Tesla snýr baki við Bitcoin

Raf­bíla­fram­leið­and­inn Tesla hefur selt megnið af eign­ar­hlut sínum í raf­mynt­inni Bitcoin. Fyr­ir­tækið keypti tals­vert af Bitcoin í fyrra og Elon Musk hét því að fyr­ir­tækið myndi ekki selja. Enn eitt svikið lof­orð Musks segir sér­fræð­ingur í tækni­málum.

Elon Musk er ríkasti maður heims. Hér heldur hann tölu við opnun nýrrar verksmiðju rafbílaframleiðandans Tesla í Gruenheide í útjaðri Berlínar í mars síðastliðnum.
Elon Musk er rík­asti maður heims. Hér heldur hann tölu við opnun nýrrar verk­smiðju raf­bíla­fram­leið­and­ans Tesla í Gru­en­heide í útjaðri Berlínar í mars síð­ast­liðnum. Mynd: EPA

Raf­bíla­fram­leið­and­inn Tesla hefur losað sig 75 pró­sent af eignum sínum í raf­mynt­inni Bitcoin. Virði raf­mynt­ar­innar hefur hríð­fallið á síð­ustu miss­erum og er virði eins Bitcoin nú rúm­lega 22 þús­und Banda­ríkja­dalir, rúmar þrjár millj­ónir króna. Þegar virði raf­mynt­ar­innar stóð sem hæst í nóv­em­ber á síð­asta ári var verðið tæp­lega 69 þús­und dalir, sem sam­svarar tæp­lega níu og hálfri milljón króna.

Fram kemur í umfjöllun BBC að fyr­ir­tækið hafi selt Bitcoin fyrir um 936 millj­ónir Banda­ríkja­dala, það er um 129 millj­arðar króna. Við lok síð­asta árs var and­virði raf­mynt­ar­innar sem fyr­ir­tækið hefur nú selt mun hærra eða um tveir millj­arðar Banda­ríkja­dala, um 275 millj­arðar króna.

Stærsti hlut­hafi fyr­ir­tæk­is­ins og for­stjóri þess, Elon Musk, hefur verið ötull tals­maður raf­mynta á borð við Bitcoin. Þannig hafa tíst hans um kaup á hinum ýmsu raf­myntum haft mikil áhrif á bæði verð þeirra og umfang við­skipta með raf­mynt­irnar.

Hét því að selja ekki

Í febr­úar á síð­asta ári greindi fyr­ir­tækið frá því að það hefði keypt Bitcoin fyrir einn og hálfan millj­arð dala, rúm­lega 200 millj­arða króna. Í kjöl­far kaupanna jókst eft­ir­spurn eftir raf­mynt­inni til muna.

Í maí í fyrra greindi fyr­ir­tækið aftur á móti frá því að kaup­endum raf­bíla fyr­ir­tæk­is­ins stæði ekki lengur til boða að greiða fyrir bíl­ana með Bitcoin. Í yfir­lýs­ingu sem Musk sendi frá sér á Twitter í kjöl­farið sagði hann það gert vegna áhyggja af notkun jarð­efna­elds­neytis við vinnslu raf­mynt­ar­innar en svo­kall­aður námu­gröftur (e. mining) eftir Bitcoin fer fram með orku­frekum tölvum. Í yfir­lýs­ing­unni sem sjá má hér að neðan sagði Musk einnig að fyr­ir­tækið ætl­aði ekki að selja eign­ar­hlut sinn sem bund­inn var í Bitcoin og að það hygð­ist bjóða upp á notkun raf­mynt­ar­innar í við­skiptum um leið og sjálf­bær­ari leiðir til Bitcoin vinnslu stæðu þeim sem grafa eftir mynt­inni til boða.

Taka þurfi orðum Musks með ákveðnum fyrirvara

Sér­fræð­ingur BBC í banda­ríska tækni­geir­anum, James Clayton, ritar að þetta sé enn eitt lof­orðið sem Musk stendur ekki við og áminn­ing um að taka þurfi orðum auð­kýf­ings­ins með ákveðnum fyr­ir­vara. Orð hans, sem svo sann­ar­lega geti haft mikil áhrif á mark­aði, séu alls ekki meit­luð í stein, ritar Clayton.

Töluvert hefur verið fjallað um fyr­ir­huguð kaup Musk á sam­fé­lags­miðl­inum Twitter sem hann reynir nú að losna undan. Twitter hefur stefnt Musk fyrir að standa ekki við bind­andi kauptil­boð sem Musk gerði í apríl á þessu ári. Tilboðið hljóð­aði upp á 44 millj­arða dala, um 6000 millj­arða króna. Að mati lög­fræð­inga Musk hefur hann fullan rétt til þess að ganga frá kaup­unum vegna ófull­nægj­andi upp­lýs­inga­gjafar frá Twitter um fjölda gervi­menna (e. bots) á sam­fé­lags­miðl­inum. Mál Twitter gegn Musk verður tekið fyrir af banda­rískum dóm­stólum í októ­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bitcoin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár