Rafmyntin er sýnd veiði en ekki gefin

Getur það stað­ist að maður sem hefur keypt raf­mynt og tapað síðan allri upp­hæð­inni vegna verð­falls mynt­ar­innar skuldi skatt­inum stórfé? Svarið við þess­ari spurn­ingu er já, ef þú býrð í Danmörku.

Bitcoin er langþekktasti og verðmætasti rafeyririnn af þeim hundruðum sem til eru. Danskur kennari hefur farið vægast sagt flatt á fjárfestingu sinni í rafeyrinum.
Bitcoin er lang­þekkt­asti og verð­mæt­asti raf­eyr­ir­inn af þeim hund­ruðum sem til eru. Danskur kenn­ari hefur farið væg­ast sagt flatt á fjár­fest­ingu sinni í raf­eyr­inum. Mynd: Pexels

Rune Christiansen heitir maður nokkur, búsettur á Suður-Jótlandi. Rune er, eða rétt­ara sagt var, kenn­ari við grunn­skól­ann í bænum Egtved, skammt fyrir sunnan Billund. Egtved er ekki oft í fréttum en árið 1921 fund­ust þar í dys frá brons­öld, lík­lega um 1300 f.Kr, ótrú­lega vel varð­veittar lík­ams­leifar ungrar stúlku. Þessi fundur er tal­inn einn merkasti fundur frá tíma brons­ald­ar­innar í Evrópu, og vakti heims­at­hygli.

Rune Christiansen er ekki heims­þekktur eins og Egt­ved­stúlkan en nafn hans hefur síð­ustu daga mátt sjá í mörgum dönskum fjöl­miðlum. Af sér­stökum ástæðum.

Kenn­ara­starfið er ekki hálauna­starf í Danmörku. Oft má lesa í fjöl­miðlum um nauð­syn þess að leggja í vara­sjóð hluta af laun­unum og eiga í hand­rað­anum þegar kemur að eft­ir­launa­aldr­inum. Þessi umræða hafði ekki farið fram­hjá Rune. Til að tryggja „áhyggju­laust ævi­kvöld“ eins og það er kallað ákvað hann ungur að leggja til hliðar til­tekna upp­hæð í hverjum mán­uði.

Fréttir um góða ávöxtun freistuðu

Þótt Rune Christiansen legði til hliðar í hverjum mán­uði þótti honum inni­stæðan á banka­bók­inni vaxa hægt. Fréttir af mik­illi hagn­að­ar­von svo­kall­aðrar raf­myntar, sem iðu­lega voru í fréttum, freist­uðu og árið 2017 ákvað Rune að veðja á þessa nýju ávöxt­un­ar­leið. Hann tók inni­stæð­una af banka­bók­inni og keypti raf­mynt. Ráðgjafi í bank­anum óskaði Rune alls hins besta en sagði að þótt ávöxt­unin á banka­bók­inni væri ekki mikil væri hún trygg „maður veit aldrei með þessa raf­mynt“. Rune svar­aði því til að hann skildi vel þetta sjón­ar­mið en þetta breytti engu um sín áform.

[adspot]

Hvað er rafmynt?

Margir setja sama­sem­merki milli raf­myntar og Bitcoin. Samtals eru til fleiri en 300 mis­mun­andi teg­undir raf­myntar í heim­inum en Bitcoin er lang stærst og þekkt­ust. Bitcoin var upp­haf­lega kynnt árið 2009 af ein­stak­lingi sem kall­aði sig Satoshi Nakamoto. Enginn veit með vissu hver Satoshi Nakamoto er, þótt til­gát­urnar séu margar. Bitcoin er ekki hefð­bundin mynt heldur raf­eyrir sem byggir á dulkóðun og hug­bún­aði en hægt er að eign­ast mynt­ina með „náma­vinnslu“ á net­inu. Til­gang­ur­inn með til­urð Bitcoin var að sögn Satoshi Nakamoto að taka völdin frá fjár­mála­el­ít­unni og gefa almenn­ingi kost á að taka þátt í fjár­mála­kerfum heims­ins. Bitcoin er ekki banki og þar er eng­inn banka­stjóri við völd.

Allt er þetta mjög óáþreif­an­legt, enda til­gang­ur­inn. Bitcoin er einkum notað til við­skipta á net­inu en margir nota mynt­ina til fjár­fest­inga, líkt og Rune Christiansen hefur gert.

Miklar sveiflur

Árið 2017 þegar Rune Christiansen ákvað að fjár­festa í Bitcoin voru dönsku skatta­regl­urnar varð­andi raf­mynt þannig að hagn­aður af við­skiptum var skatt­frjáls. Ef tap varð á við­skipt­unum var það ekki frá­drátt­ar­bært. Hjá Rune gekk allt vel í byrjun, pen­ing­arnir sem hann hafði varið í Bitcoin ávöxt­uð­ust vel og danski skatt­ur­inn (skattefar eins og Danir segja) skipti sér ekki af við­skipt­unum. En allt tekur enda og það gerði upp­sveiflan í Bitcoin líka. Áður var minnst á skatta­regl­urnar sem voru í gildi þegar Rune Christiansen stökk inn í Bitcoin heim­inn (hans eigið orða­lag) en Adam var ekki lengi í þeirri skattapara­dís.

96 ára gamlar reglur rothögg fyrir Rune

Árið 2018 tóku gildi nýjar reglur í Danmörku varð­andi raf­myntir. Regl­urnar voru reyndar ekki nýjar, þær voru frá árinu 1922 en höfðu verið felldar úr gildi mörgum árum fyrr en nú teknar upp á ný. Í stuttu máli eru „nýju“ regl­urnar þannig að nú skal greiddur skattur, 53% af hagn­aði en heim­ilt er að draga 26,5% af tapi frá, þó með til­tek­inni hámarks­upp­hæð. Vegna mik­illar lækk­unar Bitcoin geng­is­ins hefur Rune Christiansen tapað öllu sem hann lagði í Bitcoin við­skiptin og ekki nóg með það. Vegna mik­ils hagn­aðar, sem svo hvarf, situr Rune nú uppi með reikn­ing frá danska skatt­inum uppá 2,8 millj­ónir danskra króna, það jafn­gildir um rúmum 57 millj­ónum íslenskum. Rune sagði í við­tali við dag­blaðið Børsen að hann vissi ekki sitt rjúk­andi ráð, hann hefði þessa pen­inga ekki undir kodd­anum og hefði í raun aldrei séð þá. Hann lagð­ist í þung­lyndi sem varð til þess að hann varð að hætta kennsl­unni. Árlegir vextir af skatta­skuld­inni eru um það bil 250 þús­und og Rune seg­ist ekki hafa nokkra mögu­leika á að borga þá, og enn síður höf­uð­stól­inn. Danskur skatta­sér­fræð­ingur sem dag­blaðið Børsen ræddi við sagði þessar gömlu reglur sem skatta­yf­ir­völd hefðu dregið fram hefðu kannski átt við árið 1922 en hreint ekki í dag. Það væri í raun ótrú­legt að næstum hund­rað ára gamlar ryk­fallnar reglur væru dregnar upp úr skúff­unni hjá skatt­inum, eftir langt hlé.

Reglurnar í endurskoðun

Jeppe Bruus ráð­herra skatta­mála sagði í blaða­við­tali fyrir nokkrum dögum að sér­stök ráð­gjaf­ar­nefnd um skatta­mál (Skattelovr­ådet) væri nú að yfir­fara þessar áður­nefndu reglur og ætti að skila til­lögum sínum til ráð­herr­ans fyrir mitt ár 2023. Ráð­herr­ann sagði að vel gæti verið að gömlu regl­urnar ættu ekki lengur við. Blaða­maður spurði hvort ekki væri óeðli­legt að regl­urnar hefðu ekki verið end­ur­skoð­aðar, í ljósi þess að nú væri liðið vel á annan ára­tug síðan farið var að höndla með raf­mynt. Ráð­herr­ann sagði að þegar raf­myntin kom fram á sínum tíma hefði eng­inn séð fyrir hvað myndi ger­ast, hvort þetta væri bara tíma­bundin bóla. „En nú erum við að bregð­ast við“ sagði Jeppe Bruus.

Í lokin er rétt að geta þess að Rune Christiansen er ekki eini mað­ur­inn sem hefur fengið reikn­ing frá Skatt­inum vegna raf­myntar. Um það bil eitt þús­und Danir hafa síðan 2019 fengið slíkan reikn­ing. Sam­an­lögð upp­hæð þeirra reikn­inga er 89 millj­ónir danskra króna, það jafn­gildir 1.750 millj­ónum íslenskum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bitcoin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár