Ísland tilraunastofa fyrir rafmyntir

Hversu magnað væri það ef allir í sam­fé­lag­inu ekki aðeins vissu af ákveð­inni raf­mynt, heldur ættu eitt­hvað af henni líka? Mér fannst hug­myndin frá­bær,“ segir Banda­ríkja­mað­ur­inn David Lio um hug­mynd­ina að baki íslensku raf­mynt­inni Auroracoin, eða AUR. Á und­an­förnum mán­uðum hefur hann lagt sitt á vog­ar­skál­arnar til að auka hróður mynt­ar­innar. Meðal ann­ars heldur hann úti heima­síð­unni auroracoin.com og hefur kynnt aurana á ráð­stefnum vest­an­hafs til­eink­aðar raf­myntum.

David er búsettur í New York-borg, þar sem hann rekur lítið ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tæki að nafni CoinHeavy. Það sér­hæfir sig í svoköll­uðum raf­myntum eða dulkóð­un­ar­gjald­miðlum (e. cryptocurrency). Frægust og jafn­framt verð­mæt­ust raf­mynta er Bitcoin en til eru hund­ruð mis­mun­andi raf­mynta. Aurora­coin er sú fyrsta sinnar teg­undar þar sem útdeil­ing myntar­innar byggir á land­fræði­legum grunni. Aldrei áður hefur raf­mynt verið dreift til íbúa á ákveðnu svæði, eins og raunin varð í mars þegar Íslend­ingar gátu sótt sinn skammt af aurum.

Hreifst af hug­mynd­inni

„Þegar ég fyrst sá til­kynn­ing­una um Auroracoin á spjall­borði um raf­myntir fannst mér hug­myndin afar áhuga­verð. Samfélag þeirra sem fylgj­ast með, þróa og nota raf­myntir er fyrst og fremst á net­inu. Spjall­borðin eru full af afar tækni­færum ein­stak­lingum og þar eru margir til­búnir að aðstoða við verk­efni sem tengj­ast raf­myntum,“ segir David þegar hann er spurður um kynni sín af Auroracoin. „En þegar maður ræðir við ein­stak­linga sem standa utan sam­fé­lags­ins spyrja þeir oft sömu spurn­ing­ar­innar: Hvernig er raf­mynt­unum dreift? Þá eru þeir ekki að spyrja um tækni­legu hlið­ina heldur hverjir það eru sem raun­veru­lega eiga mynt­irnar í dag. Spurn­ingin á rétt á sér. Núna þegar hug­bún­að­ur­inn er til og er opinn öllum (e. open source) er afar áhuga­vert að huga frekar að dreif­ing­ar­leið­unum. Ég vissi ekki mikið um Ísland. Því meira sem ég frædd­ist, þeim mun betur leist mér á landið sem til­raun­ar­vett­vang raf­myntar þar sem allir fá sinn skammt ókeypis. Þannig sjáum við hvað ger­ist þegar heilt sam­fé­lag verður með­vitað um raf­mynt.“

Hvers vegna eru raf­mynt­irnar orðnar svona margar? Gætu Íslend­ingar t.d. ekki bara notað Bitcoin í stað þess að nota eigin raf­mynt, ef þeir vilja not­ast við slíkan gjald­miðil á annað borð?

„Bitcoin er enn í þró­un­ar­ferli (e. beta), rétt eins og allar aðrar raf­myntir. Bitcoin hefur reynst nokkuð vel en hver ein­ing kostar hund­ruð doll­ara. Þegar sú er raunin eru fáir til­búnir að prófa sig áfram (e. experiment) með mynt­ina. Ef ein­hver gefur mér raf­mynt er ég mun lík­legri til þess að prófa mig áfram og gera frek­ari til­raunir við að nota hana. Ef ég tapa ein­hverju þá skiptir það litlu máli.“

David segir að þrátt fyrir að raf­mynt­irnar, not­enda­hóp­ur­inn og mark­að­ur­inn í kringum þær hafi þró­ast afar hratt að und­an­förnu lifum við enn árdaga mynt­anna. Hann hvetur Íslend­inga til að sækja sína aura og skipta hluta þeirra í aðrar raf­myntir eins og Bitcoin. „Þá fæst aðeins betri til­finn­ing fyrir raun­veru­legu virði mynt­ar­innar. Það er hægt að nota Bitcoin við ótal­margt á net­inu,“ segir hann.

Lesið umfjöll­un­ina í heild í Kjarn­anum í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár