir útboðið.

Samkvæmt umfjöllun Financial Times um málið mun borgin og inn­viðir hennar ein­ungis verða fjár­magn­aðir með umræddu skulda­bréfa­út­boði, auk sölu­skatta. Tekjur og eignir borg­ar­búa muni hins vegar vera algjör­lega skatt­frjálsar.

Borgin mun vera stað­sett í aust­ur­hluta lands­ins, nálægt eld­fjall­inu Conchagua. Samkvæmt Bukele mun eld­fjallið verða orku­gjafi fyrir borg­ina, auk þess sem hægt verði að nota eld­fjalla­ork­una í raf­mynta­vinnslu.

Vinsæll en með einræðistilburði

Bukele, sem er fer­tugur og fyrrum borg­ar­stjóri höf­uð­borg­ar­innar San Salvador, tók við sem for­seti El Salvador fyrir tveimur árum síðan. Hann nýtur gríð­ar­legra vin­sælda í land­inu ef marka má skoð­ana­kann­anir, en þær sýna að hann hefur stuðn­ing rúm­lega 80 pró­senta lands­manna.

Hins vegar greinir Financial Times frá and­lýð­ræð­is­legum til­burðum for­set­ans, en hann hefur styrkt völdin sín með því að reka alla dóm­ara sem eru yfir sex­tugu og með því að skipta út fimm dóm­urum í hæsta­rétti lands­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bitcoin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár