BlackRock íhugar rafmyntir

Stærsta eign­ar­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæki heims­ins hefur sett saman starfs­hóp til að kanna hugs­an­legar fjár­fest­ingar í blockchain-tækn­inni og raf­myntir sem byggðar eru á henni.

Larry Fink, framkvæmdastjóri eignastýringarfyrirtækisins BlackRock.
Larry Fink, fram­kvæmda­stjóri eigna­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins BlackRock. Mynd: EPA

Larry Fink, fram­kvæmda­stjóri BlackRock sagði í gær fyr­ir­tækið hafa sett saman starfs­hóp til að meta blockchain-tækni auk raf­mynta, en bætti þó við að eft­ir­spurn fjár­festa eftir því sé ekki gríð­ar­leg. Frá þessu er greint á vef frétta­stofu Reuters.

Samkvæmt Reuters yrðu hugs­an­legar fjár­fest­ingar BlackRock í blockchain-tækn­inni gríð­ar­mikil lyfti­stöng fyrir hana og grund­völlur fyrir aukin við­skipti í raf­myntum, en slíkir gjald­miðlar hafa ekki enn orðið fyr­ir­ferða­mikil í fjár­mála­við­skiptum á heims­vísu.

Viðhorf Fink til við­skipta­tækn­innar hefur breyst frá síð­ast­liðnum nóv­em­ber, en í fyrri við­tali við frétta­stof­una lýsti hann fjár­fest­ingum í gjald­miðl­inum bitcoin sér­stak­lega sem „spá­kaup­mennsku“ vegna óvissu sem væri við­loð­andi raf­mynt­ina.

„Við erum lær­lingar þegar kemur að blockchain,“ segir Fink í við­tali við Reuters. Hann bætir við að hann sjái ekki gríð­ar­lega eft­ir­spurn meðal fjár­festa í tækn­inni, en fyr­ir­tækið hafi þó stofnað starfs­hóp til að kanna kosti hennar.

[links]Mikill styr hefur verið um bitcoin-raf­mynt­ina und­an­farið ár, en virði hennar tók stökk á seinni hluta síð­asta árs og náði hápunkti í tæpum 20 þús­und Banda­ríkja­dölum, miðað við gengi nálægt þús­und dölum við byrjun árs­ins. Virði mynt­ar­innar hefur lækkað tölu­vert und­an­farið og stendur nú í um 6.600 dölum.

BlackRock, sem er stærsta eigna­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækið í heimi, skil­aði rúm­leg millj­arða Banda­ríkja­dala hagn­aði á nýliðnum árs­fjórð­ungi, sem er fjórð­ungs­hækkun frá því á sama tíma­bili á síð­asta ári. Fyr­ir­tækið hefur meðal ann­ars hagn­ast gríð­ar­lega á nýlegri skatta­lækkun á fyr­ir­tæki í Banda­ríkj­unum, en skatt­greiðslur BlackRock sem hluti af tekjum lækk­aði úr 30 pró­sentum niður í 24 pró­sent á árinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

blockchain

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár