Telur ekki mikla hættu stafa af viðskiptum með Bitcoin

Rík­is­lög­reglu­stjóri telur miðl­ungs­hættu stafa af við­skiptum með Bitcoin eða aðrar teg­undir af svoköll­uðu sýnd­arfé. Samkvæmt emb­ætt­inu er ekki vitað hvernig brota­starf­semi yrði fram­kvæmd með raf­mynt­inni.

Ekki stafar mikil ógn af við­skiptum með Bitcoin eða öðru sýnd­arfé vegna pen­inga­þvættis, sam­kvæmt Rík­is­lög­reglu­stjóra. Helsta ógnin við þessi við­skipti er að umfang þeirra hefur auk­ist tölu­vert á síð­ustu miss­erum, auk þess sem verkn­að­ar­að­gerðir við brota­starf­semi með þessum hætti eru ekki þekktar. Þetta kemur fram í áhættu­mati emb­ætt­is­ins við pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka, sem kom út síð­asta fimmtu­dag.

Kjarninn hefur áður fjallað um áhættu­matið, en sam­kvæmt því fela víð­tæk skatta­laga­brot hér á landi í sér mikla ógn vegna hugs­an­legs pen­inga­þvættis. Einnig ýti aukn­ing reiðu­fjár í umferð, auk rúmrar lög­gjafar og lít­ils eft­ir­lits eftir starf­semi einka­hluta­fyr­ir­tækja, undir áhætt­una á að pen­inga­þvætti sé stundað á Íslandi.

Í áhættu­mat­inu eru við­skipti með sýnd­arfé hins vegar merkt með gulum lit, sem er næst lægsti áhættu­flokk­ur­inn. Aðrir þættir sem þykja jafn­mikil ógn við pen­inga­þvætti á fjár­mála­mark­aði eru útlána­starf­semi, rekstur sjóða og við­skipti og þjón­usta með fjár­mála­gern­inga. Meiri hætta þykir þó standa af öðrum þáttum, til dæmis gjald­eyr­is­skipti og útgáfa pen­inga á raf­rænu formi.

Samkvæmt Rík­is­lög­reglu­stjóra liggur helsta ógnin við þessa starf­semi í auknu umfangi hennar hér á landi, en í fyrra var verð­mæti þess­ara við­skipta tæp­lega 1,3 millj­arðar króna, sam­an­borið við 312 millj­ónir króna árið 2018.

[links]Við­skiptin séu í eðli sínu alþjóð­leg, flæði frjáls­lega yfir landa­mæri og erfitt geti verið að átta sig á upp­runa sýnd­ar­fjár og raun­veru­legum eig­enda þrátt fyrir að almennt sé hægt að rekja slóð milli­færslna á bálka­keðjum (e. blockchain).

Einnig segir emb­ættið að ógn stafi af því að verkn­að­ar­að­ferðir við brota­starf­semi í þessum við­skiptum séu ekki þekktar og að mark­aðir fyrir sýnd­arfé geti verið óstöðugir. Hins vegar séu fá dæmi um að pen­inga­þvætti sé ástundað með notkun sýnd­ar­fjár hér á landi.

„Þá þarf tals­verða sér­þekk­ingu til þess að stunda við­skipti þessi en til þess arna þarf að auð­kenna sig með raf­rænum skil­ríkjum og almennt að tengja aðgang að skipti­mark­aðnum við banka­reikn­ing,“ stendur einnig í skýrsl­unni. Enginn hrað­banki sé til staðar með sýnd­arfé hér á landi, svo auð­veld­ara ætti að vera að hafa yfir­lit með við­skiptin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bitcoin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár