Bitcoin „alls ekki nýr gjaldmiðill“ og hin svokallaða rafmynt „alls ekki heldur peningar“

Ásgeir Brynjar Torfason doktor í fjár­málum fjallar meðal ann­ars um bálka­keðjur og bitcoin í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar.

Ásgeir Brynjar Torfason
Ásgeir Brynjar Torfason Mynd: Aðsend mynd

Bitcoin er alls ekki nýr gjald­mið­ill og hin svo­kall­aða raf­mynt eða aðrar líkar sýnd­ar­eignir, sem til eru í a.m.k. 18.000 mis­mun­andi útgáfum, eru alls ekki heldur pen­ingar. Þessi fyr­ir­bæri skal miklu frekar kalla áhættu­sama fjár­fest­ingu í óljósri eign eða jafn­vel eitt­hvað í lík­ingu við hol­lenska túlíp­ana frá 17. öld, eins og franski seðla­banka­stjór­inn Galhau sagði í ræðu fyrir fáeinum mán­uðum.

Þetta skrifar doktor í fjár­málum, Ásgeir Brynjar Torfason, í grein sem birt­ist í nýjastu Vís­bend­ingu í síð­ustu viku.

Hann bendir á að þessar sýnd­ar­eignir sem nú falla hratt í verði dragi skýrt fram þörf­ina fyrir örugga og almenna upp­gjörs­eign sem hafi einnig orðið ljóst á 18. og 19. öld eftir að vandi mynd­að­ist meðal banka sem gáfu þá út sínar eigin myntir. „Kjöl­festan í hinni öruggu eign sem fæst við myndun seðla­banka­pen­ing­anna er almanna­gæði sem að standa þarf vörð um. Þó vissu­lega geti ýmsir þættir hinna nýstár­legu fjár­mála­gjörn­inga og sýnd­ar­eigna, á borð við túlíp­ana, falið í sér marg­vís­leg lík­indi við pen­inga, alveg eins og þegar kaupa mátti heila húsa­röð fyrir einn lauk,“ skrifar hann.

Ásgeir Brynjar bendir á að hug­takið stig­veldi sé mik­il­vægt þegar hugsað er um pen­inga­kerfið og að það sé erfitt fyrir marga að hugsa sér hvaða eign trónir á toppi þess þegar gull er ekki lengur sá fótur sem pen­ingar byggja á. Inn­stæður í við­skipta­bönkum séu ígildi pen­inga en í raun bara krafa á ekta pen­inga sem eru gefnir út af seðla­bönkum og tróna hæst í stig­veld­inu.

„Þrátt fyrir að útgefnir seðlar séu á skulda­hlið efna­hags­reikn­ings seðla­banka, þá má ekki gleyma því að í sam­stæðu reikn­ings­skila rík­is­ins þá standa allar eignir rík­is­ins þar að baki og geta orð for­sæt­is­ráð­herra dugað til að tryggja allar inn­stæður í bönkum upp í topp eins og frægt varð,“ skrifar hann.

Almennur aðgangur að rafrænum seðlabankapeningum mikið til umræðu

Ásgeir Brynjar segir jafn­framt í grein­inni að stór hluti stór­greiðslu­miðl­unar eigi sér þegar stað í gegnum raf­eyri seðla­bank­anna en almennur aðgangur að raf­rænum seðla­banka­pen­ingum sé nú mikið til umræðu og skuli ekki rugla við Bitcoin. Til þess að fá íslenskt sjón­ar­horn geti verið áhuga­vert að horfa á pall­borðsum­ræður í lok gagn­legs fundar KPMG á Íslandi um fram­tíð raf­mynta sem fram fór í júní síð­ast­liðnum.

„Ljóst er af umræð­unni þar að sumir telja alls enga þörf á því að hið opin­bera komi að því að byggja upp hið staf­ræna pen­inga­kerfi. Sé hin alþjóð­lega umræða skoðuð er hins vegar sá skiln­ingur nokkuð almennur að kjöl­festa pen­inga­kerfa fram­tíð­ar­innar verður aðeins tryggð hjá seðla­bönkum.

Það breytir því ekki að fjár­tækni­fyr­ir­tækjum og við­skipta­bönkum verður falin aðkoma og til­teknir þættir í rekstri þeirra kerfa sem almanna­gæði pen­ing­anna byggj­ast á. Sér­stak­lega varð­andi greiðslu­miðl­un­ar­þátt­inn (e. medium of exchange) en það hlut­verk sem snýr að vörslu verð­mætis (e. store of value) pen­inga verður að tryggja með opin­berum rekstri og sam­eign okkar í seðla­banka. Þriðja grund­vall­ar­hlut­verki pen­inga sem grunn­ein­ingu bók­halds­ins (e. unit of account) verður ekki hægt að hreyfa við með nokkrum tækninýj­ungum,“ skrifar hann.

„Skapandi eyðilegging“

Ásgeir Brynjar bendir jafn­framt á að ný tækni kosti oft bæði bólu og hrun til að skila sér til okkar. „„Skapandi eyði­legg­ingu“ kall­aði Schumpeter það í upp­hafi síð­ustu aldar, líkt og mann­fræð­ing­ur­inn og blaða­mað­ur­inn Gillian Tett bendir á í góðri yfir­lits­grein um fram­tíð sýnd­ar­eigna sem nýlega hafa verið kall­aðar raf­myntir. Áhan­gendur sýnd­ar­eign­anna líta lík­leg­ast á verð­fall og brott­hvarf sumra stöð­ug­leika­mynta (e. stablecoin) sem skap­andi eyði­legg­ingu í anda Schumpeters. Aðrir sem lengi hafa verið í heimi sýnd­ar­eigna eru vanir sveiflum og geta talið þetta verð­fall fela í sér kauptæki­færi.

Fallið á virði Bitcoin og ann­arra sýnd­ar­eigna á bálka­keðjum hefur þó fallið tölu­vert í skugg­ann af öðrum sam­hliða en ótengdum krísum. Verð eða gengi sýnd­ar­eign­anna hefur hrunið um tvo þriðju hluta frá topp­inum í nóv­em­ber síð­ast­liðnum eða sam­tals úr 3T$ í um 1T$.“

Hann segir að ein afleið­ing verð­falls Bitcoin og ann­arra fjár­mála­gjörn­inga sé að þannig geti raun­veru­legt pen­inga­magn minnkað. Það sama ger­ist einnig við aukna skatt­heimtu sem hafi þann jákvæða fylgi­fisk umfram raf­mynt að halli rík­is­sjóða minnkar. Verð­bólga sé vissu­lega stundum álitin ákveðin teg­und skatt­heimtu en hún skili í raun ekki betri afkomu hins opin­bera og legg­ist auk þess mjög ójafnt á þegna lands­ins. Þá sé ekki óvar­legt að ætla að skyn­sam­legt gæti verið að auka skatt­heimtu af breið­ari stofni en hæstu tekju­tí­und­inni ein­vörð­ungu.

Hægt er að lesa grein Ásgeirs Brynjars í heild sinni með því að ger­­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bitcoin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár