Að breyta íslensku krónunni í rafmynt

Sér­fræð­ingur í gjald­eyr­is­málum smá­ríkja og raf­mynt segir aðstæður á Íslandi kjörnar til þess að breyta íslensku krón­unni í raf­mynt. Slíkt gæti aukið stöð­ug­leika og tryggt öfl­ugra efna­hags­líf.

Sveiflur íslensku krón­unnar hafa bæði valdið miklum erf­ið­leikum og góð­æri með stuttu milli­bili. Íslenska krónan hefur sem greiðslu­mið­ill, mæli­ein­ing og geymslu­mið­ill oftar en ekki reynst ótraust. Nota­gildi hennar á erlendum mörk­uðum er tak­markað, stjórn­völd hafa oft brugð­ist í gegnum tíð­ina með stjórnun pen­inga­mála, Íslend­ingar hafa búið við miklar hag­sveiflur, ítrek­aðar geng­is­fell­ingar, hátt vaxt­ar­stig, geng­is­fall íslensku krón­unnar og við­var­andi verð­bólgu. Margir vilja meina að full­reynt sé að nota íslensku krón­una sem gjald­miðil. Eigum að hætta að reka okkar eigin pen­inga­stefnu og taka upp annan gjald­miðil eða er mögu­legt að halda krón­unni og breyta henni í raf­mynt? Gæti það tryggt fram­halds­líf hennar og jafn­vel skapað ný tæki­færi?

„Blockchain-tæknin býður upp á milli­liða­laus við­skipti sem er stór­kost­legt tæki­færi fyrir smá­ríki. Kaup­endur og selj­endur koma ekki fram undir nafni eða kenni­tölu, engin mynt er slegin og engir seðlar prent­aðir. Hvorki seðla­banki né yfir­völd stýra gengi eða flæði; það er ein­fald­lega fram­boð og eft­ir­spurn sem ræður ferð­inni. Rafmynt verður uppi­staðan í greiðslu­miðlun á 21. öld­inni, nú er tím­inn til að hefj­ast handa. Tæki­færin fyrir Íslend­inga eru stór­kost­leg. Breytið krón­unni ykkar í raf­mynt,„ segir Robert Koenig sem hefur fylgst grannt með þróun raf­myntar eftir að blockchain-tæknin og bitcoin litu dags­ins ljós fyrir um tíu árum síðan. Koenig er einnig fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins Xentavo, sem hefur það mark­mið að inn­leiða blockchain-lausnir fyrir smá­ríki, enda hefur hann rann­sakað slík og efna­hag þeirra, sér í lagi í lönd sem hafa orðið fyrir efna­hags­á­föllum og nátt­úru­ham­förum.

[adpsot]Hann segir það geta verið flókið og erfitt fyrir smá­ríki að reka eigin gjald­miðil. „Örmyntir geta skapað óvissu og áhættu í við­skiptum og þegar þarf að skipta á milli gjald­miðla í við­skiptum við önnur lönd. Smáríki eiga það nán­ast öll sam­eig­in­legt, sama hversu ólík þau eru, að hafa lent í ein­hvers konar áföllum vegna pen­inga­stefnu og gjald­eyr­is­mála. Þau eru við­kvæm­ari og geta hrunið á einni nóttu, bæði vegna nátt­úru­ham­fara og þegar sveiflur verða á heims­mörk­uðum. Snöggar og ófyr­ir­sjá­an­legar gjald­eyr­is­sveiflur bitna alltaf sér­stak­lega illa á smá­ríkjum. Gróð­ur­húsa­á­hrifin eiga eftir að hafa umtals­verð áhrif á efna­hags­líf heims og smá­ríkin verða að fara und­ir­búa sig betur fyrir stóru höggin sem eiga eftir að koma.“

Má ekki rugla saman blockchain og bitcoin

Aðspurður um hvernig þau eigi að und­ir­búa sig fyrir þessi högg segir Koenig að hann leggi til að smá­ríkin breyti núver­andi pen­inga­stefnu og færi sig yfir raf­mynt. „Það er hægt að breyta núver­andi gjald­miðlum í raf­mynt, nýta sér blockchain-tækn­ina til þess að tryggja þau betur fyrir stórum áföllum. Gjald­miðlar smá­ríkja, eins og íslenska krónan, eru afar háð öðrum stærri og sterk­ari, eins og doll­ara og evru. Blockchain-tæknin mun gera öll við­skipti mun hrað­virk­ari, ein­fald­ari, gegn­særri og örugg­ari. Það skapar meira traust sem er lyk­il­at­riði þegar við­skipti eru ann­ars vegar.“

En hvernig geta smá­ríki varið sig sveiflum og skapað traust með raf­mynt – sem hefur nú varla verið stöð­ugur gjald­mið­ill? Bitcoin hefur flogið upp og niður síð­ast liðið ár. Margir eru raunar efins um að bitcoin sé raun­veru­legur gjald­mið­ill. Koenig segir að til að byrja með eigi ekki að rugla saman blockchain og bitcoin. „Bitcoin getur flogið upp og niður og verið á valdi brask­ara, en það breytir ekki því að blockchain er stór­kost­leg tækni sem knýr áfram raf­mynt eins og bitcoin og blockchain býður upp á mikla mögu­leika á ýmis­konar sviðum, sér í lagi í milli­liða­lausum við­skiptum. Það er allt að verða staf­rænt, pen­ingar eru orðnir það að ein­hverju leyti en eiga eftir að verða það alfarið í ein­hvers­konar formi. Það tekur of langan tíma að færa pen­inga milli fólks, milli landa, það er of dýrt, bank­arnir taka of mikið til sín, það er orðin almenn krafa að þessu þurfi að breyta með ein­hverjum hætti. En tökum Ísland sem dæmi:

Stafræn íslensk króna gæti ennþá verið í umsjá seðla­banka, gengið er skráð þar en öll við­skipti myndu verða mun lið­legri og örugg­ari; allar færslur sýni­legri, rekj­an­legar og örugg­ari með blockchain tækni. Öll umsýsla krón­unnar bygg­ist því á neti fólks sem myndi nota krón­una. Allar milli­færslur og verslun færu beint í gegn án þess að þriðju aðili, bankar eða kredit­korta­fyr­ir­tæki, kæmu þar að. Þessi tækni býður líka upp á per­sónu­vernd, milli­færslur eru nafn­lausar, við­skipti þín eru alltaf þín einka­mál. Frjáls við­skipti án allra landamæra.“

Ísland spennandi staður til að gera tilraunir

Þá vaknar eðli­lega sú spurn­ing hvort að slíkt kerfi bjóði ekki hætt­unni heim. Yrði Ísland ekki kjör­lendi fyrir skatt­svik og önnur glæp­sam­leg við­skipti ef landið tæki slíkt upp? Koenig er ekki á því. „Blockchain er listi af skrám, listi yfir allar færslur sem allir hafa aðgang að. Slíkt kerfi á að geta gert allt gegn­sætt og koma í veg fyrir skatta­skjól og slíka starf­semi sem og hvít­þvott á pen­ingum. Það er mun auð­veld­ara að rekja við­skiptin. Þetta er á allan hátt örugg­ari og skil­virk­ari gagna­flutn­ingur. Öruggari við­skipti.“

Rannsókn Koenig byggir á smá­ríkjum í Mið- og Suður-Ameríku. Hann segir að Ísland hafi sér­stöðu og sé í raun afar merki­legt efna­hags­kerfi sem yrði gaman að velta fyrir sér og skoða. „Þróað efna­hags­ríki, mikil menntun og hag­sæld. Gnægð af orku­auð­lindum og í raun afar spenn­andi staður til þess að prófa að gera til­raunir í þessa átt. Blockchain-tæknin býður upp á milli­liða­laus við­skipti sem er stór­kost­legt tæki­færi fyrir smá­ríki. Ríkið sjálft gæti verið í mun ein­fald­ari og örugg­ari fjár­hags­legum sam­skiptum við þegna lands­ins. Ég veit að íslenska krónan hefur oft verið ykkur erfið, til að mynda í efna­hags­hrun­inu 2008 þegar margir misstu aleig­una vegna bank­anna og slæmra ákvarð­ana sem þar voru teknar. Íslend­ingar hafa rætt um upp­töku evru sem hefur bæði sína kosti og galla. Það er alltaf erfitt fyrir smá­ríki að vera háð seðla­bönkum og ákvörð­unum ann­arra ríkja. Með upp­töku evru yrði Ísland í raun algjör­lega háð þýskri efna­hags­stefnu.“

Telur Koenig þá að íslensk króna sem raf­mynt yrði örugg­ari gjald­mið­ill en evra? Hann er að minnsta kosti sann­færður um að íslensk króna sem raf­mynt yrði öllum Íslend­ingum til bóta og líka þeim sem eiga við­skipti við Ísland og vilja fjár­festa þar. „Ég veit að land eins og Eistland hefur mik­inn áhuga að taka upp raf­mynt sem opin­beran gjald­miðil. Eistar hafa verið að gera afar athygl­is­verðar til­raunir, eins og til að mynda með staf­rænan rík­is­borg­ara­rétt, nú er hægt að ger­ast rík­is­borg­ari, stofna fyr­ir­tæki og opna banka­reikn­ing í Eist­landi á innan við 10 mín­útur á net­inu. Þetta hefur stór­aukið við­skipti og fjár­fest­ingar í land­inu. Fjölmörg ISO blockchain fyr­ir­tæki hafa sest þar að og nú vilja Eistar ganga skref­inu lengra og taka upp raf­mynt, en þeir eru þá þegar með evru sem gerir þeim erfitt fyrir. En Ísland er ennþá með sína íslensku krónu, einn smæsta gjald­miðil heims, sem væri hægt, og meira segja mjög auð­veld­lega hægt að breyta í raf­mynt. Ég myndi aldrei í ykkar sporum taka upp evru eða dollar. Notfærið ykkur mögu­leik­ana, þið eruð með eigin gjald­miðil, það er þessi nýja blockchain-tækni sem er hægt að gera ýmis­legt með. Ísland er sterkt lýð­ræð­is­ríki og vald­dreif­ing og lýð­ræði er einmitt megin hug­sjónin á bak­við blockchain. Þið gætuð skapað nýtt efna­hags­líf sem ætti sér ekk­ert sam­bæri­legt dæmi í heim­inum. Þið eigið heims­met í net­notkun, far­síma­notkun. Þetta er tækni­vædd og fámenn þjóð sem hefur efni á að gera slíkar til­raunir. Við stöndum á kross­götum, það er allt að fara breyt­ast mikið og hratt á næstu árum, fjórða iðn­bylt­ingin er að bresta á, þeir sem þora að gera til­raunir, standa og falla með þeim, eiga eftir að hagn­ast á því síðar meir. Þeir sem vilja engu breyta, eiga eftir að brotna niður. Stjórn­völd eiga að hugsa um þegn­ana sína, tryggja þeim öryggi, gera þeim lífið bæri­legra. Að skapa örugg­ara og mark­viss­ara pen­inga­kerfi og tryggja stöð­ug­leika.“

Vel hægt að vera með tvöfalt kerfi

Aðspurður um fram­kvæmd­ina þá segir Koenig að það væri vel hægt að vera með tvö­falt kerfi: raf­mynt og á sama tíma hefð­bundið pen­inga­kerfi. Það væri hægt að tengja íslensku krón­una við aðra raf­myntir, eins og t.d. ether­eum. Koenig segir að það tæki stund­ar­fjórð­ung að gera það. „En ef þið viljið gera þetta með skyn­sam­legri hætti mynduð þið skrá krón­una sem raf­mynt og velja við­eig­andi vett­vang til þess, þið mynduð hanna ykkar eigin blokk (blockchain) til þess að halda utan um mynt­ina. Á sama tíma væri áfram hægt að nota pen­inga­seðla, kredit­kort - raf­mynt, staf­rænt pen­inga­kerfi yrði við­bót. Íslend­ingar njóta þeirrar sér­stöðu að vera ekki í ESB, ekki með evru, þess vegna getið þið prófað til­raunir í þessa átt. Þetta er Sviss að gera þessa dag­ana, Sviss­lend­ingar eru afar íhalds­samir og öruggir þegar kemur að pen­inga­málum en þeir eru leið­andi þegar kemur að til­raunum með raf­mynt. Víða í Sviss er hægt að stunda öll sín við­skipti með raf­mynt og þeir eru þá þegar byrj­aðir að umbreyta banka­kerf­inu sínu í þessa átt, ekki síst vegna þess að þetta er frjálst, óháð ríki eins og Ísland. Sviss hafa í gengum tíð­ina þorað að fara aðrar leiðir, t.d. í stjórn­kerf­inu. Þetta hug­rekki hefur gef­ist þeim vel.“

[adspot]Koenig segir að helstu kost­irnir við það að gera íslensku krón­una að raf­mynt yrðu aukin hag­sæld og aukið öryggi. Aðal­at­riðið í breyt­ing­unni yrði ekki að gera pen­inga­kerfið alfarið staf­rænt, það er það nú þegar að stórum hluta. Blockchain-tæknin gerir, að mati Koenig, allt pen­inga­kerfið hins vegar lýð­ræð­is­legra, opn­ara og heil­brigð­ara. Krónan sem raf­mynt væri ekki háð sveiflum á gjald­eyr­is­mörk­uðum, mis­vitrum seðla­banka­stjórum, kreppum, eða ákvörð­unum ESB eða Alþjóða gjald­eyr­is­sjóðnum. Notendur raf­krón­unnar myndu alfarið stýra henni. Þetta ein­faldar kerfið.“

Blockchain er auð­vitað ekk­ert galla­laust heldur, að sögn Koenig. Ekkert kerfi er full­komið. „Blockchain krefst mik­illar orku, sem þið hafið, þetta eru þungir og miklir gagna­flutn­ingar en ég hef trú á því að þau vanda­mál verði fljót­lega leyst. Það tekur líka tíma fyrir fólk að læra á og nýta sér nýja tækni. Þess vegna er það Íslend­ingum í hag að taka þessum breyt­ingum með opnum huga.“

Hann er þó í engum vafa um að blockhain-tæknin muni hafa mikil áhrif í kom­andi fram­tíð. „Þetta er að bresta á núna og á næstu tíu árum geri ég ráð fyrir því að um 25 pró­sent af öllum við­skiptum heims muni fara fram með þeirri tækni. Alda­mó­ta­kyn­slóðin er tækni­vædd og nýj­unga­gjörn og allar rann­sóknir sýna að þessu fólki er í nöp við bank­ana, telur núver­andi fjár­mála­kerfi ósann­gjarnt og ómann­úð­legt – það vill nýtt kerfi. Rafmynt er svar við því kalli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

blockchain

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár