Skattsvik, reiðufjárnotkun og einkahlutafélög stærstu hætturnar

Rík­is­lög­reglu­stjóri telur skatt­svik og reiðufjár­notkun, auk skorts á lög­gjöf og eft­ir­liti á starf­semi einka­hluta­fé­laga, vera helstu hætt­urnar hér­lendis vegna pen­inga­þvættis.

Víðtæk skatta­laga­brot hér á landi fela í sér mikla ógn vegna hugs­an­legs pen­inga­þvættis. Einnig ýtir aukn­ing reiðu­fjár í umferð, auk rúmrar lög­gjafar og lít­ils eft­ir­lits eftir starf­semi einka­hluta­fyr­ir­tækja, undir áhætt­una á að pen­inga­þvætti sé stundað á Íslandi. Þetta kemur fram í nýút­gefnu áhættu­mati Rík­is­lög­reglu­stjóra, sem kom út á fimmtu­dag­inn.

Áhættu­matið er það þriðja sem Rík­is­lög­reglu­stjóri hefur gert vegna hætt­unar um pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka, en emb­ættið birti sam­bæri­legar skýrslur árin 2017 og 2019.

Fleiri og alvarlegri skattsvik

Samkvæmt Rík­is­lög­reglu­stjóra hefur málum tengdum skatta­laga­brotum sífellt fjölgað hjá emb­ætt­inu á und­an­förnum árum. Í fyrra fjölg­aði þeim um fjórð­ung, úr 482 árið 2019 í rúm 600 mál. Embættið segir einnig að upp­lýs­ingar frá Skatt­rann­sókn­ar­stjóra bendi til þess að málin séu alvar­legri en áður.

Meðal þeirra mála sem eru til rann­sóknar eru brota­hópar sem reyna að mis­nota virð­is­auka­skatts­kerfið með nýt­ingu á til­hæfu­lausum sölu­reikn­ingum frá fyr­ir­tækjum án eig­in­legra við­skipta. Embættið segir heild­ar­fjár­hæð slíkra reikn­inga nema um einum millj­arði króna.

Samkvæmt skýrsl­unni eru skatt­svik alvar­legt vanda­mál hér á landi, meðal ann­ars vegna þess hve auð­velt sé að drýgja slík brot. Einnig segir Rík­is­lög­reglu­stjóri að við­horf almenn­ings til skattsvika virð­ist vera mild­ara en til ann­arra brota og við­ur­lög ekki hafa til­ætluð varn­að­ar­á­hrif.

Auðvelt að koma reiðufé í umferð

Ein ástæða þess hversu auð­velt sé að fram­kvæma skatt­svik er talin vera vegna þess hversu auð­velt sé að koma reiðufé í fram­kvæmd hér á landi. Til dæmis sé ein­falt og ódýrt að flytja reiðufé yfir landa­mæri Íslands í gegnum eina af 23 toll­höfnum lands­ins.

Einnig gildi engar reglur um inn­lagnir og úttektir á reiðufé úr bönkum, nema hvað varðar hrað­banka, auk þess sem ekk­ert eft­ir­lit sé með notkun reiðu­fjár. Samkvæmt skýrsl­unni hefur reiðufé í umferð auk­ist á síð­ustu árum, þrátt fyrir að dregið hafi úr notkun þess í stað­greiðslu­við­skiptum hér á landi.

Þar sem reiðufé er órekj­an­legt segir Rík­is­lög­reglu­stjóri að auð­velt sé að koma t.d. ólög­mætum ávinn­ingi af brota­starf­semi í umferð.

Skattaundanskot og kennitöluflakk í einkahlutafélögum

Í skýrsl­unni segir einnig að auð­velt sé að svíkja undan skatti hér­lendis þar sem til­tölu­lega auð­velt sé að stofna einka­hluta­fé­lag. Ekki séu skil­yrði að slík félög séu í starf­semi eða rekstri og engar laga­kröfur séu gerðar til eig­enda þeirra. Embættið segir það einnig vera þekkta aðferð skömmu fyrir gjald­þrot einka­hluta­fé­laga að koma svoköll­uðum „útfar­ar­stjórum“ í stjórn þeirra til að dylja hver fari með raun­veru­lega stjórnun þess. Þar að auki segir Rík­is­skatts­stjóri það vera auð­velt að taka fjár­muni úr einka­hluta­fé­lagi og ráð­stafa úr sjóðum þess með sjálftöku, en slík ráð­stöfun fjár­muna kunni að fela í sér pen­inga­þvætti.

Samkvæmt skýrsl­unni liggja einnig fyrir upp­lýs­ingar um að sam­hliða rekstri sumra einka­hluta­fé­laga sé stunduð svört atvinnu­starf­semi, þar sem virð­is­auka­skattur eða tekju­skattur sé ekki greiddur í sam­ræmi við lög. Í þessum til­vikum hafi verið hægt að greiða minni skatt meðal ann­ars með að oftelja kostnað eða van­telja gjöld, t.d. í tengslum við tekjur frá aflands­fé­lögum.

Þá er líka minnst á svo­kallað kenni­tölu­flakk, þar sem fyr­ir­tæki sem sér fram á gjald­þrot flytur eignir sínar yfir á nýja kenni­tölu en skilur skuldir fyr­ir­tæk­is­ins eftir á þeirri gömlu. „Þannig

getur eig­andi fyr­ir­tæk­is­ins í raun haldið áfram að reka það án þess að greiða skuldir þess, því kröfu­hafar geta aðeins gengið að þeim eignum sem skráðar eru á gömlu kenni­töl­una,“ segir í skýrsl­unni.

Fleiri þættir nefndir árið 2019

Kjarninn fjall­aði um skýrsl­una sem kom út árið 2019, en sam­kvæmt henni var einnig talin mikil ógn af skattsvikum, pen­inga­send­ingum og einka­hluta­fé­lögum. Þó var talin meiri hætta á fleiri þáttum þá, t.d. á aflétt­ingu fjár­magns­hafta, raun­veru­legum eig­endum, og þjón­ustu lög­manna. Í nýju skýrsl­unni hafa þessir þættir verið teknir út eða færðir niður í áhættu­flokk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár