Geta rafmyntir bjargað Pútín frá viðskiptaþvingunum?

Ólíklegt er að Rússar kom­ist auð­veld­lega hjá við­skipta­þving­unum Vest­ur­veld­anna með auk­inni notkun raf­mynta. Hins vegar gætu þeir aukið útflutn­ings­tekjur sínar með raf­mynta­vinnslu og einnig aukið fjár­hags­legt sjálf­stæði sitt með „raf­rúblu“.

Rússland gæti stuðst við notkun raf­mynta til þess að draga úr nei­kvæðum áhrifum nýlegra efna­hags­þving­ana vegna inn­rás­ar­innar í Úkraínu með hjálp raf­mynta. Stórir raf­mynta­mark­aðir hafa ákveðið að loka ekki á rúss­neska reikn­inga, en sér­fræð­ingar telja það þó ekki lík­legt að Rússar muni geta stundað umfangs­mikil milli­ríkja­við­skipti með hjálp þeirra.

Rafmyntamarkaðir loka ekki á Rússa

Raf­myntir hafa verið nefndar sem mögu­leg und­an­komu­leið rúss­neskra fjár­festa frá efna­hags­þving­unum Vest­ur­veld­anna, en mörgum rúss­neskum bönkum hefur nú verið hent úr alþjóð­lega SWIFT-greiðslu­kerf­inu, auk þess sem eignir rúss­neskra auð­manna hafa verið frystar víða í Evrópu og Banda­ríkj­unum.

Mykhailo Fedorov, aðstoð­ar­for­sæt­is­ráð­herra Úkraínu, kall­aði eftir því með Twitter-færslu á sunnu­dag­inn að allir helstu raf­mynta­mark­aðir ættu að loka á við­skipti við alla rúss­neska not­endur þeirra. Færsluna má sjá hér að neðan.

Stærsti raf­mynta­mark­aður heims, Binance, hefur svarað þessu ákalli neit­andi og seg­ist ekki vilja frysta við­skipti hjá millj­ónum af eigin við­skipta­vinum ein­hliða. Samkvæmt frétt CNBC seg­ist Binance þó fylgja yfir­stand­andi efna­hags­þving­unum Vest­ur­landa gegn völdum rúss­neskum auð­mönnum. Einnig bætir mark­að­ur­inn við að hann muni vera sam­stíga alþjóða­sam­fé­lag­inu og fram­fylgja öllum efna­hags­þving­unum sem það stígur fram með.

Ólíklegur bjargvættur

Þrátt fyrir þessar yfir­lýs­ingar telja sér­fræð­ingar sem frétta­stofa NBC ræddi við það vera ólík­legt að raf­myntir verði not­aðar í miklu mæli til að koma háum fjár­hæðum til og frá land­inu. Samkvæmt þeim hefur eft­ir­lit með raf­myntum stór­auk­ist, þannig að auð­veld­ara sé að fylgj­ast með grun­sam­legum milli­færslum milli landa.[adspot]

Starfs­menn banda­ríska fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins svör­uðu á svip­uðum nótum í frétt Politico um málið, en þar sögðu þeir að ráðu­neytið hefði ekki miklar áhyggjur af viða­miklum pen­inga­þvætti rúss­neskra yfir­valda í gegnum raf­myntir, þar sem stór við­skipti yrðu sýni­leg á alþjóð­legum mörk­uðum.

Aðrar þjóðir sem hafa orðið fyrir miklum við­skipta­þving­unum, líkt og Íran og Norður-Kórea, hafa leitað til raf­mynta til að stunda milli­ríkja­við­skipti og fela eignir auð­manna. Samkvæmt við­mæl­endum Al Jazeera yrði þó erfitt fyrir Rússland að feta í fót­spor þeirra, þar sem fjár­mála­kerfið þar er mun tengd­ara alþjóð­legum fjár­mála­mörk­uðum.

Aðrar leiðir mögulegar

Aftur á móti gætu rúss­nesk stjórn­völd notað raf­myntir á ýmsan hátt til að milda efna­hags­höggið sem við­skipta­þving­an­irnar hafa veitt þeim. Lokist á gas­út­flutn­ing til Evrópu gæti landið til dæmis notað orku­fram­leiðslu sína til að stór­auka raf­mynta­gröft, en þannig gætu útflutn­ings­tekjur lands­ins auk­ist.

Samkvæmt Al Jazeera yrðu tekj­urnar af þeim útflutn­ingi þó ein­ungis agn­ar­smár hluti af tekju­fall­inu sem við­skipta­bann á jarð­gasi og olíu myndi fela í sér.

Önnur leið til að kom­ast hjá efna­hags­þving­unum væri með svo­kall­aðri „raf­rúblu,“ sem er raf­eyrir sem Seðla­banki Rúss­lands hefur til­kynnt að sé í vinnslu. Samkvæmt umfjöllun New York Times um málið gæti slíkur gjald­mið­ill aukið sjálf­stæði Rúss­lands gagn­vart Banda­ríkj­unum, þar sem Rússar gætu þá átt við­skipti við önnur lönd án þess að fara í gegnum alþjóð­lega banka­kerfið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

rafmyntir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár