Stjórnendur Facebook tilkynntu í morgun að fyrirtækið hefði í huga að koma á fót eigin rafmynt. Rafmyntin mun bera heitið Libra og mun vera notendum aðgengileg árið 2020.
Hægt verður að nota rafmyntina til að greiða fyrir hluti í daglegu lífi auk þess verður hægt að nota hana til þess að greiða fyrir hluti eða þjónustu á netinu.
[adspot]Rafmyntin er þróuð í samstarfi við 27 önnur fyrirtæki, til að mynda Uber og Mastercard. Áhyggjur eru yfir því að Facebook muni auka völd sín yfir notendum sínum um of og hafa of miklar upplýsingar um notendur sína verði rafmyntin að veruleika, að því er kemur fram í frétt The New York Times.
Facebook staðhæfir að fjárhagsupplýsingar verði ekki notaðar til þess að sérsníða auglýsingar á samfélagsmiðlaforritinu.
Verði Libra að veruleika verður fjármálakerfi þess ekki stjórnað af seðlabanka. Hægt verður að borga fyrir ýmsa þjónustu með rafmyntinni, að því er kemur fram í frétt The New York Times. Slíkt geti bætt samkeppnisstöðu Facebook við önnur samfélagsmiðlaforrit sem bjóða upp á greiðsluþjónustu, líkt og hið kínverska WeChat.
Nái Libra vinsældum hjá 2,4 milljörðum notendum Facebook, gæti það haft veruleg áhrif á fjármálakerfi heimsins. Ýmsir bandarískir og breskir embættismenn hafa einmitt lýst yfir áhyggjum sínum af slíkri þróun samfélagsmiðlarisans.
Þá kemur fram í fréttinni að Libra muni vera stjórnað af the Libra Association, sem ekki verði rekið í gróðrarskyni. Libra muni notast við svokallaða Blockchain, eða skjalakeðju, líkt og rafmyntin Bitcoin gerir.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir